Fréttablaðið - 12.02.2007, Side 18

Fréttablaðið - 12.02.2007, Side 18
Með þriðju kynslóðar símum verður hægt að fá uppáhalds sjónvarpsþáttinn beint í vasann. Tíðnileyfum frá Póst- og fjarskiptastofnun verður úthlutað í vor og búist er við að sendar fyrir símana komist í gagnið fljótlega eftir það. GSM-farsímakerfið var uppruna- lega hannað fyrir talsamband þar sem SMS-smáskilaboð bættust síðan við ásamt GPRS-gagnaflutn- ingi. Þriðju kynslóðar farsímar eru hannaðir fyrir háhraða gagnaflutn- ing og geta auðveldlega boðið upp á sjónvarpsefni í góðri upplausn, þótt maður sé staddur inni í tjaldi í Vaglaskógi. Til að styðja þessa nýju tækni þarf nýja senda sem munu rísa víðsvegar um land með tíð og tíma, en í vor verður úthlutað nýjum tíðnileyfum frá Póst- og fjarskipta- stofnun. Í reglum stofnunarinnar um uppbyggingu kerfisins er svo líka sagt til um hversu hratt skuli byggja kerfið upp. „Þriðju kynslóðar farsímarnir geta flutt gögn á sambærilegum hraða og ADSL-tenging flestra heimila í dag,“ segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjar- skiptastofnunar. Þriðju kynslóðar símarnir verða í sambærilegu gagnasambandi og talsamband GSM-símanna í dag án þess að þurfa á heitum reitum að halda. Hrafnkell býst ekki við því að símarnir taki við af fartölvum þar sem hægt verður að tengja fartölv- ur í gegnum þriðju kynslóðar síma og vera sítengdur án heitra reita. „Við þurfum ekki heita reiti fyrir sítengingu þriðju kynslóðar símanna. Tengingin verður heldur ekki bara á dreifingarsvæðum, ég er að tala um heilu borgirnar og heilu löndin,“ segir Hrafnkell. Þriðju kynslóðar símarnir geta bæði notað gamla og nýja kerfið fyrst um sinn, en með tíð og tíma verður alfarið skipt yfir í þriðju kynslóðar kerfið. Sjónvarpsefni beint í vasann Hraðir tölvuleikir, þar sem mikið er um að vera, bæta sjón spilara um allt að 20 prósent. Loksins geta tölvuleikjaunnendur lagt „tölvuleikir bæta samhæf- ingu handa og augna“-afsökunina á hilluna og byrjað að dásama áhrif þeirra á sjónina. Vísinda- menn við háskólann í Rochester í New York-ríki hafa nefnilega kom- ist að því að það að spila tölvuleiki getur haft jákvæð áhrif á sjónina. Vísindamennirnir báru saman hóp spilara sem spiluðu Tetris annars vegar, og hóp sem spilaði fyrstu persónu skotleikinn Unreal Tournament hins vegar. Niður- stöðurnar voru þær að Tetris gerði ekkert gagn, sjónin batnaði ekki svo mælanlegt var. Þeir sem spil- uðu Unreal bættu hins vegar sjón sína um allt að 20 prósent. Varðandi þetta sem mamma og pabbi sögðu með að verða rang- eygður og skemma augun: þau höfðu rangt fyrir sér. Tölvuleikir bæta sjón 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.