Fréttablaðið - 12.02.2007, Side 43

Fréttablaðið - 12.02.2007, Side 43
fasteignir fréttablaðiðMÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2007 21 Íbúðirnar Íbúðirnar eru bjartar, með stórum gluggum sem sums staðar ná niður í gólf. Lofthæð er meiri en almennt gerist. Flestar íbúðanna hafa tvennar svalir. Við hönnun íbúðanna var sérstök áhersla lögð á þægindi fyrir íbúa. Hljóðeinangrun er eins og best verður á kosið með tvöföldu gólfi og vönduðum innveggjum. Gólfhiti er í íbúðunum. Mynddyrasími tengdur anddyri er í öllum íbúðum. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna, nema á baðherbergjum og þvottahús gólfum sem verða flísalögð. Innréttingar eru mjög vandaðar. Hægt er að velja milli þriggja viðartegunda í innréttingum og innihurðum. Sjónvarps- og símatenglar eru í stofu, borðkrók og herbergjum. Í öllum íbúðum er tengikassi fyrir stjörnutengingu síma, loftnets, tölvu, breiðbands og ljósleiðara. Dæmi um u.þ.b. 115 fm íbúð Dæmi um u.þ.b. 140 fm íbúð Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is. Á besta stað! Stórglæsileg fjölbýlishús ÍAV reisa stórglæsileg fjölbýlishús við Sóltún 8–18. Húsin eru frábærlega staðsett í grónu íbúðahverfi, skammt frá allri þjónustu í miðbænum og Kringlunni. Þá er helsta tómstunda- og útivistarsvæði Reykvíkinga, Laugardalurinn, í göngufæri við húsin. Húsin eru nútímalega hönnuð af Hróbjarti Hróbjartssyni og Karli Magnúsi Karlssyni arkitektum hjá VA arkitektum. Allur frágangur er sérlega vandaður. Húsin eru á 4 til 7 hæðum. Tvær íbúðir eru á hæð í hverjum stigagangi og innangengt er úr sameiginlegu bílageymsluhúsi beint í stigagang og lyftu. Húsin eru einangruð að utan og klædd með álklæðningu og gluggar eru álklæddir trégluggar. Húsin þarfnast því lágmarksviðhalds. Sameign verður fullfrágengin með flísum í anddyri og teppum á stigagöngum. Útihurð í stigagangi er úr áli og með rafmagnsopnun. Söludeild okkar er að Höfðabakka 9, sími 530 4200. Einnig eru ítarlegar upplýsingar um eignirnar á vefsíðu okkar www.iav.is. Stofa 24,0 m² Borðstofa / vinnukrókur 23,0 m² Forstofa / gangur Eldhús 9,1 m² Svalir 7,3 m² Þvottur 4,3 m² Bað 6,2 m² 11,9 m² Herbergi 13,2 m² Herbergi 15,5 m² Svalir 7,3 m² Þessir hlutir fylgja ekki íbúðum Herbergi 13,2 m² Herbergi 11,1 m² Stofa / borðstofa 31,5 m² Svalir 7,3 m² Eldhús 9,8 m² Svalir 7,3 m² Forstofa 9,8 m² Bað 6,2 m² Þvottur 3,1 m²

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.