Fréttablaðið - 12.02.2007, Síða 77
Kammerkórinn Carmina tek-
ur þátt í virtri endurreisn-
ar- og barokktónlistarhátíð í
Svíþjóð á komandi sumri og
heldur þá í sína fyrstu utan-
landsferð. Fram undan eru
einnig tímamótatónleikar í
Kristskirkju.
Kórinn var stofnaður fyrir aðeins
þremur árum og Árni Heimir Ing-
ólfsson, tónlistarfræðingur og list-
rænn stjórnandi hópsins, útskýrir
að því sé þetta mikill heiður fyrir
félaga hans. Tónlistarhátíðin Stock-
holm Early Music Festival sé önnur
tveggja stærstu hátíða sinna teg-
undar á Norðurlöndunum og því
felist mikil viðurkenning í þessu
boði aðstandenda hennar. „Það er á
vissan hátt staðfesting þess sem
við höfum verið að vinna að – að
koma á endurreisnarhópi í fremstu
röð hér á landi,“ segir hann.
Meðlimir kórsins eru allir þraut-
þjálfaðir söngvarar og hafa hlotið
mikilsverða reynslu innan annarra
kóra. Á tónleikum hátíðarinnar
flytur kórinn efnisskrá með
íslenskri endurreisnartónlist sem
finna má í svokölluðu Melódía-
handriti en hópurinn flutti hana á
Sumartónleikum í Skálholti í fyrra.
„Melódía er stærsta nótnahandritið
sem varðveist hefur hér á landi en í
því eru yfir tvö hundruð lög,“
útskýrir Árni Heimir. Handritið er
frá miðri 17. öld en hópurinn hefur
unnið töluvert með þá tónlist og
hljóðritað hluta hennar og er disk-
ur með flutningi þeirra er væntan-
legur í verslanir. „Aðstandendur
hátíðarinnar fréttu af okkur og
báðu um upptökur og síðan fylgdi
boðið í kjölfarið. Ég held að það sé
mikill og almennur áhugi víða um
heim hjá fólki sem vill fræðast
meira um hvers konar tónlistar-
landslag var á Íslandi á þessum
tíma,“ segir Árni Heimir.
Hátíð sem þessi er kjörinn vett-
vangur fyrir fólk að kynnast og efla
tengsl sín á milli og segir Árni
Heimir að á hátíðinni í sumar verði
fjölmargir aðrir spennandi hópar,
einkum frá Frakklandi og Þýska-
landi og nefnir sérstaklega spænska
hópinn Hesperion XXI undir stjórn
gömbuleikarans Jordi Savall.
En það er skammt stórra högga í
millum hjá kórnum. Nú á vordög-
um heldur Carmina tónleika í
Kristskirkju þar sem félagarnir
frumflytja eitt af meistaraverkum
endurreisnarinnar, Requiem eða
Sálumessu eftir spænska tónskáld-
ið Tomás Luis de Victoria. „Það er
raunar til marks um hversu lítið
endurreisnartónlist hefur átt upp á
pallborðið hérlendis að við skulum
vera að frumflytja þetta verk nú,“
segir Árni Heimir og áréttar að
Sálumessa þessi sé standardverk
hjá sambærilegum tónlistarhópum
víða um heim. „Victoria er lítið
þekktur hér á landi en hann er einn
af stóru nöfnunum. Þetta er ótrú-
lega mikilfengleg og dramatísk
tónlist sem gefur flytjendunum
tækifæri til þess að sýna allt litróf
tilfinninganna. Þetta er verk sem
mig hefur lengi langað til að flytja.“
Auk sálumessunnar mun Carmina
flytja verk eftir endurreisnartón-
skáldin Cristóbal de Morales og
Josquin des Prez. Á tónleikunum í
Kristskirkju munu fjórir söngvar-
ar úr BBC Singers, The Tallis Schol-
ars og Westminster Abbey-kórnum
í Lundúnum slást í lið með félögum
í Carminu.
Tónleikahald er ekki algengt í
Kristskirkju og lýtur nokkuð
ströngum reglum. „Við höfum notið
mikillar velvildar hjá aðstandend-
um kirkjunnar,“ útskýrir Árni
Heimir og segir tónleikastaðinn
afar viðeigandi. „Tónlistin sem við
flytjum á rætur sínar að rekja til
kaþólskrar hefðar og af þeim kirkj-
um á höfuðborgarsvæðinu er engin
sem býr yfir jafn fallegri umgjörð
um þessa tónlist eins og Krists-
kirkja.“ Tónleikarnir í Kristskirkju
verða 17. og 18. mars og hefjast kl.
16 báða dagana. Miðasala hefst í
verslun 12 Tóna á fimmtudag en
þess skal getið að ekki verður hægt
að kaupa miða á tónleikastaðnum
sjálfum.
Tvöföld tímamót Carminu
Miðasalan í Iðnó er opin 11.00 til 16:00 virka daga
og tveim tímum fyrir sýningu. Sími miðasölu er 562 9700.
SALA Í FULLUM GANGI Á EFTIRFARANDI SÝNINGAR:
í febrúar:
10/2, 15/2, 16/2, 17/2, 23/2, 24/2, 25/2.
Í mars:
2/3, 3/3, 4/3, 7/3, 9/3, 10/3, 15/3, 17/3,
18/3, 22/3, 23/3, 24/3, 29/3, 30/3, 31/3.
Allar sýningar hefjast kl. 20 nema 10/3 kl. 15.
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA!!
Í GLÆNÝRRI GAMANSÝNINGU
BJARNI HAUKUR (HELLISBÚINN)
pabbinn.is
„DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“
DAGUR VONAR