Tíminn - 02.08.1979, Qupperneq 8

Tíminn - 02.08.1979, Qupperneq 8
8 Fimmtudagur 2. ágúst 1979. HAGSTÆÐ KAUP í Flestar gerðir FAHR heyvinnuvéla fyrirliggjandi WELGER HEYBINDIVELAR til afgreiðslu strax Verö aðeins kr. 2.368.000 takmarkaöur fjöldi veia. II/ HQjGBI w Draumur þeirra sem vilja vandað EM =>EKKJA Sambyggt: útvarp, magnari, plötuspilari og tveir hatalarar. 647.000 (greiðslukjör) 29800 Skipholti19 Verslu uct rtho.it itoholgin Vor'sluítortno n ndhelgtit Ver’slu nor'rrton nohelgt n Aukin löggæsla í Ámes og Rangárvallasýslum • um verslunarmannahelgina GP— Lögreglan í Arnes- og Rangárvallasýslum hefur mikinn viðbúnað fyrir helgina. Hjá lögreglunni á Hvolsvelli fengum við þær upp- iýsingar að einn bll frá henni muni hafa aðsetur i Þórsmörk og vera þar a.m.k. tvær nætur. Þar verður einnig sú nýjung að læknir verður í bílun- um um helgina, bæði til þess að stemma stigu við ölvun við akstur inni í ó- byggðum, og eins til þess að hjúkra slösuðum og særðum ef þörf krefur. Lögreglan i Rangárvallasýslu hefur gert þetta einu sinni áður og gaf þaö, það góða raun að hún hyggst reyna þetta aftur núna. Lögreglan mun fara um lög- gæslusvæðið eins og kostur er, þ.e. að Galtalæk og i Land- mannalaugar auk Þórsmerkur. Bilakostur lögreglunnar á Hvolsvelli eru tveir fullkomnir lögreglu og sjúkrabflar en auk þess munu þeir bæta við sig ein- um einkabil um helgina. Lögreglan i Arnessýslu tjáði okkur að nokkuð blint væri rennt i sjóinn þar varðandi lög- gæslu þar sem engin skipulögð mannamót verða haldin i sýsl- unni um þessa verslunar- mannahelgi. Hins vegar kváð- ust lögreglumenn munu auka löggæsluna talsvert, en i Arnes- sýslu eru margir staöir sem gjarnan heilla ferðamenn til þess að setjast niður s.s. Þjórsárdalur, Laugarvatn, Þingvellir o.fl. Á báðum stöðunum vildu lög- reglumenn koma þeirri orð- sendingu á framfæri að öku- menn sýni tillitssemi i akstrin- um nú um helgina og þá ekki sist við framúrakstur og mæt- ingar til þess að forðast rúðu- brot. GP— A Atlavik eru ekki lengur nein skipulögð hátíðarhöld eins og voru forðum. Hins vegar heillar Atlavík alltaf jafn mikið og fjöldi manns gistir þar jafnan f tjöldum um verslunarmannahelgina. Þá hefur blaðið fregnað að ÚIA hyggist standa fyrir ratleik fyrir tjaldgesti um þessa verslunarmannahelgi þeim til skemmtunar og heilsubótar. (Tímamynd: KEJ) Skógarmenn KFUM: Opið hús í Vatnaskógi llm verslunarmannahelgina, 3. —6. ágúst n.k., verður OPIÐ HÚS i Vatnaskógi i tilefni 50 ára afmælis Skógarmanna KFUM, en Skógarmenn KFUM eru þeir, sem dvalist hafa I sumarbúðum i Vatnaskógi i dvalarflokki, og sjá þeir um rekstur starfsins þar. Tilgangur þessa opna húss er að gefa gömlum Skógarmönn- um og öðrum velunnurum starfsins i Vatnaskógi kost á að heimsækja Vatnaskóg dags- stund, heilan dag eða eina helgi. Er ekki að efa, að margir munu gleðjast yfir að fá tækifæri til að koma i Vatnaskóg eftir margra ára og jafnvel áratuga fjarveru, þvi ófáir eiga þaðan sinar bestu æskuminningar. Aðgangur að svæðinu er ókeypis ogi tjalsstæðaleiga eng- in. Matsala verður á staðnum og hópferð verður fyrir billeys- ingja, upp i Vatnaskóg frá Reykjavik föstudagskv. 3. og heim aftur mánud. 6. Samverustundir verða að morgni og siðdegis, og kvöld- vökur laugardags- og sunnu- dagskvöld. Að öðru leyti verður deginum varið til leikja og iþróttaiðkana á þurrlendi og i vatninu. Þjóðhátið í Eyjum: Búist við gestum alltað 20 ^ mikill viöbúnaöur w löggæslumanna GP — I Vestmannaeyjum er búist viö allt aö 20 þús. gestum á þjóðhátíö og af -þeím sökum hefur lög- reglan í Vestmannaeyjum aukiö og eflt löggæsluna mikið umfram það sem venjulega gerist. Viðmælandi okkar i Vest- mannaeyjum sagði að allir lög- reglumenn staðarins yrðu i starfi um helgina. Yfirleitt hefur lög- reglan i Vestmannaeyjum fengið lið lögreglumanna frá „megin- landinu” á þjóðhátið en svo verð- ur ekki nú, enda hefur löggæslu- mönnum verið uppálagt að spara semkostur er. Þá gat hann þess að veörið myndi alveg ráða þvi hvort löggæslustarfið yrði erilsamt nú um helgina eða ekki, — Gott veð- ur og sólskin, litið að gera — úr- koma og rok — mikið að gera.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.