Fréttablaðið - 12.02.2007, Síða 17
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Græjurnar hans Torfa Þórs lentu í bílslysi á leiðinni heim, voru í
allt of litlu herbergi og eyðilögðust að hluta til í partíi. Nú eru þær
loksins komnar á góðan stað eftir tíu ára flakk.
Torfi Þór er tölvunarfræðingur og tónlistarmaður og mikill áhugamaður
um hljómtæki. Fyrir tíu árum fékk hann sinn fyrsta alvöru magnara og
hann á hann enn. „Það var fyrst á þessum tíma sem maður átti nóg til að
hægt væri að hugsa um að kaupa sér alvöru græjur,“ segir Torfi. „Ég sökkti
mér ofan í öll fagblöð og netsíður um græjur til að komast að því hvað væri
best og plataði meira að segja besta vin minn í að kaupa sér sambærilegar
græjur. Hann hafði reyndar lítinn áhuga og langaði bara að geta hlustað á
tónlistina sína en svona er þessi tækjaáhugi, hann er bráðsmitandi.“
Torfi segir að fátt sé skemmtilegra fyrir græjufíkla eins og hann en að
koma heim með nýtt tæki, taka það úr kassanum, tengja það og byrja að
fikta. Eðlilega lá Torfa mikið á að prófa magnarann þegar hann fékk hann í
hendurnar, en ferðin heim gekk ekki þrautalaust fyrir sig. „Á leiðinni heim
brotnaði framrúðan á bílnum. Þetta var Súkka með framrúðu úr perlugleri
þannig að þegar hún brotnaði varð hún öll hvít. Við vorum sem betur fer á
lítilli ferð, ég og félagi minn, en þegar hann steig út og skellti á eftir sér
hurðinni hrundi glerið í milljón bitum yfir mig með magnarann í fanginu,“
segir Torfi og hlær. „Við komumst að lokum heim þar sem ég setti upp
tækið og við vorum fljótir að gleyma rúðunni og byrja að fikta.“
Á þessum tíma bjó Torfi í litlu herbergi í foreldrahúsum og því ekki
mikið pláss fyrir magnara, fimm hátalara og bassabox. Græjurnar fengu
þó stöku sinnum að fara í ferðalag og þar með talið á árshátíð á vegum nem-
endafélags Tónlistarskóla Reykjavíkur. „Ég var formaður félagsins og mín
heilaga skylda að sjá fyrir góðri tónlist í partíinu. Ég kom með græjurnar
og við hækkuðum aðeins of mikið. Okkur fannst það fínt en hátölurunum
ekki og þeir einfaldlega eyðilögðust,“ segir Torfi og hlær.
Nú er Torfi kominn með nýja hátalara og loksins herbergi sem hæfir
græjunum. „Ég flutti til útlanda og græjurnar voru notaðar að hluta til af
foreldrum mínum, en þau kusu að setja bassaboxið í geymslu,“ segir Torfi
og glottir. „Nú er ég loksins kominn í fína íbúð með fínni stofu svo ég get
loksins farið að njóta hljómburðarins, tíu árum eftir að að ég keypti græj-
urnar.“
Sprengdi hátalarana á árshátíðinni