Fréttablaðið - 12.02.2007, Side 24

Fréttablaðið - 12.02.2007, Side 24
fréttablaðið fasteignir 12. FEBRÚAR 2007 MÁNUDAGUR2 Að ýmsu þarf að huga þegar gengið er frá gólfum og niðurföllum í votrýmum. Hermann Ragnarsson hjá Flotmúr ehf. getur gefið góð ráð um halla á gólfum og annan frágang. Hermann segir að það fari eftir því hvar niðurföllin eru hvort halli þurfi að vera á gólfinu eða ekki. „Ég myndi skipta votrým- um niður í tvo flokka,“ segir hann. „Í fyrri flokknum eru gólf sem þurfa að vera hall- andi, til dæmis bílskúrsgólf, svalagólf, bílageymslur og frystihús. Í seinni flokkn- um eru gólf sem ekki þarf að vera halli á eins og vaskahúsgólf og gólf í baðherbergj- um. Rökin fyrir því að setja ekki halla á gólfin í seinni flokknum eru að þetta eru eiginlega öryggisniðurföll,“ segir Her- mann. Þó að ekki sé nauðsynlegt að vera með halla á gólfum á baðherbergjum og í vaska- húsum þarf þó að huga að ýmsu öðru við fráganginn á þeim. „Helst þarf að passa að setja ekki ristina í fyrr en eftir að búið er að ganga frá gólfinu, hvort sem það er flísalagt eða dúkalagt eða hvað sem er, og stilla hana þá í rétta hæð svo að hún sé ekki of neðarlega. Það er heldur ekki gott ef niðurfallið er hæsti punktur á gólfinu og þó að ristin standi ekki nema millimetra upp úr er það orðið leiðinlegt. Einnig er mikilvægt að kíttað sé vel meðfram þrösk- uldinum svo að leki ekki vatn undir hann ef eitthvað er og það á líka við þó að sé halli á gólfinu,“ segir Hermann. Einn af kostunum við að vera ekki með halla á gólfum í baðherbergjum og vaska- húsum er að auðveldara að flísaleggja þau að sögn Hermanns. „Til dæmis getur verið erfitt að leggja stórar flísar á gólfin ef mikill halli er á þeim en þær eru einmitt mjög mikið í tísku í dag.“ Halli ekki nauðsynlegur Best er að setja ristina ekki í niðurfallið fyrr en búið er að ganga frá gólfinu. Hermann segir að ekki þurfi að vera halli á baðherbergisgólfum. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA Fr um Hlíðasmári 170 fm - verslunarhúsn. TIL LEIGU 170 fm verslunar og þjón- ustuhúsnæði vel staðsett á götuhæð í þessu glæsilega húsi. Endapláss sem er laust nú þegar. Næg bílastæði. Allt að 3000 fm Lagerhúsnæði. Til leigu vel staðsett miðsvæðis í Reykjavík við Héðinsgötu og Köll- unarklettsveg, allt að 3.000 fm. húsnæði sem hentar frábærlega und- ir lager eða léttiðnað. Möguleiki á 1000 - 3000 fm. Leigist til 2ja ára í senn. LAUST! Ögurhvarf, Kóp, 3.340 m2. Atvinnuhúsnæði með súlulausu lagerrými, verslunarrými og skrifstofuálmu. Hús- næðið er í byggingu og afhendist skv. nánara samkomulagi. Möguleiki er að leigja eða kaupa húsið í heild sinni (bygg.st.5 eða lengra komið), eða minni einingu. Teikningar og skil- alýsing á skrifstofu. Fornubúðir Hfj. 180 fm innkeyrslubil. Til sölu eða leigu 180 fm innkeyrslubil með háum og góðum innkeyrsluhurðum. Gott athafnasvæði fyrir utan og á lóð. Bilið er 120 fm að gólffleti og 60 fm milligólf. Húsnæðið er vel staðsett við höfnina og hentar fyrir margvíslega starfsemi. LAUST. Bíldshöfði, verslunar- og skrifstofuhúsn. Frábærlega staðsett á Höfðanum, til leigu nýtt og glæsilegt verslunar- og skrif- stofuhúsnæði sem um þessar mundir er verið að reisa annað af 2 húsum á lóð. Hver hæð er um 700 m2. Í boði eru stærðir frá 350 fm til rúmlega 10.000 fm. Nánari upplýsingar og teikn- ingar á Óseyrarbraut Hfj, 355 fm innkeyrslubil. Til leigu miðsvæðis í Hafnarfirði og við höfn- ina, gott innkeyrslubil með 1 innkeyrsluhurð. Góð aðkoma. LAUST. Hlíðasmári verslunar- og skrifstofuhúsn. Til leigu glæsilegt verslunar- og skrif- stofuhúsnæði á 6 hæðum, samtals um 1.800 fm, frábærlega staðsett í göngufæri við Smáralindina. Sameign og notarými verða afhent fullbúin og tilbúin til notkunar fyrir væntanlega leigj- endur. Frágangur verður að utan sem innan með glæsilegasta móti. Húsnæðið verð- ur afhent eftir mitt ár 2007. Glæsileg nudd og grenningarstofa. Til sölu glæsilegt heilsustúdíó með góðan tækjakost. þekkt stofa í flottu húsnæði. Glæsileg heimasíða yfir þjónustuna. Góður tími framundan. Frábært tækifæri. Veitingastaður í austurborginni. Til sölu veitingastaður, vel tækjum búin, tekur a.m.k. 40 manns í sæti. Staðurinn hefur mikla möguleika á verulegri aukningu. Sanngjarnt verð. Heildverslun með sérvöru Til sölu heildsölufyrirtæki og smásöluverslun með sérvöru fyrir hótel og veitingageirann svo og stofnanir á heilbrigðissviði. Gæðavörur og gott fyrirtæki. Upplýsingar á skrifstofu. Sérverslun með eigin innflutning. Til sölu glæsileg verslun, í nýju húsnæði, með gjafavöru, húsgögn og teppi. Flytur inn vörur frá 22 löndum. Skemmtilegt tækifæri. Ís-matur-videó. Hverfissöluturn Glæsilega innréttuð hverfisverslun með góða vaxandi veltu. Frábært fjölskyldu fyrirtæki. Topp tækifæri. Fiskheildsala - rótgróið fyrirtæki. Til sölu rótgróin fiskheildsala. Góð viðskiptasambönd í hart nær 20 ár. Mjög sanngjarnt verð. Frábært tækifæri fyrir duglegan að- ila. Afhending strax. Söluturn í Vesturbænum. Til sölu, af sérstökum ástæðum, er góður söluturn vel staðsettur og með mikla veltu. Mikil íssala. Pizzu ofn og miklar innréttingar. Rúmgott húsnæði. Gott verð. Grill-sjoppa með bílalúgu. Góð sjoppa í alfaraleið með góða veltu. Heitur matur í hádeginu. Gott tækifæri. Hagstætt verð. Hársnyrtistofa í góðu hverfi. 5 vinnustöðvar og 2 vaskstólar. Í góðu húsnæði og vel búin tækj- um. Til sölu af sérstökum ástæðum. Til afhendingar starx ef ósk- að er. Frábært verð. Síðumúla 35 • 108 Reykjavík • Sími 517 3500 • www.fyrirtaekjasala.is Björgvin Ó. Óskarsson Löggiltur leigumiðlari og eignaskiptalýsandi Óskar Mikaelsson, ráðgjafi, atvinnuhúsnæði og fyrirtæki Valgeir Kristinsson, Hrl., Lögg. faseignasali

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.