Fréttablaðið - 12.02.2007, Qupperneq 78
Tvær af stjörnum sjónvarpsþátt-
arins vinsæla Lost, þau Dominic
Monaghan og Evangeline Lilly,
ætla að gifta sig í júlí. Monaghan,
sem leikur Charlie, og Lilly, sem
leikur Kate, hafa átt í ástarsam-
bandi undanfarin misseri og vilja
nú ganga upp að altarinu. Athöfn-
in verður látlaus og mun fara fram
á meðan þau eru í sumarfríi frá
tökum á Lost. Athöfnin fer fram á
Hawaii, þar sem ástarblossinn á
milli þeirra kviknaði við tökur á
þættinum.
Gifting á
Hawaii
Tölvuteiknaða stuttmyndin Anna og skapsveiflurnar var
forsýnd í Smárabíó fyrir fullum sal á fimmtudag. Góður
rómur var gerður að myndinni og ekki annað að heyra en
áhorfendur létu ólundina í Önnu sér vel líka.
Jessicu Simpson langar að feta í
fótspor Angelinu Jolie og ættleiða
börn. Í viðtali við breska tímaritið
Star sagðist
söngkonan
vilja eignast
stóra fjöl-
skyldu, en að
hún óttaðist
að hún gæti
ekki afborið
fæðingu
oftar en einu
sinni. „Mig
langar í þrjú
börn, en ég
veit ekki
hvort ég get
fætt þrisvar.
Ég þarf að
athuga hversu sárt það er í fyrsta
skiptið,“ sagði Simpson. Hana
langar að ættleiða áður en hún
fæðir sjálf börn.
Í sama viðtali sagðist söngkon-
an einnig vilja bjarga heiminum.
Það væri draumur sem hefði lifað
með henni frá barnæsku. Simpson
sagðist halda að hún myndi enda á
því að gera einhver góðverk.
Langar að
ættleiða
Skömmu fyrir andlát sitt sagði
fyrirsætan Anna Nicole Smith vin-
konu sinni að lífið væri að buga
sig. „Ég get ekki haldið áfram,
lífið er að drepa mig,“ sagði
Anna grátandi í símtali. Hún
var undir áhrifum fjölda lyfja
en mikil lyfjaneysla hafði sett
sitt mark á hana. Anna
hringdi í vinkonu sína
skömmu eftir að hún kom á
hótelið í Flórída þar sem
hún lést 48 klukkustundum
síðar.
„Anna var í hræðilegu
ástandi. Líf hennar var
reyndar aldrei einfalt en
þegar hún hringdi þarna var
eitthvað öðruvísi en venju-
lega. Ég var virkilega
hrædd um hana. Hún hafði verið
með sjálfseyðingarhvöt í mörg ár
og tekið ógrynni af lyfjum. Þarna
var augljóst að hún vildi deyja,“
sagði vinkona hennar við
News of the World.
Anna Nicole hafði áhyggj-
ur af mörgu undir það síðasta
í lífi sínu. Hún syrgði enn
tvítugan son sinn sem lést
í september eftir ofneyslu
eiturlyfja. Það gerðist
aðeins þremur dögum
eftir að Anna fæddi dótt-
ur sína sem nú er deilt um
faðernið á. Þrír hafa gefið
sig fram sem líklegir feður
en möguleiki er á að Anna
hafi notað fryst sæði úr
fyrrverandi eiginmanni
sínum, auðmanninum J. Howard
Marshall, til að styrkja kröfu sína
um að erfa auðævi hans. Þá átti
Anna yfir höfði sér lögsókn vegna
ásakana um að megrunarpillur
sem hún auglýsti gerðu ekkert
gagn.
Dánarorsök Önnu liggur ekki
fyrir. Ekki mun hafa verið um of
stóran skammt lyfja að ræða en
líklegt er talið að aukaverkanir af
lyfjaneyslu hennar hafi dregið
hana til dauða. „Anna tók lyf eins
og annað fólk drekkur vatn. Ég
veit ekki hvort hún framdi sjálfs-
morð en hún vildi deyja. Kannski
sagði líkami hennar að nú væri
nóg komið,“ sagði vinkona hennar.
Anna reyndi að fremja sjálfsmorð
í fyrra eftir að sonur hennar dó.
Anna Nicole Smith vildi deyja
Söngkonan
Norah Jones
var ekki
ánægð með
fyrstu kynni
sín af Holly-
wood. Norah
hefur nú leik-
ið í sinni
fyrstu kvik-
mynd, My
Blueberry, og
henni leist
ekki á blik-
una þegar
henni var
skipað að
grennast
fyrir hlut-
verk sitt.
Norah var
stórhneyksl-
uð þegar
henni var til-
kynnt þetta
og segist nú
skilja betur hvað grannar leik-
konur mega þola.
„Ég ætti örugglega ekki að
segja frá þessu en ég var beðin
um að losa
mig við nokk-
ur pund. Í
fyrstu varð ég
mjög reið en
síðan varð ég
stressuð og
fór að hugsa
um hvað ég
væri feit.
Þetta var ekki
fallegt að
heyra en nú
skil ég þennan
leik. Ekki það
að ég taki þátt
í honum. Mér
fannst bara
skrítið að
þetta væri
eitthvað mál.
Nú skil ég þó
grannar leik-
konur – og
mér finnst að
þær ættu bara
að skella í sig einum ostborg-
ara!“ segir Norah, sem leikur á
móti Jude Law og Rachel Weisz
í myndinni.
Norah þótti of feit