Fréttablaðið - 05.03.2007, Side 18
Windows Vista hefur á síðustu
vikum verið helsta umræðuefni
tölvuheimsins. Flestir eru sam-
mála að þetta sé besta stýri-
kerfi Microsoft hingað til, en
eins og svo margt nýtt þaðan
virðist það meingallað.
Þegar Bill Gates kynnti Microsoft
Vista fyrir umheiminum lofaði
hann „byltingarkenndri reynslu á
tölvu“. Flestum var ljóst að þetta
væri lítið annað en auglýsinga-
brella enda jafn miklar líkur á að
Microsoft sendi frá sér vel starf-
hæft forrit í fyrstu tilraun og að
Íslendingar vinni heimsmeistara-
keppina í knattspyrnu. Það kom
líka á daginn að stýrikerfið er upp-
fullt af smærri og stærri göllum.
Gagnrýnendur og notendur eru
flestir sammála um að Vista er
langbest útlítandi stýrikerfi sem
Microsoft hefur sent frá sér þrátt
fyrir gallana. Annað væri líka
lélegt í ljósi stöðugra tæknifram-
fara á sviði vélbúnaðar. Flestir eru
líka sammála, nú þegar nokkur
reynsla hefur fengist á kerfið, um
að það sé einfaldlega það besta
sem Microsoft hefur sent frá sér.
Notendaviðmót, skipulagning og
aðgengi er mun betra en í eldri
stýrikerfum, og það þrátt fyrir að
Vista sé enn eins og lítið barn, geri
ekki alltaf það sem maður segir
því að gera.
Helstu umkvörtunarefnin eru
hversu þungt það getur reynst í
vöfum. Einungis nýjustu og öflug-
ustu tölvurnar ráða við kerfið og
fyrir þá sem ekki hafa uppfært
tækjakost á síðasta ári er betra að
halda sig við Windows XP, nema
auðvitað tölvan hafi verið þeim
mun öflugri er hún var keypt.
annar galli sem oft er nefndur er
hversu ósamræmanlegt kerfið er
mörgum myndavélum. Þegar
kemur að því að flytja myndir frá
stafrænni myndavél yfir á tölvu
virðist Vista í mörgum tilfellum
ekki vera starfinu vaxið og í
verstu tilfellunum hverfa heilu
myndamöppurnar sporlaust.
Windows Vista er að flestra
mati áframhaldandi þróun en ekki
umbylting. Kerfið hefur mikið af
nýjum og sniðugum möguleikum,
en þeir sem virkilega skipta máli
hafa gleymst. Enn og aftur hefur
Microsoft, þrátt fyrir alla sína
reynslu, mannauð, og fjárráð, sett
á markað vöru sem einfaldlega
var ekki tilbúin. Þetta verður án
efa lagað í næstu útgáfum, en
fyrir flesta dugir XP fyllilega
þangað til.
Þróun frekar en bylting