Fréttablaðið - 12.02.2007, Síða 12
Minni og meðalstór fyrirtæki gegna þýðingarmiklu
hlutverki í íslensku viðskiptalífi
Landsbankinn hefur á að skipa um 150 sérhæfðum
starfsmönnum í fyrirtækjaþjónustu sem kappkosta að
veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og
trausta fjármálaráðgjöf.
Þannig er minni og meðalstórum fyrirtækjum gert kleift
að dafna og ná settu marki og á sama tíma stuðlum við
saman að fjölbreyttu og kraftmiklu viðskiptalífi á Íslandi.
Landsbankinn er með víðtækasta útibúanet á landinu.
Það tryggir viðskiptavinum okkar frábæra þjónustu og
persónulega ráðgjöf sem tekur mið af þörfum hvers
og eins.
Hafðu samband í síma 410 4000 eða með tölvupósti
á fyrirtaeki@landsbanki.is og sjáðu hvað við getum
gert fyrir þig.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
35
82
2
01
/0
7
Í síðasta mánuði
réðst breska lögreglan inn í nokk-
ur hús í Birmingham og handtók
þar níu manns vegna gruns um að
þeir tengdust hryðjuverkaáform-
um.
Á föstudaginn voru fimm hinna
handteknu ákærðir, einn þeirra
fyrir að hafa áformað að ræna og
drepa breskan hermann. Tveir
þeirra voru hins vegar látnir laus-
ir í síðustu viku og annar þeirra,
Abu Bakr, sagði múslima upplifa
Bretland sem „lögregluríki“.
Eftir hryðjuverkin í þremur
neðanjarðarlestum og einum
strætisvagni í London sumarið
2005 hefur handtökum breskra
múslima fjölgað gífurlega, en stór
hluti hinna handteknu hefur síðar
verið látinn laus án þess að neinar
ákærur hafi verið gefnar út.
Veruleg reiði hefur magnast
meðal múslima í Bretlandi vegna
þessa. Múslimum finnst að sér
vegið með ómaklegum hætti og fá
það á tilfinninguna að þeir séu
óvelkomnir í landinu, jafnvel þeir
sem eru þar fæddir og aldir upp.
Tayib Rauf var handtekinn í
Birmingham um miðja nótt í ágúst
síðastliðnum vegna gruns um
aðild að áformum um að sprengja
upp farþegaflugvélar á leið yfir
Atlantshafið. Fyrstu þrjá dagana í
fangelsinu fóru engar yfirheyrsl-
ur fram.
„Síðan byrjuðu þeir að spyrja
mig fjölmargra heimskulegra
spurninga: „Hvað gerirðu? Hverja
umgengstu? Vandræðalegasta
spurningin var þegar þeir spurðu
mig hvers konar múslimi ég væri.
Hvernig svarar maður því?“
Hann segir minningarnar hafa
hellst yfir sig þegar mennirnir níu
voru handteknir á svipuðum slóð-
um nú fyrir skemmstu. Rauf, sem
er 22 ára, var sleppt eftir tvær
vikur í haldi, en hann hefur ekki
enn komist að því hvers vegna
hann var handtekinn. Hann segist
þó gruna að það sé vegna þess að
bróðir hans, Rashid, sem býr í
Pakistan, sé grunaður um að hafa
skipulagt árásirnar auk þess sem
annar maður í London, sem einnig
var leystur úr haldi án ákæru, hafi
einu sinni unnið hjá fjölskyldu-
fyrirtæki Raufs.
„Þetta er eins og keðja,“ sagði
Rauf. „Maður er handtekinn vegna
þess hverja maður umgengst.“
Sífellt fleiri
handteknir
Múslimar í Bretlandi eiga í vök að verjast vegna
baráttu öryggisstofnana gegn hryðjuverkaógninni.
Sífellt fleiri múslimar eru handteknir.
© GRAPHIC NEWS
Biskup Íslands hefur
auglýst laust til umsóknar
embætti héraðsprests í Kjalar-
nessprófastsdæmi.
Í auglýsingu embættisins segir
að það sé hugsað til aðstoðar við
prófast og til afleysinga innan
prófastsdæmisins.
Embættið er veitt frá 1. maí
næstkomandi. Biskup skipar í
embættið til fimm ára samkvæmt
meðmælum vígslubiskups, að
fenginni umsögn héraðsnefndar.
Umsóknarfrestur er til 15.
mars.
Mun aðstoða
prófastinn