Fréttablaðið - 05.03.2007, Blaðsíða 44
fréttablaðið fasteignir24 5. MARS 2007
Næturbirtan getur umbreytt heilu hverfunum í undarleg ævin-
týralönd.
Nörfi eða Narfi hét jötunn er byggði í Jötunheimum. Hann átti dóttur er
Nótt hét. Hún var svört og dökk sem hún átti ætt til.
Á nóttunni fara kettir og kynjaverur á stjá meðan flestar mannskepn-
ur ganga til hvílu. Litirnir, sem á daginn skarta sínu fegursta, renna
saman í einn óræðan næturlit svo erfitt getur verið að greina útlínur.
Sumir kjósa því að lýsa upp fallegar byggingar á nóttunni og getur það
oft verið tilkomumikil sýn. Hallgrímskirkja og Háskóli Íslands eru
meðal þeirra bygginga sem Reykvíkingar lýsa upp á nóttunni, flestum
borgarbúum til ánægju og yndisauka.
Stundum getur verið gaman að fara á stjá á nóttunni og virða fyrir
sér umhverfið í öðru ljósi. Sérstaklega var það skemmtilegt þegar Orku-
veitan tók sig til á síðasta ári og slökkti á ljósastaurum borgarinnar. Göt-
urnar fylltust af fólki sem vildi skoða næturhimininn, en öllu áhugaverð-
ara þótti mörgum að aka um borgina í dimmunni líkt og ekið væri um
framandi og undarlegt draumaland. - mhg
Meðan nóttin líður
Sá eða sú sem lét byggja þetta tilkomumikla og sérkennilega hús í Cuenca á Spáni hefur eflaust ekki fundið mikið fyrir loft-
hræðslu.
Parísarborg með Sacre-Coeur kirkjuna í bakgrunni. Kirkjan var byggð af kaþólikkum á Monmartre-hæð sem tákn um eftirsjá og
von eftir stríðið 1870. Hafist var handa við bygginguna árið 1876 en kirkjan sjálf var ekki vígð fyrr en árið 1919.
Bærinn Casares í Andalúsíuhéraði á Spáni hvílir hér í bláum skugga. Þar eru húsin
hvítþvegin á hverju ári.
Þetta sérkennilega og ævintýralega hverfi er að finna í Þýskalandi en auðvelt er að
ímynda sér Hans og Grétu leggja í hann frá einu slíku húsi.
Casa Batllo húsið í Barcelona var hannað af hinum merka arkitekt Antoni Gaudi
(1852-1926) fyrir textílframleiðandann Josep Batllo. Byggingin, sem er einkar
sérkennileg og falleg sameinar nokkra stíla í senn, meðal annars art Nouveau, súr-
realisma og ný-gotnesk áhrif.