Fréttablaðið - 12.02.2007, Qupperneq 82
Glerfínar gluggafilmur
– aukin vellíðan á vinnustað
R
V
62
09
3M glu
ggafilm
ur fyrir
skóla, s
júkrahú
s, skrifs
tofur,
verslani
r og að
ra vinnu
staði
Fagme
nn frá
RV
sjá um
uppset
ningu
Ekki nógu ánægð með veturinn hjá mér
DHL-deild karla:
„Þetta var algjör óþarfi
og aumingjaskapur hjá okkur á
síðustu mínútunum að hleypa
þeim svona inn í leikinn. Ef við
ætlum okkur að ná langt í þessu
móti þá getum við ekki boðið upp á
svona endasprett,“ sagði Óskar
Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals,
eftir að strákarnir hans höfðu nælt
í tvö dýrmæt stig í DHL-deildinni
gegn Íslandsmeisturum Fram á
útivelli. Lokastaðan 26-27 í leik
sem Valur hefði hæglega getað
gengið frá fyrir hlé.
Fyrri hálfleikur hjá Íslands-
meisturunum var hreinasta hörm-
ung og ef ekki hefði verið fyrir
klaufaskap Vals á köflum þá hefðu
Framarar verið tíu mörkum undir
í leikhléi og ballið búið.
Fram fékk enga markvörslu í
hálfleiknum, engin hraðaupphlaup
og var þar að auki utan vallar í
átta mínútur. Valur nýtti sér það
engan veginn nógu vel og munur-
inn því aðeins fjögur mörk í leik-
hléi, 10-14.
Það lak allt inn hjá báðum liðum
í upphafi síðari hálfleiks en um
leið og Björgvin Páll byrjaði að
verja í Fram-markinu komust
heimamenn inn í leikinn. Þeir
breyttu stöðunni 19-23 í 22-23 og
allt opið undir lokin. Þá kom aftur
góður kafli hjá Val og þeir komust
í 23-27 þegar skammt lifði leiks.
Þá slökuðu Valsmenn aftur á
klónni, Jóhann Gunnar skoraði
þrjú mörk í röð og óvænt spenna
komin í leikinn á ný.
Fram fékk tækifæri til að jafna
undir lokin en fór illa að ráði sínu
þegar skot Andra Bergs var varið
af Valsvörninni. Valsmenn fögn-
uðu gríðarlega góðum sigri, enda
enn á toppi deildarinnar, en Fram-
arar voru að vonum súrir enda
blasir lítið annað við þeim en hörð
fallbarátta.
Það eru ánægjuleg tíðindi fyrir
Val og handknattleiksunnendur að
Baldvin Þorsteinsson sé að kom-
ast á eðlilegt skrið á nýjan leik.
Hann var öflugur í gær. Arnór
Gunnarsson og Ernir Hrafn voru
ágætir. Markús var víðsfjarri sínu
besta en skoraði mikilvæg mörk
undir lokin.
Jóhann Gunnar var yfirburða-
maður hjá Fram og Andri Berg
átti fínan sprett í síðari hálfleik.
Björgvin varði vel í síðari hálfleik
eftir að hafa ekkert getað í þeim
fyrri. Staða meistaranna er orðin
slæm og þeir verða að ranka við
sér ef ekki á illa að fara.
Valsmenn sluppu með skrekkinn
Varnarmaðurinn Valur
Fannar Gíslason er hættur að æfa
með Val vegna launadeilu við
félagið. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins fékk Valur Fannar
fyrirframgreidda eina milljón
króna í laun síðasta sumar sem
flokkaðist sem leikjabónus en
Valur lék aldrei nógu marga leiki
til að vinna fyrir laununum.
Valsmenn vildu þar af leiðandi
fá peningana til baka en Valur
Fannar hafnaði þeirri beiðni
félagsins. Í kjölfarið urðu mikil
læti sem hafa leitt til þess að Valur
Fannar er hættur að æfa með
félaginu þó svo að hann sé með
samning út tímabilið 2008.
Valsmenn búast ekki við honum
aftur á Hlíðarenda og er leikmað-
urinn þegar hættur að æfa með
félaginu. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hafa Valur og
Fylkir samið um félagaskipti leik-
mannsins og sömu heimildir
herma að Valur Fannar sé einnig
búinn að ná samkomulagi við sitt
gamla félag. Málið er hins vegar í
hnút út af þessari milljón og sér
ekki fyrir endann á deilunum.
„Ég er enn leikmaður Vals í dag
og þannig er bara staðan. Ég vil að
öðru leyti ekkert tjá mig um
málið,“ sagði Valur Fannar þurr á
manninn í gær en hann fór til
norska félagsins Sogndal í vikunni
en náði ekki að heilla félagið.
Ótthar Edvardsson, fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar
Vals, staðfesti að Valur Fannar
væri hættur að æfa með liðinu og
sagði félagið líta svo á stöðuna að
leikmaðurinn væri á förum.
„Við erum það vel mannaðir í
öftustu vörn að við mátum stöð-
una sem svo að það væri í lagi að
leyfa honum að fara. Við teljum
okkur ekki þurfa á kröftum hans
að halda,“ sagði Ótthar en aðspurð-
ur um milljóna og launadeiluna
sagði Ótthar: „Ég ætla ekki að tjá
mig um hans samningsmál. Fólk
verður að geta sjálft í eyðurnar.“
Ótthar sagðist ekki búast við að
Valur Fannar spilaði aftur fyrir
félagið en heimildir Fréttablaðs-
ins herma að Valsmenn séu í erf-
iðri stöðu því ef þeir keyri málið
alla leið verði væntanlega að
ljóstra upp um laun Vals og það
vill félagið ekki sjá gerast.
Valur Fannar Gíslason hefur væntanlega spilað sinn síðasta leik fyrir Val. Hann
er hættur að æfa með Val en fer hvergi fyrr en launadeila hans við félagið er
leyst. Hann fékk fyrirframgreidda milljón sem hann ætlar ekki að endurgreiða.
Arsenal vann nauman
sigur á Wigan í gær, 2-1, á
heimavelli sínum. Bæði mörk
Arsenal komu á tíu síðustu
mínútum leiksins.
Fyrra markið var sjálfsmark
og var mikil rangstöðulykt af því
en sigurmarkið skoraði Tékkinn
Tomas Rosicky. Áður hafði
Denny Landzaat komið Wigan
yfir. Þetta er í ellefta sinn sem
Arsenal kemur til baka á
leiktíðinni.
„Dómarinn kostaði okkur
sigurinn. Við hefðum átt að fá víti
rétt áður en Arsenal jafnar en
það mark var vafasamt. Þessi
dómgæsla gæti kostað okkur fall
og 50 milljónir punda,“ sagði Paul
Jewell, stjóri Wigan, alveg
kolvitlaus í leikslok en hann
reifst heiftarlega við dómarann
eftir leikinn.
Í fyrri leik gærdagsins lagði
Bolton lið Fulham, 2-1.
Naumur sigur
hjá Arsenal