Fréttablaðið - 05.03.2007, Síða 28

Fréttablaðið - 05.03.2007, Síða 28
fréttablaðið fasteignir8 5. MARS 2007 Stórhýsi við Borgartún 26 er óðum að taka á sig mynd enda á það að verða fullgert að utanverðu í apríl. B látt, grænt og fjólublátt gler prýðir nýja stórhýsið sem risið er að Borg-artúni 26. Sums staðar er glerið gegnsætt en annars staðar er það ógegn- sætt og hylur þá burðarvirki hússins, að sögn Arnbergs Þorvaldssonar, byggingar- stjóra hjá Íslenskum aðalverktökum. Hann segir glerið koma tilbúið til landsins. Sömu- leiðis er fluttur inn hvítur sandur og hvítt sement í steypu hússins að hluta. „Við lögð- um áherslu á að nota sem mest gegnheil efni sem þola aldur og veðrun,“ segir Hans Olav Andersen hjá arkitektastofunni Tröð sem er höfundur teikninga. „Reyndar verð- ur smá timburklæðning á fyrstu hæð í kringum stigahúsið. Mest til að gefa hlý- legan blæ. Það verður auðvelt að mála yfir hana ef hún verður fyrir hnjaski.“ Húsið er óðum að taka á sig mynd enda á það að verða fullgert að utanverðu í apríl. Það er 17 þúsund fermetrar að stærð, þar af 12 þúsund ofanjarðar, á átta og fimm hæðum. Jarðhæðin á að hýsa bankastarf- semi og búðir, meðal annars 10-11 verslun. Ofar verða skrifstofur og fundaherbergi. Undir húsinu er fimm þúsund fermetra bílastæðakjallari sem ekið er niður í frá vesturenda þess. Að hluta til stendur húsið á steyptum súlum. Á bakhliðinni ná þær átta metra hæð. Húsið er í eigu Þyrpingar en Íslenskir aðalverktakar sjá um smíðina. gun@frettabladid.is Hvít steypa og litað gler Glerið er gegnsætt í hvíta hluta hússins. Dökk zink-klæðning kallast á við marglitt gler og hvíta steypu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA HVAÐ ER VERIÐ AÐ BYGGJA? Lýsing: Komið er inn í flísalagða forstofu með skápum. Eldhúsið er rúmgott með viðarinn- réttingu, borðkrók og flísum á gólfi. Stofan er samliggjandi borðstofu, þar er parket á gólfum og úr stofunni er útgengt út á sólríkan og skjólgóðan pall. Hol sem nýtt er sem sjónvarpsrými. Svefnherbergi eru þrjú, tvö barnaherbergi og hjónaherbergi, öll parketlögð og með rúmgóðum skápum. Baðherbergi er með baðkari og sturtu með hleðslugleri að hluta. Flísar á gólfi og upp á miðja veggi. Hiti í gólfi. Innréttingar og parket eru úr dökkum viði. Annað: Í sameign er séreignargeymsla og sameiginleg hjóla/vagnageymsla. Salarhverfið er barnvænt og rólegt, stutt í sundlaug, grunnskóla og verslanir. Verð: 32,9 milljónir Fermetrar: 126,1 Fasteignasala: Nýtt heimili 201 Kópavogur: Stutt í alla þjónustu Björtusalir 6: Fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð Fr u m Einbýli Hrísholt, 210 Gbr. Verð: 59,5 Stærð: 280,4 Herb: 5. Einbýlishús með tvöföldum bílskúr og góðu útsýni. Æðisleg verönd með heitum potti og fallegur garður. Frábær staðsetning í lokaðri götu. Breiðahvarf, 203 Kóp. Verð: 75,5 Stærð: 404 fm Herb: 8. Stórglæsilegt einbýlishús með hest- húsi eða gestahúsi á stórri lóð. Frábær staðsetning, góð hönnun. Skilast fokhelt að innan fullklárað að ut- an með grófjafnaðri lóð. Rað- og parhús Gvendargeisli 128-166, 113 Rvk. Verð: 42.8 Stærð: 168 fm Herb: 4. Raðhús á einni hæð sem skiptist í íbúð 140 fm og bílskúr 28 fm Hús- in eru hönnuð fyrir nútíma fjölskyldur með öllum mögulegum þægindum og þykja mjög vel heppnuð. Aðeins 3. hús eftir. 3ja herb. Stóragerði, 108 Rvk. Verð: 22,9 Stærð: 102,1 Herb: 3. Falleg, rúmgóð íbúð með sér-inngangi í æðislegu umhverfi. Nýlegt parket á gólfum. Stofan er mjög stór, björt með gluggum á tvo vegu. Íbúðin er lítið niðurgrafin. Húsinu er vel viðhaldið. Kleppsvegur, 104 Rvk. Verð: 14,9 Stærð: 62,8 Herb: 3. Búið er að endurnýja ofna og ofnalagn- ir. Töluvert upprunaleg. Íbúð á 2. hæð. Er í leigu til 1. júní 2007 fyrir kr 95.000.- á mán. 4ra herb Gautavík, 112 Rvk. Verð: 31,5 Stærð: 121 Herb: 4. Glæsileg efri hæð með sér-inngangi og mikilli lofthæð. Gegnheilar eikar innréttingar. Fjórar íbúðir eru í húsinu. Parketlögð gólf og þvottarými innan íbúðar. Bólstaðarhlíð, 105 Rvk. Verð: 23,5 Stærð: 90 fm Herb: 4. Mikið endurnýjuð íbúð með sér-inngangi og sér sólpalli í kjallara. Húsinu er vel viðhaldið og garðurinn er fallegur og snyrtilegur. Baðherbergi endurnýjað og glæsilegt. 5 herb. Jörfabakki, 109 Rvk. Verð: 19.6 Stærð: 112 fm Herb: 5. Íbúð á þriðju hæð (efstu) ásamt 12,5 fm aukaherbergi og sér geymslu í kjallara. Góð aðstaða fylgir aukaherberginu s.s. sturta og salerni. Eldriborgarar Miðleiti, 103 Rvk. Verð: 44.7 Stærð: 111,4 Herb: 3. Mjög fín íbúð fyrir eldri borgara í góðu lyftuhúsi. Íbúðin er 3ja herbergja ásamt stæði í bíla- geymslu. Mikil þjónusta er við fólk í húsinu. Sam- eign til fyrirmyndar. Atvinnuhúsnæði Grensásvegur, 108 Rvk. Verð: 27,5 Stærð: 226. Skrifstofu hæð. Fullkomið hljóð- ver/stúdíó ásamt skrifstofum. Hægt er að skipta húsnæðinu í þrennt. Þarna er mjög góð aðstaða til upptöku. 2. hæð til vinstri. Völuteigur, 270 Mos. 4. innkeyrslubil 272 fm að stærð. Atvinnuhúsnæði (stálgreindarhús) með stórum innkeyrsluhurðum 3,8 m og 3,0 m og mikilli lofthæð 6,8 m. Alls er húsnæðið með 21. inn- keyrsluhurð. Funahöfði, 110 Rvk. Verð 75,0 Stærð 607 fm. MÖGULEG HERBERGJAÚTLEIGA. Búið er að teikna allt upp, byrjað var á verkinu, en það aldrei klárað. teiknuð eru 29. herbergi ásamt salernum og eldhúsaðstöðu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.