Fréttablaðið - 12.02.2007, Blaðsíða 29
fasteignir fréttablaðiðMÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2007 7
Glæsilegt fjölbýlishús í 101
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Ítarlegar upplýsingar
um eignirnar á
vefsíðu okkar
www.iav.is
Söludeild okkar er að
Höfðabakka 9, sími
530 4200
• Glæsileg hönnun
• Frábær staðsetning
• Fullfrágengin lóð
• Viðhaldslítið
• Vandaðar innréttingar
• Allur frágangur
sérlega vandaður
Lindargata 27 er glæsilega hannað viðhaldslítið átta hæða lyftuhús í miðbæ Reykjavíkur. Húsið
er teiknað af arkitektastofunni Hornsteinum. Í húsinu eru 21 íbúð og er þeim öllum skilað full-
búnum með parketi á gólfum og flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Hverri íbúð
fylgir sérgeymsla í kjallara. Innréttingar eru spónlagðar og geta kaupendur valið um þrjár
viðartegundir.
Í eldhúsi verður keramikhelluborð með 4 hellum, blástursofn og gufugleypir. Heimilistækin eru
frá AEG með burstaðri stáláferð. Hverri íbúð fylgir eitt stæði á lóð en sumar íbúðir eru auk þess
með bílskúr. Snjóbræðsla er við aðalanddyri, aðkomurampa og í bílastæðum. Göngustígar og
hluti bílastæða er hellulagður.
Íbúðirnar eru 2ja–3ja herbergja, 80–135 fm.
Lindargata Reykjavík
Í göngufæri eru helstu stofnanir landsins, gallerí, Þjóðleikhúsið, Óperan,
nýja tónlistar- og ráðstefnuhöllin og fjöldi kaffi- og veitingahúsa.
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200