Fréttablaðið - 12.02.2007, Page 88
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
Opið 8-24
alladaga
- Lifið heil
Skoðanakannanir hafa þann augljósa galla að í þeim getur
fólk aðeins látið upp afstöðu sína
á því augnabliki sem spurningin
er borin upp. Tiltölulega einfalt
er að svara spurningu eins og:
„Hvort langar þig meira í kjöt
eða fisk?“ Verra er að gefa rétt
svar við spurningunni: „Hvort
langar þig meira í kjöt eða fisk
12. maí næstkomandi?“ Aðeins
forfallnar kjöt- eða fiskætur
geta svarað slíkri spurningu af
einhverri nákvæmni – og samt
getur margt breyst á þremur
mánuðum.
jafn staðfastur
fiskimaður og Pétur postuli
afneitaði leiðtoga sínum ekki
einu sinni heldur þrisvar á einni
nóttu er ekki fráleitt að ætla að
æði margir eigi eftir að skipta
æði oft um skoðanir á þeim
þremur mánuðum sem eftir eru
fram að kjördegi, 12. maí í vor.
hef ég þá tilhneig-
ingu að taka meira mark á
mjöðminni á mér en skoðana-
könnunum enda hefur hún
reynst vera næm á bæði veður-
breytingar og rafmagnaða
strauma í þjóðarsálinni. Tilfinn-
ing segir mér að ríkisstjórnin sé
í nokkrum vanda stödd. Sprung-
ið er á varadekkinu og nokkur
leiði er kominn upp meðal far-
þeganna. Sumum finnst þetta
ferðalag orðið nokkuð langt og
vilja skipta um rútu af því að
þeim finnst óloft eða mengunar-
stybba í bílnum. Aðrir eru nokk-
uð ánægðir með ferðalagið og
altént fegnir því að vera enn þá
lifandi þótt þeir séu súrir yfir
því að fá ekki að ferðast í
nýeinkavæddum Hummer.
Sumir vilja halda áfram í sömu
rútu og fá annað varadekk. Aðrir
vilja nýja rútu og nýjan bílstjóra
en erfitt er að sannfæra mann-
skapinn um að nýja rútan sé
skárri en sú gamla. Auk þess
hafa margir efasemdir um nýja
bílstjórann, bæði hvað varðar
ratvísi og ökuleikni. Enn aðrir
tala fyrir því að banna útlend-
ingum að sitja í íslenskum rútum
og spá því að þeir muni í stað
nestis eta íslensku farþegana
áður en komið verði á leiðar-
enda.
þetta endar er
ómögulegt að segja. En mjöðmin
í mér spáir: Frjálslyndir 5%,
Framsókn 10%, Samfylking
26%, Sjálfstæðir 38% og VG
21%. Svo á eftir að koma í ljós
hvort meira er að marka skoð-
anakannanir vandaðra fjölmiðla
eða mjöðmina á mér.
Kosningaspá