Tíminn - 02.08.1979, Side 1

Tíminn - 02.08.1979, Side 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Á annað hundrað norskir loðnubátar á miðunum við Jan Mayen: Pólitík hlaupin í málið Norska stjórnin gagnrýnd fyrir iinkind gagnvart íslendingum Kás — Sifellt eykst sú gagnrýni i Noregi sem rikisstjórn Odvars Nordli hlýtur vegna steinu sinn- ari Jan Mayen málinu. Nú siö- ast i gær birtist viðtal viö Kare Willoch, formann Hægriflokks- ins i kvöldútgáfu Aftenposten, þar sem hann gagnrýnir harö- lega stefnu rikisstjórnarinnar fyrir aö hafa ekki fyrir löngu lýst yfir efnahagslögsögu viö Jan Mayen. Telur hann íslend- inga taka mjög einstrengings- lega afstööu i þessu máli, og vera óþarflega herskáa. Viröist sem pólitik sé hlaupin i máliö I Noregi, en i haust fara fram sveitarstjórnarkosningar þar I landi. Daginn áöur haföi Miðflokks- maðurinn Kare Rönning lýst yfir þeirri skoðun sinni, að rétt- ast væri að senda herskip til að vernda norska loðnubáta á hinu umdeilda „gráa svæði”, milli Islands og Jan Mayen. - Norska stjórnin virðist hins vegar vera ákveðin i að halda sinni stefnu til streitu. Sést þaö best á ummælum Knuds Fryd- enlunds, utanrikisráðherra Norðmanna, sem nú gegnir einnig embætti forsætisráð- herra, I forföllum Odvars Nordli, sem hvetur norska sjó- menn til að halda sig fyrir utan hið umdeilda svæði. Er ljóst samkvæmt þessu, aö Norðmenn munu ekki lýsa yfir efnahags- lögsögu við Jan Mayen nema með samþykki Islendinga: Daglega minnka likurnar á ár- ekstrum milli islenskra varð- skipa og norskra loðnuveiði- báta. Kemur þaö til aí þvi að loðnugangan suður af Jan May- en gengur til norðurs burtu frá hinu umrædda svæði. Hins veg- ar horfir ekki vel fyrir loðnu- stofninn ef Norömenn takmarka ekki veiðar sinar. 1 dag verða komin á annað hundrað norskir loðnuveiði- bátar á svæðið við Jan Mayen, og einnig eru væntanleg færeysk og sovésk loðnuveiðiskip. Veiðin hefur blessunarlega ekki gengið alltof vel, ef undan- skilin aðfaranótt þriöjudags- ins. Bátarnir hafa fengið litið i hverju kasti, en vegna þess hve margir þeir eru orönir, þá hækkar heildarveiðin óðfluga. Næsta skrefið i þessu máli hljóta að verða formlegar viðræður milli islenskra og norskra samninganefnda. Vitað er að Frydenlund og Benedikt Gröndal ræddust við i gær, m.a. um hugsanlegt framhald af samningaviðræðum milli þjóð- anna. Gerðardómur I far- mannadeilunni: Skip- stjórar hækka mest 15% útgjaldaaukning fyrir skipaútgerðirnar Kás — Geröardómur i deilu far- manna og skipafélaganna hefur úrskuröaö um kaup og kjör þeirra siöar nefndu. Samkvæmt honum hækka laun farmanna um 5% frá 19. júni til 31. júli miöaö viö þá kjarasamninga sem siöast voru i gildi. Þá er þaki lyft af þeim laun- um, sem enn voru háö þvi. Frá deginum I gær tekur hins vegar gildi nýr rammi hjá yfirmönn- um á kaupskipunum, i samræmi viö samkomulag sem náöst haföi um _það milli aöila. Gerðardóm- urinn hefur fært inn launaliði i rammann. Að sögn Þorsteins Pálssonar, framkvæmdastjóra Vinnu- veitendasambands tslands, benda fyrstu tölur til þess að út- gjaldaaukning útgerðanna vegna launahækkana til yfirmanna á kaupskipunum, þ.e. skipstjóra, stýrimanna, vélstjóra, loft- skeytamanna og bryta, sé á bilinu 14 — 15%. Útgjaldaaukningin Framhald á bls 19 ' - Hver var aö tala um freðmýrakenninguna? (Tímamynd: Róbert) mr mmf l r íf:' •á r.ú III % 11, ’ll'IHi n II MÍ V jéhkí’Ép ÆaSSBm | Ríkisstjórnin: Samþykkti að taka Kás — Ríkisstjórnin hefur samþykkt að notfæra sér heimildi lögum nr. 57 frá 31. mai I vor, um að taka hluta jaröarinnar Deiidartungu i Reykholtsdals- hreppi ásamt jarðhitaréttindum, eignarnámi. Varþetta samþykkt ágreiningslaust i rikisstjórninni. Þegar eignarnámið hefur farið fram, má búast við að samningur verði geröur milli rikisins, sem eiganda hversins, og Hitaveitu Akraness og Borgarness um sölu á heitu vatni. Er þaö ósk iðnaðarráðuneytisins, sem farið hefur með þetta mál hingað til, og fjármálaráðuneytisins, sem nú fær það á sina könnu, að sam- hliða þessum samningi takist góð samvinna við hreppsnefnd Reyk- Deildartunguhver eignarnámi holtsdalshrepps, sem væntanlega fær einhvern forgang um nýtingu heits vatns úr hvernum. I greinargerð sem fulltrúar eigenda Deildartunguhvers skil- uðu til rikisstjórnarinnar, þegar málið var þar til umfjöllunar, áskilja þeir sér allan rétt til málshöfðunar varðandi lögmæti eignarnámsins. Telja þeir rök- stuöning orkuráðherra, Hjörleifs Guttormssonar, fyrir flutningi frumvarpsins um eignarnám Deildartunguhvers ófullkominn og i hæpnasta lagi. I greinargerð fulltrúa eigenda Deildartunguhvers segir að orkuráðherra hafi eyðilagt samningaviðæður sem stóðu milli Hitaveitu Akraness og Borgamess og eigenda Deildar- tunguhvers, með ótimabærum hótunum um eignarnám, starfs- leyfi fyrir HAB og veröþak. Segja þeir verðmæti hins eignarnumda um tvo milljaröa króna, en jarðhitaréttindin geti numið sem svarar 330 sekúndu- litrum af 130 stiga heitu vatni. Lmgusalar að hverfa — sjá bls. 3 Lekandi fær- ist í vöxt — sjá bls. 19 Allt um verslun- armannahelgina — sjá bls. 8,9,10 og 11

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.