Fréttablaðið - 05.03.2007, Page 58
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysin-
gar@frettabladid.is eða hringja í
síma 550 5000.
Íslandsdeild skiptinemasamtakanna
Alþjóðleg fræðsla og samskipti, AFS,
fagnar hálfrar aldar afmæli í ár. AFS
eru alþjóðleg sjálfboðaliðasamtök sem
starfa á sviði alþjóðlegrar fræðslu og
samskipta í 52 löndum.
„Samtökin eiga rætur að rekja til
fyrri heimsstyrjaldar,“ segir Rósa
Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
AFS á Íslandi. „Sjúkraflutningabíl-
stjórar sem höfðu verið á vígvöllunum
vildu stuðla að heimsfriði og koma í
veg fyrir hörmungar eins og þær sem
þeir horfðu upp á. Í þeim tilgangi stofn-
uðu þeir skiptinemasamtökin árið 1947
til að fá ungt fólk til að ferðast á milli
landa og kynnast ólíkri menningu, sem
myndi ýta undir umburðarlyndi og
skilning.“
Íslandsdeild AFS var stofnuð árið
1957, tíu árum eftir að samtökin voru
stofnuð. Í fyrra fóru 162 íslenskir
skiptinemar á aldrinum 15-18 ára til
32 landa á vegum AFS og rúmlega 40
erlendir nemar komu hingað til árs-
dvalar í ágúst síðastliðnum. Rósa segir
að íslenskir skiptinemar sæki flestir
til Suður-Ameríku. „Tæp 40 prósent af
okkar skiptinemum fara þangað. Ætli
Íslendingar séu ekki dálítið suður-
amerískir í sér,“ segir hún og hlær.
Fimmtugasti aðalfundur AFS á
Íslandi verður haldinn í Iðnó 17. mars
en þar verður meðal annars kynnt nið-
urstaða rannsóknar sem gerð var fyrir
samtökin um áhrif skiptináms erlendis
á íslensk ungmenni. Könnunin var
lokaverkefni tveggja nemenda í við-
skiptafræði við Háskólann í Reykjavík
undir leiðsögn Margrétar Jónsdóttur
dósents. Sjálf telur Rósa kostina við að
fara utan í skiptinám ótvíræða. „Maður
sér mikinn mun á krökkunum sem fara
út þegar þeir koma aftur. Þeir læra
heilmikið um sjálfa sig, kynnast ann-
arri menningu innan frá sem og nýtt
tungumál.
Ég held að þeir verði líka víðsýnni;
heimurinn skreppur dálítið saman
fyrir þeim. Þeir sem fara í skiptinám
búa alltaf í haginn fyrir sig til lengri
tíma litið.“ Þeir sem hafa áhuga á
skiptinemadvöl eða að taka á móti
erlendum nemum er bent á skrifstofu
AFS á Íslandi við Ingólfsstræti eða á
heimasíðu samtakanna, afs.is.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Pétur J. Pétursson
frá Galtará, Bakkastöðum 73b,
sem andaðist á Landspítalanum Fossvogi
19. febrúar sl. verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
hinn 7. mars kl. 13.00.
Ragnheiður Guðmundsdóttir
Guðmundur Pétursson Inga Arnar
Anna Bára Pétursdóttir Freysteinn Vigfússon
Sigurður Pétursson Guðrún Ólafsdóttir
Ingibjörg Pétursdóttir Valtýr Reginsson
barnabörn og barnabarnabörn.
15% afsláttur af öllum
legsteinum og fylgihlutum
Það er nóg að fólk haldi að
það séu kosningar. Kjósend-
ur ráða engu, völdin eru í
höndum þeirra sem telja úr
kjörkössunum.“
Móðir send heim með rangt barn
Óperumiðillinn fær nú yfir-
halningu í breska sjónvarp-
inu. Ætli íslenskir óperu-
unnendur geti lært eitthvað
af þeirri frumlegu tilraun?
Að undanförnu hefur
verið deilt töluvert um óper-
ur og áherslur á síðum
íslenskra blaða en sitt sýn-
ist hverjum um þau stykki
sem færð eru á fjalir í Ing-
ólfsstræti. Nú reyna Bretar
á þanþol óperumiðilsins,
sem sumir hérlendir
fúlsa við og kalla gam-
aldags, því háðfuglinn
og tónskáldið Richard
Thomas er búin að
koma óperunni á
frumlegan hátt inn
í afþrey-
ingar-
dagskrá
breska ríkis-
sjónvarpsins. Vef-
rit bresku dagblaðanna
The Independent og Tele-
graph greindu nýlega frá
þessu.
Tónskáldið Thomas kom
sér á kortið með óperunni
um Jerry Springer sem
hann samdi með félaga
sínum Stewart Lee en hún
fjallar um einn meistara
lágkúrunnar, spjallþátta-
kónginn Springer og hyski
hans. Ópera sú var frum-
sýnd 2003 en hún er nú
margverðlaunuð þrátt fyrir
að vekja litla hylli
meðal trú- rækins
fólks; kvörtunum rigndi inn
þegar verkið var sýnt í sjón-
varpi – sjálfur Jesú Kristur
er sýndur samkynhneigður
í því stykki og félagar í Ku
Klux Klan sjást þar stíga
fjörugan steppdans.
Nú er Thomas búinn að
skrifa sex litla söngleiki
sem eru til sýninga á sjón-
varpsrásinni BBC2. Þættir
þeir byggja, líkt og Spring-
er-óperan, á sjónvarpsefni
en Thomas leitar fanga
í raunveruleika-
sjónvarpsþáttum,
breskum heimilda-
myndum og hámenn-
ingarlegri dagskrár-
gerð en vitanlega snýr
hann út úr öllu saman.
Þættirnir sem hér um
ræðir heita The App-
rentice, Question
Time, The
South
Bank
Show,
Panorama og Wife
Swap en þá er búið að
afbaka og sjóða niður í hálf-
tíma langar óperur þar sem
lágmenningin mætir
hámenningunni á svaðaleg-
an hátt. Blótsyrði, uppköst
og munnmök eru í það
minnsta ekki viðtekin við-
fangsefni í óperum – hvað
þá þær gjörðir að sprengja
spendýr í loft upp.
Thomas er sjálfmenntað
tónskáld og óttalegt undra-
barn í músík af lýsingunum
að dæma. Hann er einnig
reynslumikill uppistandari
og kveðst hafa þá hugsjón
að gleðja fólk. Áhorfendur
verða síðan að dæma um
hvernig til tekst en mögu-
lega fær hann fleiri til þess
að vilja forvitnast um óper-
ur.
Endurnýjun óperuforms