Tíminn - 12.07.1979, Síða 6
6
Fimmtudagur 12. júli 1979.
titgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson og Jón Sigurósson. Ritstjórnarfulltrúi:
Oddur Ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siðumúla 15 simi
86300. 7— Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 180.00. Áskriftargjald kr.
3.500 á mánuði. Blaðaprent.
íhaldssemi verkalýðs-
forustunnar
Stutt ræða sem Sigurður Lindal flutti i sjórivarps-
þætti fyrir nokkru, hefur vakið talsvert umtal.
Ástæðan var sú, að Sigurður deildi þar allfast á
verkalýðsforustuna svo nefndu. Margt var rétt i
ádeilu Sigurðar, en annað ekki. Af hálfu forustu-
manna verkalýðsforustunnar var brugðizt hart við
og Sigurður næstum talinn óalandi og óferjandi að
þeirra dómi. Þvi er ekki fjarri að segja, að báðir
aðilar hafi skotið nokkuð yfir markið.
Hitt hljóta hins vegar flestir að viðurkenna, að
umræður um stefnu og starfshætti leiðtoga verka-
lýðssamtakanna er eðlileg og raunar aðkallandi, og
má þvi þakka Sigurði Lindal frumkvæði hans.
Breyttir þjóðfélagshættir hafa lagt slikt vald i
hendur leiðtoga verkalýðssamtakanna, að bæði
þjóðfélaginu og þeim sjálfum er nauðsynlegt að
rætt sé um hvernig þessu mikla valdi er beitt.
Sjálfsagt er að viðurkenna það, að verkalýðsfor-
ustunni er oft mikill vandi á höndum. Til hennar
eru gerðar miklar kröfur af launastéttunum.
Dæmi eru um, að forustumenn launþegasamtak-
anna hafi misst tökin á þeim, ef þeir hafa verið tald-
ir of ábyrgir. Þannig fór fyrir Kristjáni Thorlacius
og Haraldi Steinþórssyni i atkvæðagreiðslunni hjá
opinberum starfsmönnum um 3% siðastl. vor. Ann-
að gleggra dæmi um þetta er upplausn i Bretlandi á
siðastl. vetri, þegar ólögmæt verkfallsalda skolaði
rikisstjórn Verkamannaflokksins úr sessi og hóf
Margaret Thatcher til valda.
Þessi ótti við að missa tiltrú hjá umbjóðendum
sinum, á meðal annars þátt i þvi, að verkalýðsfor-
ustan hefur á vissum sviðum gerzt of varfærin og
ihaldssöm. Hún hefur haldið og heldur dauðahaldi i
ýmsar kennisetningar, sem áttu við á vissum tima,
en eru orðnar úreltar vegna breyttra aðstæðna.
Glöggt dæmi um þetta er visitölukerfið, sem er
orðið úrelt á ýmsan hátt, einkum á verðbólgutim-
um. Einn mesti galli þess er sá, að allir óbeinir
skattar fara inn i visitöluna og valda þvi, að ill-
mögulegt er að auka ýmsa aðkallandi félagslega
þjónustu, án þess að það auki verðbólguna. Þessi
þátturvisitölukerfisins stendur þannig i vegi félags-
legra umbóta, sem hinar launalægri stéttir hafa
mest þörf fyrir. Þrátt fyrir þessa staðreynd, heldur
verkalýðsforustan dauðahaldi i þennan úrelta þátt
visitölukerfisins, sem nú er einn mesti þröskuldur
félagslegra framfara i landinu.
Annað glöggt dæmi er vinnulöggjöfin. Það var
mikið átak hjá Hermanni Jónassyni, þegar hann
fékk verkalýðshreyfinguna til að standa að setningu
vinnulöggjafarinnar fyrir 40 árum. Þótt þessi lög-
gjöf hafi komið að miklu gagni, er hún eðlilega orðin
úrelt á ýmsum sviðum. Einn galli hennar er sá, að
hún veitir smáum þrýstihópum of mikil völd.
Verkalýðsforustan skilur þetta vel, þvi oft ganga
þessir smáhópar gegn stefnu hennar. Þrátt fyrir
þetta heldur hún dauðahaldi i vinnulöggjöfina ó-
breytta og virðist ófáanleg til allra lagfæringa á
henni, enda þótt hún sjái vel nauðsyn þeirra.
Þessi dæmi og fleiri svipuð, sem mætti nefna um
ihaldssemi verkalýðsforustunnar, sýna ótviræða
nauðsyn þess, að hún endurskoði stefnu sina og
starfshætti. Þ.Þ.
Erlent yfirlit
Benazir hjá veggspjaldi af fööur hennar.
Bhutto orðinn þjóðar-
dýrlingur í Pakistan
Flokkur hans talinn sigurviss í kosningum
ERLENDIR fréttamenn, sem
hafa sótt Pakistan heim nýlega,
virðastsammálaum, aðflokkur
Bhuttos, fyrrv. forsætisráð-
herra, Þjóðarflokkurinn, muni
vinna auðveldan sigur i þing-
kosningunum.sem Zia UL-Haq,
einræðisherra hefur lofað að
láta fara fram 17. nóvember
næstkomandi. Þær spár hafa
þvi fengið aukinn byr, að Zia
muni enn einu sinni vanefna lof-
orð sitt um þingkosningar.
A þeim tæplega tveimur ár-
um, sem Zia er búinn að fara
með einræðisvald, hefur hann
hvað eftir annað tilkynnt ákveð-
inn kjördag, en siöan birt aðra
tilkynningu um frestun nokkru
, siðar. Til þessa hefur legið sú
augljósa ástæða, að Zia hefur
verið ljóst, að andstæðingar
hans myndu vinna auðveldan
sigur og hann þvi hrökklast frá
völdum. Zia hefur þvi fylgt regl-
unni, að frestur væri á illu
beztur.
Það mun hins vegar ekki vera
Zia einn, sem er áhugalitill um
þingkosningar I haust. Hið sama
mun gilda um forustumenn
flokkanna, sem kepptu við flokk
Bhuttos i siðustu þingkosning-
um. Þeir munu telja sigurvonir
sinar hverfandi, þótt þeir herði
nú áróðurinn um óstjórnina og
harðstjórnina i stjórnartið
Bhuttos. Sá áróður virtist hafa
enn minni áhrif eftir að Bhutto
var hengdur en meðan hann var
á lifi.
FRÉTTAMENN segja, að með-
al almennings sé Bhutto ekki
lengur dýrkaður sem þjóðhetja,
heldur einnig sem pislarvottur
og dýrlingur. Ferðamenn koma
úr öllum áttum til kirkjugarðs-
ins, sem hann er jarðaður i og
leggja blóm á leiði hans. Frá
þessum heimsóknum dreifast
svo fleiri og fleiri kraftaverka-
sögur.
Ein sagan er sú, að þegar sið-
asta helgiathöfnin fór fram við
leiði hans, 40 dögum eftir lát
hans, hafi i' hópnum verið vasa-
þjófur, sem hagnýtti sér óspart,
að menn voru annars hugar.
Þegar þjófurinn kom með þýfið
i kirkjugarðshliðið varð hann
skyndilega blindur. Þar var
þýfiö þvi tekið af honum, en
eftir að hann var búinn að skila
því öllu, fékk hann sjónina aft-
ur.
önnur sagan er sú, að kona,
sem kom að leiði Bhuttos til aö
votta honum virðingu, tók rós af
þvi og hafði heim með sér. Hún
átti dóttur, sem var búin aö vera
veik lengi, án þess að læknar
gætu hjálpað henni. Hún gaf
dótturinni að borða blöðin af
rósinni og varð hún alheilbrigð
eftir það.
Bhutto I gæzlu fangavarðar.
Þriðja sagan er sú, aö haldinn
hafi verið fundur að kvöldlagi i
stjórn Þjóðarflokksins eftir að
Begum Nusrat, konu Bhuttos,
og Benazir, dóttur hans, var
sleppt úr stofúfangelsi á heimil-
um þeirra. Tungl var fullt um
þetta leyti. Þegar fundurinn
stóð sem hæst hringdi nafn-
greind kona og bað fundarmenn
að ganga út og skoða tunglið.
Þeir gerðu það og sáu andlit
Bhuttos greinilega á tunglinu.
Slikar furðusögur ganga nú
manna á meðali'Pakistan ogfer
sifellt fjölgandi. Aftaka Bhuttos
hefur þannig ekki aðeins styrkt
álit hans sem mikils þjóðarleið-
toga, heldur gert hann að þjóð-
ardýrlingi, sem menn trúa á og
heita á i raunum sinum. Liflát-
inn er Bhutto þannig miklu
skæðari andstæðingum sinum
en i lifanda lifi.
SAMKVÆMT ósk Bhuttos, var
kona hans, Begum Nusrat
Bhutto, kjörin formaður Þjóð-
arflokksins eftir aftöku hans.
Hún heftirhins vegar litið getað
sinnt forustunni, þvi að lengst-
um hefur hún verið i stofufang-
elsi og nýlega hefur herlögregl-
an bannað henni afskipti af
stjórnmálum. Hún hefur skotið
þessu banni til úrskurðar dóm-
stólanna. Úrskurður þeirra get-
ur dregizt á langinn, en á meöan
getur hún ekki haft afskipti af
stjórnmálum.
I fjarvist Begums hvilir for-
usta flokksins áherðum dóttur
þeirra Bhuttos, Benazir, sem er
ekki siður talin vel til forustu
fallin en foreldrar hennar.
Nokkurt dæmi um hæfileika
hennar er það, að meðan hún
dvaldi viðnám iOxford, var hún
kjörin formaður Oxford Union,
sem er þekktastur félagsskapur
stúdenta þar.
Benazir Bhutto hefur nýlega
skýrt frá þvi, að I siðasta skipt-
ið, sem hún heimsótti föður sinn
I fangelsið, fáum klukkustund-
um áöur en hann var liflátinn,
hafi hann beðið sig fyrir skila-
boð til flokksmanna sinna og
muni hún flytja þau á fjölda-
fundi eftir að kosningabaráttan
hefst. Fylgismenn hennar ótt-
ast, að henni verði aldrei gefið
tækifæri til að flytja það. Þeir
segjast hins vegar hafa nóg ráð
til að láta rödd Bhuttos heyrast.
Um þessar mundir er verið að
útbúa kasettur með ræðumhans
og verða þær til sölu i náinni
fra mtið.
Það er nokkurt dæmi um ótta
andstæðinganna við Bhutto, að
ein helztu rök þeirra gegn Þjóð-
arflokknum eru nú þau, að
Múhameðstrúarmenn banni
konum að stjórna og þvi sé ekki
hægt að kjósa flokk, sem sé
stjórnað af konum. Enn síður sé
svo hægt að þola það, ef önnur
hvor þeirramæðgna verður for-
sætisráðherra, en slikt sé senni-
legt, ef Þjóðarflokkurinn vinnur
I kosningunum.
Það þykir ekki trúlegt, að
þetta nægi til aö hnekkja Þjóð-
arflokknum. Nú er Bhutto ekki
aðeins þjóðhetja, heldur einnig
pislarvottur og dýrlingur. Það
þarf mikið til aö sigra slika
þrenningu.
Þ.Þ.