Fréttablaðið - 05.03.2007, Qupperneq 70
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Það höfðu allir miklar skoðanir á
myndinni enda er stjórnartíð Idi
Amins mörgum enn í fersku
minni,“ segir Sveinn H. Guðmars-
son, fréttamaður á Stöð tvö, um
viðbrögð Úgandabúa við kvik-
myndinni The Last King of Scot-
land.
Sveinn er nýkominn heim eftir
að hafa fylgt Valgerði Sverrisdótt-
ur utanríkisráðherra eftir á ferða-
lagi hennar um Afríku undanfarna
viku. Þegar hópurinn var í Kamp-
ala, höfuðborg Úganda, notaði
Sveinn tækifærið og brá sér í
kvikmyndahús og sá myndina The
Last King of Scotland sem fjallar
um Idi Amin, einræðisherrann
sem stjórnaði landinu með harðri
hendi á árunum 1971-1979. „Idi
Amin er langt því frá þjóðhetja í
Úganda, þvert á móti. Í myndinni
er honum lýst sem vænisjúkum og
dyntóttum harðstjóra og það virt-
ist koma heim og saman við þá
ímynd sem Úgandabúar hafa af
honum. Við fórum með myndavél
með okkur og ræddum við nokkra
sýningargesti, þar á meðal mann
sem mundi vel eftir stjórnartíð
Amins og hafði reynt hana á eigin
skinni. Við sýnum þessi viðtöl á
Stöð tvö væntanlega innan fárra
daga.“
Eins og kunnugt er fékk Forest
Whitaker Óskarsverðlaunin á dög-
unum fyrir túlkun sína á harð-
stjóranum í myndinni, sem er að
mestu leyti tekin í Úganda. Sveinn
segir að bíógestir hafi verið upp-
rifnir þegar þeir báru kennsl á
þekkt kennileiti
frá heimalandi
sínu. „Það fór
til dæmis
iðulega klið-
ur um salinn þegar myndir komu
af forsetahöllinni eða flugvellin-
um í Kampala, enda ekki á hverj-
um degi sem Úganda er sögusvið
mynda sem njóta alþjóðlegrar vel-
gengni.“
Sá Síðasta konung Skotlands í Úganda
„Ég hlusta bara á FM 95,7,
það er eiginlega rúllandi hér
allan daginn. Ég er algjör FM-
hnakki.“
„Þetta mál er á viðkvæmu stigi,“
segir Jón Þór Hannesson, einn
framleiðandi myndarinnar A
Journey Home eða Slóð fiðrildanna
en um er að ræða stórmynd gerða
eftir samnefndri sögu Ólafs
Jóhanns Ólafssonar. Eins og Frétta-
blaðið greindi frá virðist hafa
komið upp ágreiningur um handrit
myndarinnar sem leikstjórinn Liv
Ullman gerði eftir bókinni. Jón Þór
segir að athugasemdirnar hafi
fyrst og fremst komið frá fram-
leiðendunum en ekki skáldinu
sjálfu. „Eftir því sem mér skilst er
allt í góðu milli Liv og Ólafs,“ segir
Jón Þór en staðfesti þó að Ólafur
Jóhann hefði verið fenginn til liðs
við kvikmyndina og beðinn um að
gera tilraun með handritsskrif.
„Samstarfinu við Liv hefur ekki
algjörlega verið slitið en það eru
meiri líkur á því en minni,“ segir
Jón Þór og bætir við að þeir séu í
samningaviðræðum við tvo leik-
stjóra sem báðir séu þungavigta-
menn í kvikmyndaheiminum. Jón
Þór vildi ekki gefa upp nein nöfn á
þessu stigi, sagði þó að þessi atriði
væru í réttum og öruggum far-
vegi.
Jón segir að svona hlutir séu
ekkert óalgengir í kvikmynda-
heiminum. Fólk komi og fari og
handrit séu oft að velkjast um á
milli manna. „Þetta er ekkert nýtt
undir sólinni. Við vitum af því að
þetta er gott efni sem við höfum
undir höndunum og viljum vanda
vel til verksins,“ útskýrir Jón Þór
en Slóð fiðrildanna verður ein dýr-
asta kvikmynd sem íslenskt fyrir-
tæki hefur framleitt. „Það kemur í
ljós á næstum vikum hvernig þessi
mál æxlast, þau gætu tekið óvænta
stefnu á morgun en þetta
gæti líka dregist tölu-
vert lengra. Aðalmálið
er að rasa ekki um
ráð fram,“ segir Jón
Þór.
Eins og kom fram í Fréttablað-
inu ríkir mikil spenna innan her-
búða Saga Film vegna þeirrar
stefnu sem myndin hefur tekið.
Jón Þór tekur heilshugar undir
það. Greint var frá því í fjölmiðl-
um á síðasta ári að leikarahjónin
Jennifer Connelly og Paul Bettany
hefðu gefið vilyrði fyrir því að
leika í myndinni en Jón Þór segir
að vissulega geti orðið breyt-
ingar þar á. „Leikarar sem
eitthvað kveður að eru mjög
kröfuharðir á allar breyting-
ar,“ segir Jón Þór og útilokar
því ekki að nýtt og
ferskt blóð verði
fengið til leiks.
Vi
nn
in
ga
r v
er
Ða
af
he
nd
ir
hj
á B
T S
m
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i. M
eÐ
þ
ví
aÐ
ta
ka
þ
át
t e
rtu
ko
m
in
n
í S
M
S k
lú
bb
. 1
49
kr
/s
ke
yt
iÐ
. *
A
Ða
lvi
nn
in
gu
r e
r d
re
gi
n
úr
ö
llu
m
in
ns
en
du
m
SM
S s
ke
yt
um
.
12. HVER VINNUR!
FULLT AF AUKAVINNINGUM: PSP TÖLVUR · SONY ERICSSON FARSÍMAR · PS2 TÖLVUR · TÖLVULEIKIR
BÍÓMIÐAR Á TEENAGE MUTANT NINJA TURTLES · DVD MYNDIR · FULLT FULLT AF PEPSI OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS BTC PS3 Á NÚMERIÐ 1900
SVARAÐU EINNI SPURNINGU UM
PLAYSTATION OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
AÐALVINNINGURINN
PS3 + 23”SONY LCD + LEIKIR FYRIR PS3
SPILAÐU Í BESTU GÆÐUM!
„Ég var eitthvað viðkvæm fyrir
og mátti eiginlega bara ekki við
þessu,“ segir Halla Vilhjálms-
dóttir, kynnirinn skeleggi í X-
Factor, sem átti erfitt með að
halda aftur af tárunum þegar
Alan var rekin heim úr síðasta X-
Factor þættinum á föstudaginn.
Sjónvarpsáhorfendur heima í
stofu voru þrumu lostnir þegar
táraflóðið rann niður kinnar
Höllu og Einars Bárðarsonar
eftir að Ellý hafði sent Alan heim.
En pönkdrottningin var síður en
svo öfundsverð af hlutverki sínu,
þurfti að velja á milli hans og
stúlknadúettsins Höru frá Hvera-
gerði.
Halla segist hins vegar ekki
vera hlutdræg þótt hún gráti
kannski ekki næst þegar einhver
verður sendur heim. Lagið Lately
– um eiginmanninn sem kemst að
framhjáhaldi eiginkonu sinnar
og syngur til hennar kveðjuóð
sem Alan söng svona snilldarlega
– hafi einfaldlega snert gráttaug-
arnar með einstökum hætti.
„Þegar hann söng þetta fyrr í
þættinum fór ég líka að gráta en
tókst að fela það með meiki og
láta eins og ekkert hefði í skorist.
Ég er hins vegar svo mikil pabba-
stelpa og þegar ég sá Einar Bárð-
arson, fullorðinn og fullkomlega
heilbrigðan karlmann, fella tár
gat ég hreinlega ekki haldið aftur
af mér,“ útskýrir Halla.
Einar Bárðarson var að vonum
niðurlútur vegna brottreksturs
Alans en hann hefur nú þegar
misst tvo mjög sterka söngvara
úr sínum hópi; Sigga kaftein og
nú Alan. „Þetta var í fyrsta skipti
sem Alan tókst að yfirvinna sviðs-
skrekkinn og stressið og sýna
hvers hann er megnugur. Þess
vegna var mjög erfitt að sjá á
eftir honum,“ segir Einar, sem
fannst það fáránlegt að þessir
tveir keppendur skyldu verma
botnsætin tvö. „Það verður mikill
söknuður að Alan og ég fann það
á leiðinni út til London að allir í
flugvélinni voru í sjokki og
reyndu að hughreysta mig,“
bætir Einar við og segir að þarna
hafi einfaldlega birst hinn nýi
mjúki maður sem óhikað grætur
í sjónvarpi. „Ég er bara í góðu
sambandi við mig og mínar til-
finningar.“
Grátur og gnístran tanna
hjá Höllu og Einari í X-Factor