Fréttablaðið - 12.02.2007, Side 75

Fréttablaðið - 12.02.2007, Side 75
AFMÆLI Afgreiðslutími virka daga 10-18 og laug. 11-15 Mörkinni 4, Reykjavík, sími: 533 3500 - Hofsbót 4, Akureyri, sími: 462 3504 Miðvangi 1, Egilsstöðum, sími: 471 2954 FÆDDUST ÞENNAN DAG Fjórflétta, sönghópur Páls Óskars, þurfti að kveðja X-Factor á föstu- dagskvöldið eftir æsispennandi símakosningu á þriðja úrslitakvöld- inu í Vetrargarðinum. Eftir að atkvæðagreiðslu lauk var ljóst að Jóhanna, úr hópi yngri þátttakenda undir stjórn Ellýar, og Fjórflétta hefðu hlotið fæst atkvæði. Því kom það í hlutverk Einars Bárðarsonar að velja þann sem myndi ljúka keppni á þriðja úrslitakvöldinu. Eftir erfiðar vangaveltur ákvað Einar að Fjór- flétta ætti frá að hverfa. Fjórflétta send heim Heilsuverkefninu Hreyfing fyrir alla var hleypt af stokkunum í vikunni. Tilgangurinn er að auka framboð á skipulagðri hreyfingu, eink- um fyrir fullorðna og eldra fólk sem stundar ekki reglulega hreyfingu. Heilbrigðisráðuneytið, Lýðheilsustöð og Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland standa að verkefninu auk fjölda bæjarfélaga, íþrótta- félaga og annarra. Stéttarfélögin VR og Efling styðja einnig verkefnið. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra skrifaði undir samkomulag um Hreyfingu fyrir alla í höfuðstöðvum Íþrótta- og Ólympíu- sambands Íslands í Laugardalnum í gær ásamt fulltrúum þeirra félaga og samtaka sem standa að verkefninu. Áður en samkomulagið var undirritað var fulltrúum þátttakenda í verkefninu sýnt hvern- ig eigi að bera sig að í stafagöngu – almenn- ingsíþrótt sem nýtur vaxandi vinsælda hér- lendis. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að verkefnið eigi að ná til tveggja þriðju hluta landsmanna. Rúmar þrettán milljónir hafa verið veittar til þess. Við undirritunina sagði Siv aldrei of seint að skipta um lífsstíl, hreyfingarleysi sé einn helsti orsakavaldur lífstílstengdra sjúkdóma eins og ofþyngdar og aukins kólesteróls. Berjast gegn hreyfingarleysi fullorðinna

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.