Fréttablaðið - 12.02.2007, Page 77

Fréttablaðið - 12.02.2007, Page 77
Kammerkórinn Carmina tek- ur þátt í virtri endurreisn- ar- og barokktónlistarhátíð í Svíþjóð á komandi sumri og heldur þá í sína fyrstu utan- landsferð. Fram undan eru einnig tímamótatónleikar í Kristskirkju. Kórinn var stofnaður fyrir aðeins þremur árum og Árni Heimir Ing- ólfsson, tónlistarfræðingur og list- rænn stjórnandi hópsins, útskýrir að því sé þetta mikill heiður fyrir félaga hans. Tónlistarhátíðin Stock- holm Early Music Festival sé önnur tveggja stærstu hátíða sinna teg- undar á Norðurlöndunum og því felist mikil viðurkenning í þessu boði aðstandenda hennar. „Það er á vissan hátt staðfesting þess sem við höfum verið að vinna að – að koma á endurreisnarhópi í fremstu röð hér á landi,“ segir hann. Meðlimir kórsins eru allir þraut- þjálfaðir söngvarar og hafa hlotið mikilsverða reynslu innan annarra kóra. Á tónleikum hátíðarinnar flytur kórinn efnisskrá með íslenskri endurreisnartónlist sem finna má í svokölluðu Melódía- handriti en hópurinn flutti hana á Sumartónleikum í Skálholti í fyrra. „Melódía er stærsta nótnahandritið sem varðveist hefur hér á landi en í því eru yfir tvö hundruð lög,“ útskýrir Árni Heimir. Handritið er frá miðri 17. öld en hópurinn hefur unnið töluvert með þá tónlist og hljóðritað hluta hennar og er disk- ur með flutningi þeirra er væntan- legur í verslanir. „Aðstandendur hátíðarinnar fréttu af okkur og báðu um upptökur og síðan fylgdi boðið í kjölfarið. Ég held að það sé mikill og almennur áhugi víða um heim hjá fólki sem vill fræðast meira um hvers konar tónlistar- landslag var á Íslandi á þessum tíma,“ segir Árni Heimir. Hátíð sem þessi er kjörinn vett- vangur fyrir fólk að kynnast og efla tengsl sín á milli og segir Árni Heimir að á hátíðinni í sumar verði fjölmargir aðrir spennandi hópar, einkum frá Frakklandi og Þýska- landi og nefnir sérstaklega spænska hópinn Hesperion XXI undir stjórn gömbuleikarans Jordi Savall. En það er skammt stórra högga í millum hjá kórnum. Nú á vordög- um heldur Carmina tónleika í Kristskirkju þar sem félagarnir frumflytja eitt af meistaraverkum endurreisnarinnar, Requiem eða Sálumessu eftir spænska tónskáld- ið Tomás Luis de Victoria. „Það er raunar til marks um hversu lítið endurreisnartónlist hefur átt upp á pallborðið hérlendis að við skulum vera að frumflytja þetta verk nú,“ segir Árni Heimir og áréttar að Sálumessa þessi sé standardverk hjá sambærilegum tónlistarhópum víða um heim. „Victoria er lítið þekktur hér á landi en hann er einn af stóru nöfnunum. Þetta er ótrú- lega mikilfengleg og dramatísk tónlist sem gefur flytjendunum tækifæri til þess að sýna allt litróf tilfinninganna. Þetta er verk sem mig hefur lengi langað til að flytja.“ Auk sálumessunnar mun Carmina flytja verk eftir endurreisnartón- skáldin Cristóbal de Morales og Josquin des Prez. Á tónleikunum í Kristskirkju munu fjórir söngvar- ar úr BBC Singers, The Tallis Schol- ars og Westminster Abbey-kórnum í Lundúnum slást í lið með félögum í Carminu. Tónleikahald er ekki algengt í Kristskirkju og lýtur nokkuð ströngum reglum. „Við höfum notið mikillar velvildar hjá aðstandend- um kirkjunnar,“ útskýrir Árni Heimir og segir tónleikastaðinn afar viðeigandi. „Tónlistin sem við flytjum á rætur sínar að rekja til kaþólskrar hefðar og af þeim kirkj- um á höfuðborgarsvæðinu er engin sem býr yfir jafn fallegri umgjörð um þessa tónlist eins og Krists- kirkja.“ Tónleikarnir í Kristskirkju verða 17. og 18. mars og hefjast kl. 16 báða dagana. Miðasala hefst í verslun 12 Tóna á fimmtudag en þess skal getið að ekki verður hægt að kaupa miða á tónleikastaðnum sjálfum. Tvöföld tímamót Carminu Miðasalan í Iðnó er opin 11.00 til 16:00 virka daga og tveim tímum fyrir sýningu. Sími miðasölu er 562 9700. SALA Í FULLUM GANGI Á EFTIRFARANDI SÝNINGAR: í febrúar: 10/2, 15/2, 16/2, 17/2, 23/2, 24/2, 25/2. Í mars: 2/3, 3/3, 4/3, 7/3, 9/3, 10/3, 15/3, 17/3, 18/3, 22/3, 23/3, 24/3, 29/3, 30/3, 31/3. Allar sýningar hefjast kl. 20 nema 10/3 kl. 15. ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA!! Í GLÆNÝRRI GAMANSÝNINGU BJARNI HAUKUR (HELLISBÚINN) pabbinn.is „DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“ DAGUR VONAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.