Fréttablaðið - 05.03.2007, Síða 57

Fréttablaðið - 05.03.2007, Síða 57
Það fór ekki fram hjá neinum, hvorki stuðningsmönnum Sam- fylkingarinnar eða hvað þá heldur andstæðingum hennar, að með glæsilegu kjöri Ingibjargar Sólrún- ar Gísladóttur til formanns Sam- fylkingarinnar var kominn kven- skörungur með mikla reynslu og stjórnunarhæfileika í hóp stjórn- málaforingja á Íslandi. Ég vil taka það fram að ég er mjög hreyk- inn af því að hafa átt þátt í þeirri kosningu ekki síður en þeim góðu minningum frá kosningabar- áttu Vigdísar Finnbogadóttur á sínum tíma og glæsilegum sigri hennar í forsetakosningunum þá. Það hefur hins vegar ekki dulist neinum sem fylgst hafa með stjórn- málum undanfarna mánuði að and- stæðingar okkar óttast ekkert meira en konuna í brúnni og kannski ekki að ástæðulausu. Þeir hafa notað öll tækifæri sem hugnast getur til að gera málflutning hennar tortryggi- legan í augum almennings. Þar má einu gilda hvort rætt er um okur- vexti, matvælaverð, skuldasöfnun heimilanna eða landbúnaðarmál, svo fátt eitt sé nefnt. Mér hefur reyndar stundum dottið í hug að undanförnu hvort að á Íslandi sé skipulagður karlrembuhópur sem leggi sig allan fram við að koma í veg fyrir pólitískan frama hjá konum, sama í hvaða flokki þær sækja fram. Nýjustu dæmin eru Siv Friðleifsdóttir, Jónína Bjartmarz og Margrét Sverrisdóttir. Þar sem Ingibjörg Sólrún náði markmiði sínu beinast nú öll spót að henni og ganga sumir þar býsna langt. Það er áhyggjuefni ef við félag- ar hennar í Samfylkingunni teljum að hún eigi ein að sjá um alla kosn- ingabaráttuna en aðrir Samfylking- arfélagar geti bara slappað af og beðið eftir kosningunum 12. maí n.k. Það er von mín að þessar áhyggjur mínar séu ekki á rökum reistar. Við þurfum margar baráttu- ræður eins og gamli karlinn úr brúnni, Jón Baldvin Hannibalsson, þrumaði yfir okkur sem sóttu kjör- dæmisþing Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi er haldið var að Reykjum í Hrútafirði skömmu fyrir jól. Að lokum vil ég skora á alla sem aðhyllast félagshyggju og jöfnuð að bretta upp ermar og fara að vinna ötulega að glæstum sigri Samfylk- ingarinnar 12. maí n.k. Baráttu- kveðjur, X-S. Höfundur er verkamaður og formaður Samfylkingarfélagsins í A-Húnavatnssýslu. Traustur leiðtogi Hversvegna ? Stuðningur sem þú treystir, þægindi sem þú elskar Stærsti rúmaframleiðandi í heimi! Hversvegna ? Sealy Posturepedic eru vinsælustu heilsurúm Bandaríkjanna síðastliðin 30 ár. Sealy eyðir meiri fjármunum í vöruþróun en allir aðrir dýnuframleiðendur heims. Nýjung! Öll Sealy rúm eru með MicroTech botni sem tryggður er gegn braki. Hversvegna ? Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Egilsstaðir: Miðvangur 1, sími: 471 2954 Opið: mán-fös. 10-18 og lau. 11-15 Sérhannaður styrktarkantur Uni Cased sem tryggir hámarks- nýtingu á svefnfleti, ásamt því að kantar dýnunnar veita betri stuðning. „Thermo Bond“ uppbyggingin dregur úr hreyfingu á milli einstaklinga í sama rúmi. Hversvegna ? MikroTech neðri dýnan er sterkari og sveigjanlegri en aðrir botnar og með MicroSpan dempurum sem festir eru ofan á viðar og stálbita í botni neðri dýnunnar. Stálið og MicroSpan efnið sjá um órtúlega langa endingu neðri dýnunnar. Einkaleyfin 4 frá Sealy: Hversvegna ? DSS gormurinn gefur tvenns konar stuðning. Léttan stuðning við lögun líkamans og réttan bakstuðning frá sjónarhóli læknavísindanna. Posturepedic gormurinn DSS gormurinn Micro Tech Uni cased Hversvegna ? No flip, það þarf aldrei að snúa Sealy dýnu. Sealy Posturepedic gormurinn sem er hjartað í heilsudýnunni, er hannaður í samvinnu við nokkra færustu bæklunarskurðlækna Bandaríkjanna. Hann bregst mismunandi við þyngd og því geta tveir misþungir einstaklingar notað sömu dýnuna.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.