Fréttablaðið - 05.03.2007, Qupperneq 2
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
NISSAN NAVARA 35”
Nýskr. 08.06 - Sjálfskiptur - Ekinn 5 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
4.620
.000.
-
Bresk þingnefnd telur
valdheimild sem gerir yfirvöld-
um kleift að halda grunuðum
hryðjuverkamönnum án ákæru
stríða gegn mannréttindalögum.
Heimildin, sem er háð árlegri
endurnýjun þingsins, var sett árið
2005. Hefur hún verið harðlega
gagnrýnd af stjórnarandstöðunni
en innanríkisráðherra Bretlands,
John Reid, segir hana nauðsyn-
lega til að fást við grunaða
hryðjuverkamenn sem ekki sé
hægt að ákæra eða flytja úr landi.
Nefndin hvetur til að auðveld-
að verði að ákæra til dæmis með
að leyfa að upptökur úr símhler-
unum við réttarhöld.
Gagnrýnir um-
deilda heimild
Karlmaður á fertugsaldri lést
þegar bifreið hans valt út fyrir
veginn í Hörgárdal skammt
sunnan við bæinn Krossastaði um
miðnættið á laugardagskvöld.
Vegfarandi kom að slysstaðnum
og gerði lögreglunni á Akureyri
viðvart. Maðurinn var látinn þegar
hana bar að garði. Hann var einn í
bifreiðinni.
Töluverð hálka var á þessum
slóðum þegar slysið varð og að
sögn lögreglu er talið að maðurinn
hafi misst stjórn á bifreiðinni
vegna hennar. Þetta er fyrsta bana-
slysið í umferðinni á þessu ári.
Karlmaður á
fertugsaldri lést
Eigandi verktakafyr-
irtækis hefur verið sendur í
fangelsisafplánun vegna tveggja
útistandandi dóma eftir að hafa
gengið í skrokk á pólskum
starfsmanni sínum aðfaranótt
sunnudags. Hann hlaut síðast tólf
mánaða fangelsisdóm í Hæstarétti
fyrir kynferðisbrot.
Í fréttum Stöðvar tvö í gær lýsti
verkamaðurinn því að hann hefði
lagt sig í bifreið fyrirtækisins eftir
samkvæmi á þess vegum. Hann
vaknaði við það að yfirmaður hans
dró hann út úr bifreiðinni og hóf að
sparka í hann og kýla í andlitið.
Hann sér ekkert með öðru auganu
eftir árásina og sauma þurfti
nokkur spor í augabrún og enni.
Var sendur í
afplánun í gær
Karlmanni á fimm-
tugsaldri sem fannst liggjandi
meðvitundarlaus og alblóðugur
við Bæjarlind í Kópavogi á laugar-
dagsmorgun varð það sennilega til
lífs að líkamshiti hans fór niður í
26 gráður. Að sögn lögreglu hlaut
maðurinn alvarlegan áverka á
hnakka og missti mikið blóð. Tölu-
vert frost var þessa nótt og hægði
það verulega á líkamsstarfsemi
mannsins.
Maðurinn var yfirheyrður af
lögreglu um helgina. Hann minn-
ist þess ekki að ráðist hafi verið á
sig.
Ómar Smári Ármannsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn segir
áverkann mögulega hafa getað
orsakast af falli enda hafi verið
töluverð hálka á því svæði sem
maðurinn fannst. Þó er enn verið
að rannsaka hvernig maðurinn
slasaðist og vitni sem voru á
skemmtistaðnum hafa verið
yfirheyrð. Ekki er búið að úti-
loka að áverkinn sé af manna-
völdum.
Maðurinn var á leiðinni heim
til sín af skemmtistaðnum Play-
ers þegar atvikið átti sér stað.
Gangandi vegfarandi varð hans
var um níuleytið á laugardags-
morgun en hann hafði þá legið
meðvitundarlaus í einhverja
klukkutíma. Maðurinn komst til
meðvitundar síðdegis á laugar-
dag og er ástand hans stöðugt að
sögn læknis.
Ofkólnun varð honum til lífs
Stjórnmálasamtök eldri
borgara og öryrkja voru formlega
stofnuð í gær á opnum fundi á
Grand hóteli. Baráttusamtök eldri
borgara og öryrkja höfðu boðað til
fundarins og var tillaga um stofn-
un stjórnmálasamtaka samþykkt
einhljóða.
Arndís H. Björnsdóttir, for-
maður Baráttusamtaka eldri borg-
ara og öryrkja, var kjörin for-
maður hins nýja stjórnmálaflokks.
Hún segir að mikil samstaða hafi
verið á fundinum og nokkur hundr-
uð manns séu nú þegar komnir á
skrá samtakanna.
„Þetta er framboð sem á erindi
við alla og fólk á öllum aldri hefur
lýst yfir stuðningi við okkur,“
segir Arndís, sem fullyrðir jafn-
framt að aðrir stjórnmálaflokkar
hafi reynt að standa í vegi fyrir
framboðinu.
Málefni aldraðra og öryrkja
verða í brennidepli en að sögn
Arndísar mun flokkurinn einnig
láta til sín taka á öðrum sviðum.
„Við erum með stefnu í öllum
málaflokkum og einbeitum okkur
sérstaklega að ójöfnuðinum í sam-
félaginu,“ segir Arndís.
Flokkurinn hyggst bjóða fram í
öllum kjördæmum og munu aldr-
aðir og öryrkjar skipta kjördæm-
unum á milli sín. Nafn flokksins
verður gert opinbert síðar í vik-
unni og þá kemur einnig í ljós
hverjir leiða lista flokksins.
Íbúðarbyggð í Ör-
firisey og nágrenni verður ekki
byggð upp á þeim tíma sem stefnt
er að, ef nýframlögð samgöngu-
áætlun stendur óbreytt. Þetta
segja Björn Ingi Hrafnsson, for-
maður borgarráðs og stýrihóps
sem skoðar nú möguleikann á upp-
byggingu íbúðarbyggðar í Örfiris-
ey og nágrenni, og Dagur B. Egg-
ertsson. Í stýrihópnum eru auk
Björns Inga, Gísli Marteinn
Baldursson, Hanna Birna Kristj-
ánsdóttir, Dagur B. Eggertsson og
Árni Þór Sigurðsson.
Eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu á miðvikudaginn síðastlið-
inn hefur stjórn Faxaflóahafna
vísað tillögu Björgunar hf. og
Bygg hf., um uppbyggingu byggð-
ar á 108 hektara landfyllingu, til
stýrihópsins fyrrnefnda til frek-
ari umfjöllunar.
Björn Ingi segir engan vafa
leika á því að ef uppbygging sam-
göngumannvirkja verði með þeim
hætti sem boðað er í nýútkominni
samgönguáætlun muni það hafa
hamlandi áhrif á vinnu við skipu-
lag byggðar í Örfirisey og hennar
nágrenni. „Það er mat allra sem
koma að málefnum borgarinnar
að það verði að koma til sam-
göngumannvirki, til dæmis Mýrar-
götustokkur, svo hægt sé að byggja
upp byggð á þeim tíma sem við
stefnum að. Því hefur verið komið
á framfæri og það mál er í þing-
legri meðferð. Ég bind vonir við
að náum ásættanlegri lendingu í
málinu.“
Dagur B. Eggertsson segir öll
uppbyggingaráform vera í upp-
námi. „Það er ekki lagt til fjár-
magn fyrir
Mýrargötu-
stokkinn í sam-
gönguáætlun-
inni og það setur
öll uppbygging-
aráform í upp-
nám. Ég reikna
með því að við
getum unnið að
þessu verkefni í
rólegheitum
[mati á skipulagstillögum og
öðrum málum er viðkoma upp-
byggingu í Örfirisey], að minnsta
kosti á meðan þessi samgöngu-
áform eru ekki uppi á borðinu.“
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra segir samgöngubætur
við Mýrargötu vera inni í öðru
tímabili samgönguáætlunar. „Við
höfum gert ráð fyrir því að Vega-
gerðin gangi til samninga við
borgaryfirvöld. Það er enn unnið
að því að finna bestu tæknilausn-
ina á þessum málum. Ég veit ekki
betur en að það sé fullur skilning-
ur á því að þessi mál, það er skipu-
lagið og tæknilegar útfærslur,
þurfi að vinna betur.“
Áhugi fjárfesta á svæðinu, þar
sem meirihluti Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks í Reykjavík
ætlar sér að byggja upp íbúðar-
byggð, er gríðarlegur að sögn
Björns Inga. Þannig hefur fjár-
festingarfélagið Lindberg hf.
keypt húsnæði í Örfirisey fyrir
um þrjá milljarða á undanförnum
mánuðum.
Mýrargötustokkur
grundvöllur byggðar
Mýrargötustokkur er grundvöllur uppbyggingar byggðar í og við Örfirisey, segja
Dagur B. Eggertsson og Björn Ingi Hrafnsson. Stokkurinn er ekki í fyrri hluta ný-
framlagðrar samgönguáætlunar og því er uppbygging ekki á dagskrá á næstunni.
Ellý, var ekki grátlegt að þurfa
að senda Alan heim?
Norskur karlmaður,
Quang Minh Pham, var handtek-
inn um helgina grunaður um að
hafa myrt 31 árs gamlan mann en
lík hans fannst í skottinu á bíl
Pham á laugardaginn.
Pham, sem er 34 ára gamall,
var árið 1999 dæmdur í 21 árs
fangelsi fyrir manndráp. Hann
var í leyfi frá fangelsinu þegar
líkið fannst í bíl hans á hraðbraut
í grennd við Larvik.
Tekinn með lík
í skottinu
Karlmaður á fimmtugsaldri
var fluttur mikið slasaður með
þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-
Líf á slysadeild Landspítalans í
gær eftir að fólksbifreið sem
hann ók lenti framan á sjúkrabif-
reið á Suðurlandsvegi síðdegis í
gær.
Að sögn lögreglu eru tildrög
slyssins enn í rannsókn en ljóst
þykir að fólksbifreiðinni hafi
verið ekið yfir á öfugan vegar-
helming á Suðurlandsveginum
rétt vestan við Hvolsvöll með
fyrrgreindum afleiðingum.
Annar sjúkraflutningamaður-
inn hlaut minniháttar meiðsl en
félagi hans og sjúklingar sem
voru í sjúkrabifreiðinni sluppu
ómeidd.
TF-Líf sótti
slasaðan mann