Fréttablaðið - 05.03.2007, Side 61
2 3 4 5 6 7 8
Kviksaga og kvikmynda-
klúbburinn Fjalakötturinn
sameina kraftana í kvöld
og skipuleggja dagskrá í
Tjarnarbíói. Þar má fræð-
ast um ímyndir Íslands á
hvíta tjaldinu.
Kviksaga er vettvangur þar sem
fræði og kvikmyndir mætast til
dæmis við gerð heimildarmynda,
kennsluefnis eða sjónrænna rann-
sókna. Í kvöld kl. 19 sýnir félags-
skapur sá, með fulltingi nýstofn-
aðs klúbbs Fjalakattarins, tvær
myndir: „This Is Iceland“ eftir
Kjartan Ó. Bjarnason frá árinu
1960 og valda kafla úr Íslands-
mynd Leo Hansen frá 1929 en kafl-
ar þeir verða sýndir með lifandi
undirleik Hallvarðar Ásgeirsson-
ar.
Íris Ellenberger sagnfræðingur
fylgir myndunum úr hlaði en hún
skrifaði meistararitgerð sína um
svokallaðar Íslandsmyndir. Það
heiti er gefið fjölbreyttum kvik-
myndum sem eiga það sameigin-
legt að fjalla um Ísland og Íslend-
inga. Myndirnar þessar eru
margvíslegar að eðli: fræðslu-
myndir, pólitískar áróðursmyndir,
sölumyndbönd flugfélaga, fiskiðn-
aðarins eða landbúnaðarvörufram-
leiðenda og myndir sem skreyttu
ræður farandfyrirlesara.
Efni þetta hefur ekki verið mikið
rannsakað enn sem komið er og
engin leið er að vita fyrir víst
hversu margar myndir voru gerð-
ar, sumra þeirra er aðeins getið í
rituðum heimildum. „Ég skoðaði
um sextíu myndir frá fimmtíu ára
tímabili,“ útskýrir Íris og áréttar
að mjög áhugavert sé hvernig höf-
undar þeirra taka líkt á ákveðnum
viðfangsefnum. Bæði hérlendir og
erlendir kvikmyndagerðarmenn
voru þannig dálítið íhaldssamir á
myndefni sitt því ákveðin hefð var
í gildi um nálgun viðfangsefnisins.
„Myndirnar voru gerðar í mjög
ólíkum tilgangi en ef umfjöllunar-
efnið var til dæmis síldveiðar var
nokkuð víst að þá yrði sýndur stafli
af tunnum og svo kemur styttan af
Leifi heppna mjög oft fyrir í mynd-
um frá ákveðnum tíma sem og
myndir af Gullfossi og Geysi en
þær eru nú ennþá algengar.“
Íris segir að flestar myndanna
hafi verið gerðar fyrir útlendinga
og að framan af hafi íslenskir fjöl-
miðlar fylgst nokkuð vel með mynd-
unum og gefið þeim slæma dóma ef
þær sýndu ekki landinu sóma. Eftir
1940 fór síðan að bera meira á því
að ríkisvaldið styrkti kvikmynda-
gerð af þessum toga og bera þær
þess nokkur merki. „Myndin „This
Is Iceland“ var til að mynda gerð
fyrir milligöngu utanríkisráðuneyt-
isins og þar er kynnt ákveðin opin-
ber ímynd landsins.“
Kvikmyndasafn Íslands lánar
myndirnar til sýninga en Kviksaga
og Fjalakötturinn hyggjast standa
að fleiri hliðstæðum viðburðum á
komandi vikum.
Nánari upplýsingar um starf-
semi Kviksögu má finna á vefrit-
inu www. kviksaga.is.
Þetta einstaka tilboðsfargjald
gildir til allra áfangastaða
Flugfélags Íslands innanlands
er fyrir börn 2 - 11 ára í fylgd
með fullorðnum og í sömu bókun
gildir til 15. mar.
býðst eingöngu þegar bókað er
á netinu, www.flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/ S
IA
.I
S
/ F
LU
36
06
1
02
/0
7
1 kr. aðra leiðina + 489 kr.
(flugvallarskattur)
Aðeins 1 króna fyrir börnin
www.flugfelag.is | 570 3030