Fréttablaðið - 12.02.2007, Page 52
fréttablaðið fasteignir 12. FEBRÚAR 2007 MÁNUDAGUR30
Svefnsófar og rétt lýsing geta
gert gæfumuninn.
Fyrir fólk sem á heima í litlum íbúð-
um skiptir skipulagið öllu máli. Ef
ekki er staðið rétt að því finnst íbú-
unum fljótlega þrengt að sér en öll
þrífumst við best á heimilum þar
sem nægilegt pláss er til að heimil-
isfólk geti átt einkalíf og athafnað
sig eftir þörfum.
1. Lýsing skiptir öllu máli.
Flöt lýsing ofan úr loftinu lætur
híbýlin virka minni á meðan borð
og standlampar „teygja“ úr horn-
um. Lamparnir gefa líka færi á að
skapa notalega stemningu á heimil-
inu og um leið getur þú beint athygl-
inni frá þeim stöðum sem þú vilt.
2. Speglar á réttum stöðum
draga til sín og dreifa dagsbirtu
sem er mjög mikilvæg til að okkur
líði eins og það sé pláss heima hjá
okkur. Um leið blekkja speglarnir
augað og láta rýmið virka stærra.
3. Ljós húsgögn eru betri en
dökk ef plássið á að virka meira.
Reyndu að hafa uppi á húsgögnum
sem þjóna meira en einum tilgangi.
Til dæmis sófaborð með skúffum,
borð með innbyggðum skápum og
sófa sem hægt er að nota sem rúm.
Skápar með rennihurðum spara líka
pláss og því er gott að nota þá í litl-
um svefnherbergjum.
4. Láttu sófann snúa á móti
inngangi í stofuna. Þetta lætur fólki
finnast það velkomið og um leið
gefur þetta aukna tilfinningu fyrir
stærra rými.
5. Veldu húsgögn sem hægt er
að færa á milli staða og jafnvel nota
til ýmissa athafna. Til dæmis stand-
lampa sem geta bæði verið í eldhúsi
og stofu, eða við vinnurými eftir
þörfum.
6. Ef þú átt heima í lítilli stúdíó-
íbúð eða öðru opnu rými sem ekki
gerir ráð fyrir miklum mannfjölda
skaltu fjárfesta í svefnsófa.
Futon-sófarnir japönsku eru til
að mynda fallegir og eigulegir til
þess brúks en það má líka fá fleiri
gerðir af svefnsófum af öllum
stærðum og gerðum. Hvort sem þú
ætlar þér að sofa í svefnsófanum
eða bjóða gestum að hvílast þar, er
slíkur gripur þarfaþing á litlum
heimilum. - mhg
Ásta Sigríður Ólafsdóttir
starfar sem innanhússarkitekt
hjá Heimilinu í heild. Hún
segir skemmtilegast að vinna
fyrir fólk sem þorir að vera það
sjálft.
„Ný hús eru skemmtileg viðfangs-
efni. Fjölmargir þættir sem huga
þarf að gefa hugmyndafluginu laus-
an tauminn. Ekkert er endanlegt og
hægt að velta fyrir sér möguleikum
nánast endalaust. Hugmyndir koma
þó oft úr ólíkum áttum og erfitt
getur verið að samræma þær,“
segir innanhússarkitektinn Ásta S.
Ólafsdóttir. Hún mælir með því að
fólk sem er að hanna íbúðir sé
ófeimið við að leita sér aðstoðar.
„Þegar farið er af stað með
nýbyggingu er mikilvægt að leita
ráða hjá fagfólki á öllum sviðum.
Sérþekking innanhússarkitekta
liggur í að skipuleggja innra rými
húsa og hanna innréttingar svo
notagildið og þægindin verði sem
mest, jafnframt því að samræma
útlit og efnisval þannig að útkoman
verði engu lík!“ segir Ásta. Hún
segir að innanhússarkitektar þurfi
að fylgjast vel með þar sem þróunin
er verulega hröð.
„Stöðugt koma fram nýjungar í
innréttingum, tækjum, flísum, og
gólfefnum, að ógleymdum kerfum
sem stýra lýsingu, hljómburði og
hita. Þannig eru mörg heimili nú
orðin hátæknivædd og aðgerðum
stjórnað með fjarstýringum og tölv-
um. Það sannast þó ítrekað að tíma-
laus hönnun heillar mest og er vin-
sælli en nokkru sinni fyrr,“ segir
Sigríður.
„Í dag er algengt að byggja inn
alla mögulega hluti í loft, veggi og
gólf, svo sem ljós, brautir, sjónvörp
og blöndunartæki. Gott er að gera
ráð fyrir öllu þessu snemma í hönn-
unarferlinu, ekki síst vegna þess að
framkvæmdahraðinn getur verið
mikill. Nú koma húsin oft tilbúin á
lóðina frá framleiðandanum með
raflögnum og öllu saman.“
Sigríður segir að flest sé nú
leyfilegt. „Æskilegt er að heimili
lýsi karakter eigenda sinna, frekar
en að vera eins og klippt og límt úr
þekktu hönnunarblaði. Það er
skemmtilegast að vinna fyrir fólk
sem þorir að vera það sjálft,“ sagði
Ásta S. Ólafsdóttir að lokum. - egm
Heimilið á að lýsa
karakter eigenda sinna
Ásta S. Ólafsdóttir, innanhússarkitekt hjá Heimilinu í heild, Síðumúla 35.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Aukið pláss í litlu húsnæði
Húsgögn sem auðvelt er að
færa til og standlampar á
gólfum hjálpa til við að mynda
aukið rými í litlum íbúðum. www.byggd.is
Jón Kr. Sólnes, hrl. lögg. fast.sali - Björn Guðmundsson, lögg. fast.sali
Nýbygging Akureyri
N-10 ehf. er að fara af stað með byggingu á iðnaðarhúsnæði
á 2 hæðum. Á efri hæð er um 1.100. fm. húsnæði með mikilli
lofthæð, sem mögulegt væri að skipta í minni einingar. Á
neðri hæð verða 6 aðskildir eignahlutar og verður stærð
þeirra frá 82,5 fm og allt að 350 fm þar sem lothæð verður um
4m. Við sölu er gert ráð fyrir að efri hæðin verði seld í einu
eða tvennu lagi og kaupendum gefin kostur á að hafa áhrif á
endanlega hönnun og skipulag. Staðsetning eignarinnar verð-
ur mjög góð með tilliti til margskonar verslunar og þjónustu-
starfsemi og er áætlaður afhendingartími í nóvember 2007.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á Fasteignasölunni BYGGÐ
Fr
um
Við höfum lausn fyrir þig, mælum,
teiknum, smíðum og setjum upp
Beinir stigar - Loftastigar
Handlistar - Stólpar - Pílárar
Mex - byggingavörur
Sími 567 1300 og 848 3215
www.byggingavorur.com
Ný teikniforrit og verð á
www.timberman.dk - tegn trappen
STIGAR OG HANDRIÐ
Til sölu eru tvö mjög vönduð nýbyggð parhús á
Reyðarfirði. Stærð hvors húss um sig með bílskúr
er 235,9 fm. Öll herbergi hússins eru mjög rúmgóð
og björt. Þetta stórglæsilega hús stendur á mjög
fallegum stað á Reyðarfirði. Hönnun húss og allur
frágangur miðar að því að lágmarka allt viðhald.
Húsið er teiknað og hannað hjá ATS teiknistofu á
Akureyri / Egilsstöðum.
Byggingaraðili er Austurfell ehf.
Húsin verða afhent fullgerð með gólfefnum og innréttingum
í mars - apríl 2007. Sjón er sögu ríkari.
Verð húss er kr. 48.000.000
Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Fasteignasölunni ehf, Hofsbót 4, Akureyri. Sími 462-1878.
Hermann R. Jónsson sölustjóri sími 861-5025. Hreinn Pálsson hrl. og lögg. fasteignasali.