Fréttablaðið - 12.02.2007, Page 43
fasteignir fréttablaðiðMÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2007 21
Íbúðirnar
Íbúðirnar eru bjartar, með stórum gluggum sem sums staðar ná niður í gólf. Lofthæð
er meiri en almennt gerist. Flestar íbúðanna hafa tvennar svalir.
Við hönnun íbúðanna var sérstök áhersla lögð á þægindi fyrir íbúa. Hljóðeinangrun
er eins og best verður á kosið með tvöföldu gólfi og vönduðum innveggjum. Gólfhiti
er í íbúðunum. Mynddyrasími tengdur anddyri er í öllum íbúðum.
Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna, nema á baðherbergjum og þvottahús
gólfum sem verða flísalögð. Innréttingar eru mjög vandaðar. Hægt er að velja milli
þriggja viðartegunda í innréttingum og innihurðum.
Sjónvarps- og símatenglar eru í stofu, borðkrók og herbergjum. Í öllum íbúðum er
tengikassi fyrir stjörnutengingu síma, loftnets, tölvu, breiðbands og ljósleiðara.
Dæmi um u.þ.b. 115 fm íbúð
Dæmi um u.þ.b. 140 fm íbúð
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is.
Á besta stað!
Stórglæsileg fjölbýlishús
ÍAV reisa stórglæsileg fjölbýlishús við Sóltún 8–18. Húsin eru frábærlega staðsett í
grónu íbúðahverfi, skammt frá allri þjónustu í miðbænum og Kringlunni. Þá er helsta
tómstunda- og útivistarsvæði Reykvíkinga, Laugardalurinn, í göngufæri við húsin.
Húsin eru nútímalega hönnuð af Hróbjarti Hróbjartssyni og Karli Magnúsi Karlssyni
arkitektum hjá VA arkitektum. Allur frágangur er sérlega vandaður.
Húsin eru á 4 til 7 hæðum. Tvær íbúðir eru á hæð í hverjum stigagangi og innangengt
er úr sameiginlegu bílageymsluhúsi beint í stigagang og lyftu. Húsin eru einangruð að
utan og klædd með álklæðningu og gluggar eru álklæddir trégluggar. Húsin þarfnast
því lágmarksviðhalds. Sameign verður fullfrágengin með flísum í anddyri og teppum á
stigagöngum. Útihurð í stigagangi er úr áli og með rafmagnsopnun.
Söludeild okkar er að Höfðabakka 9, sími 530 4200. Einnig eru ítarlegar upplýsingar um eignirnar á vefsíðu okkar www.iav.is.
Stofa
24,0 m²
Borðstofa / vinnukrókur
23,0 m²
Forstofa / gangur
Eldhús
9,1 m²
Svalir
7,3 m²
Þvottur
4,3 m²
Bað
6,2 m²
11,9 m²
Herbergi
13,2 m²
Herbergi 15,5 m²
Svalir
7,3 m²
Þessir hlutir fylgja ekki íbúðum
Herbergi 13,2 m²
Herbergi
11,1 m²
Stofa / borðstofa
31,5 m²
Svalir
7,3 m²
Eldhús
9,8 m² Svalir
7,3 m²
Forstofa
9,8 m²
Bað
6,2 m²
Þvottur
3,1 m²