Fréttablaðið - 05.03.2007, Side 66
Íslenskir leikmenn hafa reynst okkur vel
Það gekk mikið á þegar
HK tók á móti Fylki í Digranesi í
gær. Leikurinn var skrautlegur í
meira lagi þar sem hver klaufa-
skapurinn rak annan og þegar upp
var staðið var 25-25 jafntefli sann-
gjörn niðurstaða. Stigið sem bæði
lið misstu af er þeim þó dýrt.
Jafnræði var með liðunum
allan fyrri hálfleikinn og liðin
skiptust á að hafa forystu í leikn-
um. Markverðir liðanna voru einu
leikmennirnir sem sýndu góðan
leik í fyrri hálfleik en vörn Fylkis
var einnig mjög traust lengi vel.
Staðan í leikhléi var 12-12 og það
var staða sem HK sætti sig illa
við.
Heimamenn mættu mjög
grimmir til síðari hálfleiks og
freistuðu þess að keyra yfir hina
hægfara og þungu Fylkismenn
sem gerðu vel í að halda hraðan-
um niðri í fyrri hálfleik. Herbragð
HK gekk er líða tók á síðari hálf-
leikinn en þá áttu Fylkismenn
orðið mjög erfitt með að halda í
við þá og virkuðu bensínlitlir.
Í stöðunni 23-20 hefði HK átt að
skilja Fylki eftir en þá buðu þeir
gestunum enn og aftur inn í leik-
inn með því að kasta frá sér bolt-
anum á glórulausan hátt hvað eftir
annað. Þegar tvær mínútur lifðu
leiks misfórst eina skot Strazdas í
leiknum og Brynjar svaraði með
hraðaupphlaupsmarki og kom
Fylki yfir, 24-25.
Síðustu mínúturnar voru æði
skrautlegar þar sem leikmenn
kepptust við að toppa hvern annan
í klaufaskap. Þegar fimm sekúnd-
ur lifðu leiks fékk HK víti. Valdi-
mar skaut boltanum í stöng en
Brynjar tók frákastið og jafnaði
rétt áður en leiktíminn rann út.
Ótrúlegur endir á skrautlegum
leik. Bæði lið voru gráti næst í
leikslok.
„Þetta er ótrúlegt og ég er orð-
laus. Þeir stálu sigrinum á fáran-
legan hátt síðast og nú þetta. Ég á
ekki til orð,“ sagði Hlynur
Morthens, markvörður Fylkis.
Gunnar Magnússon, aðstoðar-
þjálfari HK, var einnig svekktur.
„Þetta var okkar slakasti leikur á
árinu og allt of margir sem voru
langt frá sínu besta. Það er sorg-
legt miðað við stöðuna sem við
erum í. Þetta tapaða stig gæti
reynst okkur dýrt.“
Tapað stig í huga bæði HK og Fylkis
West Ham situr sem
fastast á botni ensku úrvalsdeild-
arinnar eftir 3-4 tap gegn Totten-
ham í einhverjum eftirminnileg-
asta knattspyrnuleik sem farið
hefur fram í háa herrans tíð.
West Ham leiddi 2-0 í hálfleik
en tapaði þeirri forystu í þeim síð-
ari. Hamrarnir tóku síðan for-
ystuna á ný fimm mínútum fyrir
leikslok og héldu margir að nú
væri loksins komið að sigri. Svo
var nú ekki.
Berbatov jafnaði með marki
beint úr aukaspyrnu rétt áður en
venjulegur leiktími rann út. Þegar
um fimm mínútur voru komnar
fram yfir venjulegan leiktíma
skoraði Stalteri síðan sigurmark-
ið. Eggert Magnússon og aðrir
stuðningsmenn West Ham trúðu
vart sínum eigin augum.
„Við erum í þeirri stöðu að við
verðum að vinna. Síðan erum við
með vinningsstöðu en það er eins
og leikmenn kunni ekki lengur að
vinna leiki. Þeir muni ekki hvern-
ig eigi að gera það. Ég held samt
að þeir hafi lagt sig alla fram í
verkefnið,“ sagði Alan Curbishley,
stjóri West Ham, en hann hefur
aðeins unnið einn leik síðan hann
tók við stjórnartaumunum. Eins
ótrúlegt og það hljómar þá var það
gegn Manchester United. Breskir
fjölmiðlar halda því fram að heitt
sé undir stjóranum en hann vonast
eftir að fá meiri tíma hjá félag-
inu.
„Vonandi. Þegar ég tók við þá
sagði ég við Eggert að þetta væri
langtímaverkefni og hann var mér
sammála um það,“ sagði Curbish-
ley en staða West Ham er vægast
sagt vonlítil og fátt annað en fall
sem blasir við félaginu. „Það eru
níu leikir eftir. Ef leikmenn leggja
mikið á sig getum við fengið rétt
úrslit en það verður mjög erfitt.“
Martin Jol, stjóri Spurs, hrós-
aði Jermain Defoe sérstaklega
fyrir sitt framlag en vítaspyrna
hans kveikti í Tottenham-liðinu.
Hann lét glósur stuðningsmanna
West Ham sem vind um eyru þjóta
en hann er fyrrverandi leikmaður
West Ham.
„Svona er Jermain Defoe og
þetta er það sem hann gerir. Hann
er frábær leikmaður sem hleypur
ekki í felur,“ sagði Jol kampakát-
ur.
Það virðist fátt geta komið í veg fyrir fall West Ham úr ensku úrvalsdeildinni.
Liðið klúðraði unnum leik gegn Tottenham á ótrúlegan hátt í gær. Knatt-
spyrnustjóri West Ham segir leikmenn hafa gleymt hvernig eigi að vinna leiki.
Meistarar Ciudad Real
eru úr leik í Meistaradeildinni
eftir tap gegn Portland, 37-29, í
seinni leik liðanna í Pamplona.
Ciudad vann fyrri leikinn með
fimm mörkum. Ólafur Stefánsson
skoraði 6 mörk í leiknum, þar af
tvö úr víti.
Gummersbach er einnig úr
leik eftir óvænt tap á heimavelli,
34-32, gegn Valladolid en fyrri
leik liðanna á Spáni lyktaði með
jafntefli. Róbert Gunnarsson
skoraði 6 mörk fyrir Gummers-
bach og Guðjón Valur Sigurðsson
tvö.
Íslendingaliðin
úr leik
Valur vann góðan sigur
á Akureyri í DHL-deild karla, 32-
28, í Laugardalshöll í gær.
Það tók Val rúmar sjö mínútur
að finna netmöskvana. Akureyri
komst í 2-0 en á innan við sjö
mínútum náðu Valsmenn fimm
marka forystu, 7-2. Þessi munur
hélst nánast og hálfleiksstaða 16-
10.
Valsmenn héldu uppteknum
hætti í upphafi síðari hálfleiks og
náðu 10 marka forskoti, 23-13,
þegar 20 mínútur voru eftir af
leiknum. Eftir það var aldrei
spurning um úrslit leiksins.
Valur efstur
Fylkir hefur gert starfs-
lokasamning við króatísku skytt-
una Tomislav Broz sem gekk til
liðs við félagið í upphafi leiktíðar.
Broz stóð ekki undir vænting-
um forráðamanna Fylkis. Frétta-
blaðið hefur heimildir fyrir því að
Broz hafi verið ósáttur við hlut-
skipti sitt hjá liðinu og óskað eftir
því að fá að fara og því var gerður
starfslokasamningur.
Broz farinn
DHL-deild karla:
Iceland Express-deild karla:
Enska úrvalsdeildin: