Fréttablaðið - 05.03.2007, Page 62
Gus Gus fagnaði útgáfu nýjustu
plötu sinnar með teiti á Sirkus síð-
astliðið fimmtudagskvöld. Platan,
sem ber nafnið Forever, er fimmta
stúdíóplata sveitarinnar. Eiginleg-
ir útgáfutónleikar verða haldnir á
Nasa í lok mars, en það var enginn
skortur á fólki sem vildi gleðjast
með Gus Gus-flokknum á fimmtu-
dagskvöldið.
Gus Gus fagnar
Breska hljómsveitin The
Stranglers er á leiðinni
hingað til lands í þriðja
sinn. Freyr Bjarnason
spjallaði við einn af stofn-
endum sveitarinnar, J.J.
Burrell, sem segir áhorf-
endum að búast við hinu
óvænta á þriðjudagskvöld.
The Stranglers hélt síðast tónleika
hérlendis í Smáranum í Kópavogi
árið 2004 við góðar undirtektir. Þar
áður spilaði sveitin í Laugardals-
höll árið 1978.
„Þetta verða fyrstu tónleikarnir
okkar á árinu og ég hlakka mikið
til,“ segir bassaleikarinn Burrell.
„Síðast þegar við komum til Íslands
kom það okkur á óvart hversu vel
gekk. Við höfðum ekki verið þar í
mörg ár og mun fleiri komu en við
bjuggumst við því við héldum að
allir væri búnir að gleyma okkur.
Ég held að fólk hafi ekki vitað við
hverju það átti að búast og það er
það frábæra við The Stranglers; þú
veist aldrei við hverju þú átt að
búast,“ segir hann.
Í þetta sinn spilar The Stranglers á
Nasa og nú hafa þau tíðindi orðið
að aðalsöngvarinn Paul Roberts
hefur yfirgefið sveitina. Í stað hans
sjá Burrell og gítarleikarinn Baz
um sönginn. „Ég held að hann hafi
verið með hugann við annað tengt
tónlist. Málið er að í fyrra þegar ég
heyrði hann syngja eitt af lögunum
mínum fannst mér eins og hann
skildi ekki um hvað lagið snerist
þannig að ég spurði hann hvort
hann væri ennþá tilbúinn til að ein-
beita sér 100% að hljómsveitinni.
Ég sagði honum að hugsa málið.
Hann kom aftur til mín nokkrum
dögum síðar og sagði að ég hefði
rétt fyrir mér. Það voru engin
vandamál og hann hætti í góðu,“
segir Burrell. „Núna er ég farinn
að syngja aftur. Ég hafði gleymt
því hversu gaman ég hafði af því.
Fyrir sextán árum hafði ég ekki
mikið sjálfstraust varðandi söng-
inn. Ég leyfði Paul að syngja lögin
mín vegna þess að mér fannst hlut-
irnir eiga að vera þannig,“ segir
hann. „Þegar við fórum í túr um
Bretland fyrir skömmu fengum við
mjög góðar viðtökur og aðdáend-
unum fannst þetta betra en nokkru
sinni fyrr. Núna erum við aftur
orðnir fjórir og þetta er kraftmeira
en nokkru sinni fyrr og ég er líka
farinn að skemmta mér á nýjan
leik.“
Nýjasta plata The Stranglers, Suite
XVI, kom út á síðasta ári og hefur
að sögn Burrells fengið bestu dóm-
ana í sögu The Stranglers. „Og það
er helvíti löng saga, þannig að ég
þurfti að bíða þangað til ég var orð-
inn miðaldra karl, næstum dauður,
til að fá loksins góða dóma,“ segir
hann. „Þessi plata fjallar um það
sem menn á okkar aldri hafa áhuga
á, pólitík, stríð, konur, hefnd og það
að reyna að myrða spúsu sína.
Þetta er svona það sem menn eru
að spá í á þessum aldri.“
Nafn plötunnar, Suite XVI, á sér
jafnframt ákveðna sögu. Meðal
annars er platan sextánda hljóð-
versplata The Stranglers, auk þess
sem bæði Paul Roberts og Hugh
Cornwell hættu í sveitinni eftir
sextán ára veru.
Burrell segir mikilvægt að
halda ferskleikanum gangandi í
The Stranglers og af þeim sökum
reyni sveitin stundum að prófa
nýjar tónlistarstefnur og skipta út
meðlimum. „Stundum spilum við
ekkert í nokkur ár og ef við fáum
leið á einhverju lagi þá hættum við
bara að spila það. Eins og með
Peaches, við spiluðum það ekki í
tólf, þrettán ár því við höfðum bara
ekki áhuga á því. Það þýðir ekki að
gera hluti eingöngu til að gleðja
aðra.“
Burrell lofar þó að Peaches fái
að hljóma í Reykjavík á þriðjudag.
Vonandi láta The Stranglers einnig
flakka með þekkta slagara á borð
við All Day and All of the Night,
Golden Brown, No More Heroes og
Always the Sun.
NÚÐLUR
MEÐ KJÚKLINGI Í SOJASÓSU
Bandarískir fjölmiðlar velta sér
mikið upp úr því hvort Britney
Spears og Kevin Federline hafi
ákveðið að takast á við vandamál
sín og reyna einu sinni enn. News
of the World greinir frá því að þau
íhugi jafnvel að endurnýja hjóna-
bandsheitin þegar söngkonan
hefur lokið afvötnun sinni í
Malibu.
Að mati blaðsins virðist
lífið leika við poppprinsess-
una. Hún hefur gert sér grein
fyrir því að þegar lífið
var henni sem erfiðast
hurfu allir á braut nema
Kevin, sem stóð þétt við bakið á
henni. News of the World birtir hins
vegar einnig ógnvænlega frétt af
ástandi Britney þegar hún var sem
lengst niðri í upphafi meðferðar-
innar. Blaðið hefur eftir nánum vini
að hún hafi hótað því við starfsfólk
stofnunarinnar í Malibu að
hengja sig ef Kevin vildi ekki
eignast með henni þriðja barn-
ið. Og hafi þá skrifað töluna
666 á hausinn og öskrað: „Ég
er Antí-Kristur.“ Þá hafi yfir-
mönnum meðferðarheim-
ilisins verið nóg um og
Kevin verið kallaður til
að róa söngkonuna niður.
Hann ku hafa lofað
Britney að hjálpa henni
aftur á fætur eftir að
hafa misstigið sig á grýttum vegi
fíknarinnar. Federline hefur boðist
til að fresta öllum málaferlum og
tekið strákana tvo algjörlega að sér
á meðan Britney nær sér að fullu.
Samkvæmt News of the World
er talið líklegt að áfengi og eiturlyf
á borð við kókaín og e-töflur hafi
leikið minnsta þáttinn í hraðri nið-
urleið Britney Spears. Eftir því
sem blaðið kemst næst var Britney
orðin háð hinu stórhættulega fíkni-
efni kristal-metamfetamíni. Það
hefur mikil áhrif á taugakerfið og
veldur ofsakvíða og ofbeldisfullri
hegðun.
Britney reyndi að hengja sig
Alexandra Christina Manley,
fyrrverandi prinsessa í Dan-
mörku, gekk að eiga ljósmyndar-
ann Martin Jørgensen við hátíð-
lega athöfn í Øster
Egede-kirkjunni að viðstöddum
nánum vinum og ættingjum.
Alexandra var klædd í kampa-
vínslitaðan kjól frá Henrik Hviid
og virtist njóta hverrar mínútu.
Þegar hún kom að kirkjudyrun-
um brá Alexandra á leik við þá
fjölmörgu gesti og gangandi sem
biðu eftir að fá að sjá hana og
sagði: „Við komum aftur út,“ við
mikil hlátrasköll nærstaddra.
Hjónakornin nutu liðsinnis
frá prinsunum tveim, hinum sjö
ára gamla Nikolai og fjögurra
ára gamla Felix, en þá á Alex-
andra með Jóakim prins. Hann
var reyndar víðsfjarri við athöfn-
ina enda hefði það verið í hæsta
máta óvenjulegt þrátt fyrir að
danskir fjölmiðlar fullyrði að
þau séu enn þann dag í dag góðir
vinir. Ólíkt því sem var árið 1995
þegar Alexandra gekk kirkju-
gólfið við konunglega athöfn
voru aðalsbornir gestir víðs-
fjarri og glamúrinn og glysið
ekki jafn áberandi. Dönsku blöð-
unum bar hins vegar saman um
að athöfnin hefði verið bæði lát-
laus og falleg.
Hjónin buðu síðan til glæsi-
legrar veislu eftir kirkjuna sem
haldin var á Jomfruens Egede en
þar hélt góðvinur, Mark Petter-
son, skálarræðu fyrir hin nýgiftu.
Til gamans má geta að Petterson
er einmitt eiginmaður Miu
Egmont Petersen sem eitt sinn
var trúlofuð Friðriki krónprins,
fyrrverandi mági Alexöndru.
Alexandra gengin út