Fréttablaðið - 05.03.2007, Page 4
Alcan ætlar ekki að
opinbera niðurstöður könnunar
sem Capacent
Gallup gerði í
febrúar á viðhorfi
Hafnfirðinga til
stækkunar álversins
í Straumsvík.
Hrannar
Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Alcan,
segir að könnunin
sé vinnuplagg.
Meirihluti Hafnfirðinga
hafnaði stækkun álversins í
könnun sem sem gerð var fyrir
Alcan í desember. -
Greina ekki frá
niðurstöðunni
Miðstjórn Samiðnar,
sambands Iðnfélaga, hefur lýst
yfir undrun sinni á því að ekki
hafi verið rætt við samtök
launamanna þegar leitað var eftir
samstarfi við atvinnulífið við
undirbúning stofnunar einka-
vædds iðnskóla og sameiningu
við Fjöltækniskólann.
Það er skoðun miðstjórnarinn-
ar að til þess að iðnnám sé sem
best í takt við atvinnulífið þurfi
að vera þríhliða samstarf milli
skóla, samtaka launamanna og
samtaka atvinnurekenda í
hverjum iðngreinaflokki.
Samiðn undr-
ast ósamráð
Afsökunarbeiðni
japanskra stjórnvalda til kvenna
sem þvingaðar
voru til kynlífs
með japönskum
hermönnum
fyrir áratugum
stendur.
Forsætisráð-
herra Japans,
Shinzo Abe,
sagði í síðustu
viku að engar
sannanir lægju fyrir um að
konurnar hefðu verið neyddar til
starfa í vændishúsum.
Reiðialda braust út vegna þeirra
ummæla forsætisráðherrans.
Árið 1993 báðu japönsk
stjórnvöld fórnarlömb kynlífs-
þrælkunarinnar afsökunar en
afsökunarbeiðnin var ekki
staðfest af þinginu eins og krafist
var.
Stendur við af-
sökunarbeiðni
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
telja 94 prósent Íslendinga að það skipti máli að
landbúnaður verði stundaður til framtíðar á
Íslandi.
„Ég átti von á að stuðningurinn væri umtals-
verður en þessi gríðarlega sterka staða bænda
er afgerandi – þrátt fyrir sífellda orrahríð,“
sagði Haraldur Benediktsson, formaður Bænda-
samtaka Íslands, þegar hann kynnti niðurstöður
könnunarinnar á Búnaðarþingi í Reykjavík í
gær. Könnunin var gerð fyrir Bændasamtökin
af Capacent/Gallup.
„Svar fólksins í landinu er svo eindregið að
við hljótum að fyllast þakklæti,“ sagði Haraldur,
sem taldi þessa niðurstöðu vera þeim „áminning
sem hæst tala óábyrgt og af vanþekkingu,“ og að
þeir ættu að endurskoða sinn málflutning.
Þá kom fram í könnuninni að áttatíu prósent
þeirra sem svöruðu telja mikilvægt að Íslend-
ingar verði ekki öðrum háðir með landbúnaðar-
vörur sem þeir geta framleitt hér á landi. Har-
aldur sagði greinilegt að fólk vildi ekki að
íslenskri framleiðslu væri fórnað. „Íslendingar
vita að matvælaöryggi þjóðarinnar er lagt að
veði,“ sagði hann. „Svarendur segja okkur bænd-
um að halda áfram á sömu braut. Ekki gefast
upp gegn þeim sem vilja koma landbúnaðinum á
kné.“
Haraldur ítrekaði að niðurstöðurnar væru
„umhugsunarefni fyrir þá sem árum saman hafa
alið á óvild í garð landbúnaðar og bændastéttar“.
Langflestir segja landbúnað skipta máli
Sigurður Kári Kristj-
ánsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, telur að Siv Friðleifs-
dóttir, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, eigi að
segja af sér vegna ummæla sem
hún lét falla á flokksþingi Fram-
sóknarflokksins á föstudag. Þar
sagði Siv að ríkisstjórnin gæti átt
erfitt með að lifa af ef ekki næðist
samkomulag um að binda auð-
lindaákvæði í stjórnarskrá.
Að sögn Sigurðar Kára er það
mjög alvarlegt af ráðherra að láta
slík ummæli falla tíu dögum fyrir
þinglok. „Ég veit ekki hvort þetta
helgist af einhverjum taugatitr-
ingi innan Framsóknarflokksins
eða dómgreindarleysi af hennar
hálfu en það er augljóst mál að
ráðherra í ríkisstjórn sem er með
svona hótanir eða uppstillingar í
garð samstarfsflokks síns, hann
verður að bera ábyrgð á þeim.“
Hann segir það ekki skipta máli
hvort ummælin lýsi einungis
hennar persónulegu skoðun. „Ef
hún hefur meint það sem hún sagði
og nýtur stuðnings Framsóknar-
flokksins í því þá er það mjög
alvarlegt mál fyrir stjórnarsam-
starfið. Það er sömuleiðis mjög
alvarlegt ef þetta er einungis
hennar persónulega skoðun. Þá á
hún ekkert heima í þessari ríkis-
stjórn.“
Sigurður Kári segist vita til
þess að fleiri innan Sjálfstæðis-
flokksins séu á sömu skoðun og
hann. „Ég veit um fleiri sem eru
mjög óánægðir með þessi ummæli
Sivjar og ég vona að hún dragi þau
til baka. Ég er viss um að í öðrum
löndum þá yrði fast sótt að ráð-
herra að segja af sér eftir að hann
hefði haft uppi slík ummæli um
sína samstarfsmenn.“
Siv Friðleifsdóttir vildi ekki
svara því hvort hún myndi hug-
leiða afsögn né hvort hún myndi
íhuga að draga ummæli sín til
baka. „Ég sé ekki ástæðu til þess
að tjá mig um þetta að svo komnu
máli.“
Arnbjörg Sveinsdóttir, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, segir þetta vera persónulega
skoðun Sigurðar Kára og ekkert
meira um það að segja. „Hann
segir þetta og það því örugglega
hans persónulega skoðun. Þessi
umræða hefur verið dálítið út og
suður fyrir mína parta og engin
ástæða til þess að hrapa að ein-
hverjum ályktunum á hvorn veg-
inn sem er.“
Telur að Siv eigi að
segja af sér embætti
Sigurður Kári Kristjánsson segist vera á þeirri skoðun að Siv Friðleifsdóttir eigi
að segja af sér vegna hótana hennar um stjórnarslit. Fleiri innan Sjálfstæðis-
flokksins óánægðir með ummæli hennar. Siv vill sjálf ekki tjá sig um málið.
Ég sé ekki ástæðu til
þess að tjá mig um þetta
að svo komnu máli.
Ómar Ragnarsson
segir vel ganga að koma á
koppinn nýju
framboði fólks
úr Framtíðar-
landinu og
fylgismönnum
Margrétar
Sverrisdóttur
„Nöfn Margrét-
ar, mitt og
Jakobs Frí-
manns Magnús-
sonar hafa
verið nefnd en það er miklu fleira
fólk sem vill ekki láta nafn síns
getið á þessu stigi sem kemur að
því að bræða þetta saman.“
Unnið er að mótun málefna og
fylgismanna leitað. Ómar segir
ekkert liggja fyrir um nafn
framboðsins en frekari tíðinda sé
að vænta eftir um tíu daga.
Nýja framboðið
enn í mótun