Fréttablaðið - 05.03.2007, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 05.03.2007, Blaðsíða 14
fréttir og fróðleikur Mótstöðuafl líkamans endist í 60 daga Vi nn in ga r v er ða af he nd ir hj á BT Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þv í a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M Sk lú bb . 9 9 kr /s ke yt ið . HÖRKU HASARMYND FRÁ LEIKSTJÓRA NARC Sendu SMS skeytið JA SAF á númerið1900 og þú gætir unnið miða fyrir tvo! Vinningar eru:Miðar á myndina, fullt af Pepsi, DVD myndir og margt fleira FUMSÝND 2. MARS Fjarskiptamiðstöð lög- reglunnar fékk árið 2005 að meðaltali um 220 verk- efnatengd símtöl á dag í gegnum neyðarnúmerið 112. Allan sólarhringinn vinna lögreglumenn að því að samþætta störf lögreglu og annarra sem sinna björgunarstörfum, um allt land. Fréttablaðið heimsótti fjarskiptamiðstöðina. „Fjarskiptamiðstöðin hefur gjör- breytt okkar starfi til hins betra. Áður en hún kom til þurfti alltaf að vera fastur starfsmaður inni á lögreglustöðinni á meðan við sinntum oft á tíðum vandasömum verkefnum en núna geta allir starfsmenn embættisins verið úti að störfum,“ segir Hlynur Snorra- son, lögreglufulltrúi á Ísafirði, um þá breytingu sem orðið hefur á störfum lögreglu síðan Fjar- skiptamiðstöð lögreglunnar í Skógarhlíð var komið á laggirnar árið 2000. Tæplega 80 þúsund verkefna- tengd símtöl bárust til fjarskipta- miðstöðvarinnar árið 2005 en þeim hefur fjölgað jafnt og þétt frá stofnun. Þannig fjölgaði símtölum til miðstöðvarinnar frá Neyðarlín- unni um rúmlega tólf þúsund frá 2004 til og með 2005. Samkvæmt upplýsingum frá Hjálmari Björg- vinssyni aðstoðaryfirlögreglu- þjóni hjá embætti ríkislögreglu- stjóra fjölgaði símtölum nokkuð á síðasta ári frá því árinu á undan en samantekt á upplýsingum, fyrir ársskýrslu lögreglunnar fyrir árið 2006, stendur nú yfir. Vafalaust er að stytting viðbragðs- tíma í aðgerðum lögreglunnar, vítt og breitt um landið, hefur í mörg- um tilvikum bjargað mannslífum. Sérstaklega hefur fjarskiptamið- stöðin hjálpað til við að greiða fyrir sjúkraflutningum, en í þeim tilfellum getur hver sekúnda skipt sköpum. Aukin skilvirkni sem fjarskiptamiðstöðin hefur fært lögreglunni hefur þannig aukið öryggi og eflt starf lögreglunnar til mikilla muna. Um það eru allir æðstu yfirmenn lögreglunnar, sem rætt var við er þessi frétt- skýring var unnin, sammála. Jón Bjartmarz, yfirlögreglu- þjónn hjá Ríkislögreglustjóra og yfirmaður þess sviðs sem fer með málefni fjarskiptamiðstöðvarinn- ar, segir þjónustu við borgaranna hafa batnað með tilkomu fjar- skiptamiðstöðvarinnar. „Það skipt- ir miklu máli fyrir þann sem er í neyðinni [hverju sinni] að sam- skipti milli allra þeirra sem koma að því að aðstoða með öllum mögu- legum hætti gangi sem best og skipulega. Tilkoma fjarskiptamið- stöðvarinnar, og ekki síst uppsetn- ing Tetra-kerfisins, hefur gjörbylt og bætt starfslag lögreglu til mik- illa muna.“ Tetra-kerfið, stafrænt þráðlaust fjarskiptakerfi sem notað er til tals og gagnaflutninga við dagleg störf lögreglu, verður nothæft um land allt frá 1. maí á þessu ári. Frá því Tetra-kerfið var tekið í notkun á sumarmánuðum árið 2000 hefur samvinna lögreglu, björgunar- sveita, Landhelgisgæslunnar og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins orðið nánari og skilvirkari. Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra segir Tetra-væðingu alls landsins einstaka á alþjóðavísu. „Allt starfið, sem unnið er [í fjar- skiptamiðstöðinni] í Skógarhlíð er í raun byltingarkennt. Þar hefur tekist á einstaklega farsælan hátt að samhæfa krafta þeirra sem gæta öryggis borgaranna. Fjar- skiptamiðstöðin hefur margsannað gildi sitt og reynst ómetanleg í mörgum flóknum aðgerðum lög- reglu,“ segir Björn. Hann nefnir einnig að Tetra-væðing landsins í heild sé mikið framfaraspor. „Tetra-væðingin, sem ákveðin hefur verið og mun ná til landsins alls, er einsdæmi og í mörgu tilliti hefur okkur Íslendingum tekist að vera mörgum skrefum á undan öðrum þjóðum í þessu efni. Ég þakka það ekki síst hinu góða sam- starfi sem tekist hefur í Skógarhlíð og reynslu þeirra sem þar starfa af því að stilla saman strengi sína þegar mest á reynir. Frumvarp til laga um almannavarnir, sem ég hef hug á að leggja fram til kynningar fyrir þinglok í vor, tekur mið af þessari dýrmætu reynslu allri og stefnir að því að festa samstarfið enn betur í sessi.“ Starfsmenn Neyðarlínunnar eru að meðaltali 3,4 sekúndur að svara þegar hringt er í Neyðarlínuna. Viðundandi mörk, samkvæmt alþjóðlegum stöðlum, eru átta sek- úndur en Neyðarlínan hefur aldrei, svo vitað sé, verið lengur að svara en sem því nemur sam- kvæmt upplýsingum frá Kristjáni Hoffman, gæðastjóra Neyðarlín- unnar. Í flestum tilfellum er símtal Neyðarlínunnar flutt til fjar- skiptamiðstöðvarinnar sem metur hvert einstakt tilvik fyrir sig. Með Tetra-kerfinu getur lögreglan séð á skjá hvaða lögreglubílar eru næst vettvangi. Þannig getur hún leiðbeint lögreglu- og sjúkraflutn- ingamönnum og tekið þátt í að samþætta störf þeirra, meðal ann- ars með því að loka fyrir umferð á vegum til þess að flýta fyrir því að sjúklingar komist undir læknis- hendur, sem vitanlega getur skipt sköpum. Styttri viðbragðstími bjargar lífum Tryggja besta verðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.