Fréttablaðið - 05.03.2007, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 05.03.2007, Blaðsíða 22
fréttablaðið fasteignir2 5. MARS 2007 Víðiblaðlús er í raun þrjár nauðalíkar tegundir, þ.e. slútlús, kvistlús og svignalús. Þær hafa verið kallaðar einu nafni víðiblaðlýs. Nöfnin svigi og slútur eru gömul heiti á víði.Þetta eru litlar, gulgrænar lýs sem lifa af veturinn. Cavariella aegopodii er minnst þeirra og er um 1,2-2,0 mm að lengd, Cavariella aecbangelicae sem er 2,0 - 2,3 mm og Cavariella konoi er stærst eða 2,3 -2,5 mm að lengd. Þær fjölga sér áfram með kynlausri æxlun. Víðblaðlýs finnast um allt land. Í byrjun sumars klekjast úr eggjum svokallaðar stofnmæður sem geta af sér nýja kynslóð sem fjölgar sér með meyfæðingu. Þá koma fram kven– og karldýr sem makast og kvendýrið verpir síðan á börk víðisins sem bíður síðan til næsta vors. Seinna þegar líða fer á sumarið koma vængjaðar lýs sem fljúga yfir á aðrar jurtir eins og t.d. hvönn. Það er þó aðeins brot af stofninum sem þetta gerir. Á sumrin færa þær sig yfir á aðrar plöntur en stærsti hluti stofnsins er á víði allt sumarið. Víðiblaðlúsin leggst einkum á blöð yngstu sprotanna. Þegar haustar fljúga þær yfir á víði aftur. Þetta háttalag kalla fræðimenn hýsilskipti. VARNAÐARORÐ Þegar fólk þarf að fá til sín meindýraeyði eða garðúðara þá skal alltaf óska eftir að sjá starfsskírteini útgefið af Umhverfisstofnun og eiturefnaleyfi gefið út af lögreglustjóra/sýslumanni og starfsleyfi frá viðkomandi sveitafélagi. Heimildir: Upplýsingar og fróðleikur um Meindýr og Varnir 2004: Guðmundur Óli Scheving, Dulin veröld 2002: Guðmundur Halldórsson, Oddur Sigurðsson, Erling Ólafsson, Meindýr í húsum og gróðri 1944: Geir Gígja. Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að að senda fyrirspurn á netfangið: gudmunduroli@simnet.is Víðiblaðlús (Cavariella spp.) Sölvi Fannar Viðarsson einkaþjálfari á margar góðar minningar um fyrstu íbúðina sína, ekki síst fyrir tilstuðlan sonar síns. É g flutti úr foreldrahúsum 19 ára og inn til fyrri konu minnar, sem bjó í Hraunbæ 4,“ segir Sölvi Fannar Viðarsson, einkaþjálfari og höfundur bókar- innar Kaloríukvótinn. „Þetta var snyrtileg og vel frá gengin 70 fer- metra blokkaríbúð. Það er svolítið fyndið að við keyptum okkur síðan stærri íbúð ofar í sama stigagangi þegar við eignuðumst soninn Valdimar Fannar og fluttum inn eftir að við gerðum hana upp.“ Sölvi segist eiga margar skemmtilega minningar frá þess- um tíma, ekki síst fyrir tilstuðlan Valdimars, sem hann segir með einsdæmum stríðinn eins og hann eigi kyn til. „Mér er sérstaklega minnisstætt þegar Valdimar tók upp á því aðeins þriggja ára að skríða inn í þurrkarann til að fela sig fyrir okkur. Ég skil ekki enn hvernig hann fór að því, en honum tókst með einhverjum hætti að loka þurrkarahurðinni. Þegar við fundum hann spurðum við undr- andi hvað honum gengi eiginlega til. Þá brosti hann bara og sagðist hafa viljað koma okkur á óvart.“ Sölvi segir staðsetningu íbúð- arinnar hafa verið einn hennar helstu kosta. „Þetta er svo gott fjölskylduumhverfi. Til að mynda er stutt í Elliðaárdalinn. Ég fór oft þangað með Valdimar á veturna, þegar hann var tveggja ára, og hljóp þá með hann í sleða hringinn í kringum stífluna ef það var snjór. Þegar hann fór að ganga fór hann sjálfur að hlaupa stífluhringinn og gerir það leikandi létt í dag enda orðinn mikill íþróttagarpur eins og pabbi sinn. Það sannar kannski að krókurinn beygist snemma.“ - rve Faldi sig í þurrkaranum 3 ára Feðgarnir Sölvi Fannar Viðarsson og Valdimar Fannar sjást hér benda á bjöllu sitt- hvorrar íbúðarinnar sem þeir bjuggu í í Hraunbæ 4. Sölvi flutti úr húsinu eftir fjögur ár en býr nú skáhallt á móti gömlu íbúðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FYRSTA ÍBÚÐIN Meindýr og meindýravarnir Guðmundur Óli Scheving Félag fasteignasala Skúlagata 17 • 101 Reykjavík • Sími: 566 8800 • E-mail: vidskiptahusid@vidskiptahusid.is • www.vidskiptahusid.is Fr u m Kaplahraun í Hafnarfirði Gott atvinnuhúsnæði 2361,5 fm, skv. FMR, að mestu leyti ein skemma en innréttað að hluta sem skrifstofa og starfsmannaaðstaða á millilofti. Stór afgirt lóð, alls 7.494,1 fm. Verð 350 milljónir. Würth - húsið Vesturhrauni í Hafnarfirði Höfum í einkasölu þetta vel staðsetta hús, alls 1944 fm þar af milliloft 432 fm sem eru skrifstofur og starfsmannaaðstaða. Góð lofthæð og 5 stórar innkeyrsludyr. Lóðin er 15.000 fm með góðum byggingarétti. Tilboð óskast í eignina. Garðabær nýtt iðnaðar og lagerhúsnæði Á hraununum í Garðabæ. Stærð 1.699 fm með millilofti. Lóð 4.855 fm. Glæsilegt hús. Verð 210 milljónir. Suðurlandsbraut - Reykjavík Afar vel staðsett verslunar- og skrifstofuhúsnæði á þessum vinsæla stað í Reykjavík. Húsið skiptist í fram og bakhús. Húsið er á þremur hæðum og samþykki liggur fyrir umtalsverði stækkun hússins. Verð 650 milljónir. Bæjarflöt Grafarvogi Gott húsnæði 1200 fm á einni hæð með ca 200 fm millilofti. Sér afgirt lóð 3800 fm. Verð 200 milljónir. Bæjarlind, Kópavogi, 251,9 fm. skrifstofuhúsnæði. Bæjarlind, Kópavogi, 425 fm. skrifstofuhúsnæði. Stórhöfði, Reykjavík, 440 fm. skrifstofuhúsnæði. Skeifan, Reykjavík, 280 fm. skrifstofuhúsnæði Skeifan 7, Reykjavík, 300 fm. skrifstofuhúsnæði. Skeifan, Reykjavík, 278,9 fm. iðnaðarhúsnæði, 2 innkeyrsludyr. Tunguháls, 2 skrifstofuhæðir alls um 600 fm. Glæsilegt útsýni. Jóhann Ólafsson Löggiltur FSS Gsm: 863 6323 johann@vidskiptahusid.is Jón S. Sigurjónsson Hdl. & Löggiltur FSS Gsm: 893 3003 jon@vidskiptahusid.is Haraldur A. Haraldsson Viðskiptafræðingur Gsm: 690 3655 haraldur@vidskiptahusid.is Þórhallur Björnsson Löggiltur leigumiðlari Sölumaður Gsm: 899 6520 thorhallur@vidskiptahusid.is LEIGUHÚSNÆÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.