Fréttablaðið - 05.03.2007, Qupperneq 10
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/I
SP
3
63
76
0
2/
06
Þjónustuver | sími 580 1200 | postur@postur.is | www.postur.is
Ert þú að flytja innanlands?
Mundu að tilkynna um breytt heimilisfang þitt og allra
fjölskyldumeðlima á postur.is eða næsta pósthúsi. Einnig
þarf að tilkynna um breytt heimilisfang til Hagstofu Íslands,
viðskiptabanka og allra sem senda þér bréf. Pósturinn sér
ekki um slíkar tilkynningar.
Áframsending er í boði fyrir þá sem flytja innanlands.
Almennar bréfasendingar sem stílaðar eru á gamla heimilis-
fangið eru þá áframsendar á nýja heimilisfangið.
Biðpóstur er í boði fyrir þá sem eru ekki heima hjá sér
tímabundið. Pósturinn þinn áframsendir á umbeðið pósthús
þar sem þú getur nálgast hann þegar þér hentar.
Sækja þarf um ofangreinda þjónustu á postur.is eða næsta
pósthúsi. Áframsendingargjald fyrir þrjá mánuði er 990 kr.
og mánaðargjald fyrir biðpóst er 580 kr.
Að sjálfsögðu er hægt að tilkynna um flutning án þess að
greiða þjónustugjald en þá mun áframsending ekki taka
gildi og endursenda verður þau bréf sem berast á gamla
heimilisfangið.
Magnús Stefánsson
félagsmálaráðherra kynnti
aðgerðaáætlun íslenskra stjórn-
valda vegna heimilis- og kynferðis-
legs ofbeldis á kvennanefndarfundi
Sameinuðu þjóðanna í New York.
Meginefni fundarins er mismunun
og ofbeldi gegn stúlkum.
Magnús kallaði barnaofbeldi
„andstyggileg mannréttindabrot“
og tók undir niðurstöðu skýrslu
SÞ um að það væri á ábyrgð ríkja
að grípa til fyrirbyggjandi ráðstaf-
ana. Íslensk stjórnvöld hafa veitt
fé til aðgerða í Sierra Leone til að
auðvelda börnum sem hafa verið
þvinguð til hermennsku aftur-
hvarf til eðlilegs lífs.
Ráðstafanir á
ábyrgð ríkja
Hans Jesper Helsø,
yfirmaður danska heraflans, segist
eiga bágt með að sjá þörf á því að
orrustuþotur séu að staðaldri á
Íslandi. Hann segir Dani áhuga-
sama um að nýta Keflavíkurflug-
völl til flugheræfinga, í samstarfi
við fleiri Atlantshafsbandalagsríki.
Helsø segist vænta þess að unnt
verði að undirrita með vorinu
samninga um slíkt og annað sam-
starf Íslendinga og Dana um örygg-
is- og varnarmál.
„Það eru nokkur bandalagsríki,
og bandalagið sjálft sem slíkt, sem
hafa hagsmuna að gæta á Norður-
Atlantshafi og hafa áhuga á að taka
með virkum hætti þátt í að tryggja
öryggi á svæðinu,“ segir Helsø og
bætir við: „Drífum í því strax í ár
að koma á virku samstarfi um
æfingar og kerfisbundin skipti á
upplýsingum.“
Auk Íslands og Danmerkur nefn-
ir Helsø í þessu samhengi Banda-
ríkin, Noreg, Kanada og Bretland.
Helsø segist hafa lesið ræðu Val-
gerðar Sverrisdóttur utanríkisráð-
herra um öryggis- og varnarmál,
sem hún flutti fyrir mánuði. Hann
sjái ýmislegt jákvætt í ræðunni,
einkum er varðar Íslensku friðar-
gæsluna. Í friðargæsluverkefni á
borð við það sem NATO sinnir nú í
Afganistan sé alltaf þörf á borgara-
legum sérfræðingum á borð við
verkfræðinga, flugumferðarstjóra,
hjúkrunarfólk og tölvunarfræðinga.
Sjálfur hafi hann hitt íslensku
sprengjusérfræðingana, sem um
tíma þjónuðu með danskri herdeild í
Írak, og sannfærst um að þar færu
mjög hæfir menn. Helsø segist vel
geta séð fyrir sér aukið samstarf
Íslendinga og Dana af þessu taginu,
þar sem Íslendingar legðu til borg-
aralega sérfræðinga en Danir vopn-
aða hermenn.
Samningar við Bandaríkjamenn
um rekstur Íslenska loftvarnakerf-
isins (IADS) rennur út um miðjan
ágúst næstkomandi.
Helsø segir að NATO þurfi að
meta þörfina á íslenska kerfinu
fyrir loftvarnakerfi sitt. Hvort þörf
sé á að reka það í óbreyttri mynd
áfram þori hann ekki að segja til
um, enda hafi tæknibreytingar
einnig mikil áhrif þar á. NATO
ákvað að ekki væri lengur þörf á
ratsjárstöðinni í Færeyjum, sem
þar var rekin þar til um síðustu ára-
mót, og því spurning hvort banda-
lagið sjái ástæðu til að reka áfram
fjórar ratsjárstöðvar á Íslandi.
Ljóst sé að minnsta kosti, að
allar aðildarþjóðirnar 26 þyrftu að
vera sammála um þörfina á kerf-
inu, í núverandi eða breyttri mynd,
til að grundvöllur skapaðist fyrir
kostnaðarþátttöku bandalagsins.
Áhugi á flug-
æfingum hér
Þróunar-
félag Keflavíkurflugvallar hefur
keypt ýmsan búnað og húsgögn
sem áður voru í mannvirkjum
Bandaríkjahers á Keflavíkurflug-
velli.
Varnarliðið seldi Geymslu-
svæðinu búnaðinn áður en það
hvarf af landi brott og skilaði
svæðinu til íslenskra stjórnvalda.
Meðal þess sem Þróunarfélagið
keypti eru húsgögn og annar nauð-
synlegur búnaður í kapelluna á
Vellinum en hún þjónaði mörgum
trúarhópum. Kjartan Þór Eiríks-
son, framkvæmdastjóri Þróunar-
félagsins, segir að þar á meðal séu
ræðustóll og orgel en hann hefur
ekki vitneskju um altaristafla hafi
verið í kapellunni.
„Við keyptum bara það sem við
álitum að hefði þýðingu fyrir
okkur,“ segir Kjartan en auk org-
els og stóls nefnir hann búnað í
veitingasal kapellunnar, tæki og
tól sem notuð voru í íþróttahúsi
staðarins og búnað til að þrífa
sundlaugar. Kjartan vill ekki gefa
upp hvert kaupverðið var en segir
að það nemi einhverjum milljón-
um króna.
Kaupir orgel og ræðustól
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Tunglmyrkvi sást víða
um heim á laugardagskvöld og
aðfaranótt sunnudags. Hér á landi
sást myrkvinn víða þótt skýjað
hafi verið í höfuðborginni.
Almyrkvinn hófst um stundar-
fjórðungi fyrir klukkan ellefu og
lauk um miðnættið. Áhugasamir
fylgdust með hvernig tunglið
dökknaði og roðnaði en tungl-
myrkvi hefur ekki sést á Íslandi
síðan í október 2004.
Tunglmyrkvi verður þegar
tunglið gengur inn í skugga jarð-
ar á sama tíma og jörðin er á milli
sólar og tungls. Fyrirbrigðið er
ekki sjaldgæft og stundum sjást
tveir tunglmyrkvar á ári.
Yfirmaður danska hersins telur óþarft að orrustuþotur
séu á Íslandi en gæta þurfi öryggis á N-Atlantshafi.