Tíminn - 12.08.1979, Blaðsíða 5

Tíminn - 12.08.1979, Blaðsíða 5
Sunnudagur 12. ágúst 1979. 5 ! jJ'lH «n« Að láta þroskaheft eða blind börn liggja á dýnum á gólfinu er áreiðanlega mjúkt og gott, — en þau sofna! Þau þroskast ekki með þeim hætti! — ef við þjálfum þau eingöngu deyja barnssálirnar! — Trúið á börnin, virðið þau, komið upp kerfi og skapið þroskandi um- hverfi fyrir börnin. Þessar eru skoðanir Lilli Nielsen frá Danmörku, sem fengist hefur við umönnun þroskaheftra smá- barna, og hefur gjörbylt mörgu af því, sem tíðkast hefur lengi í umönnun og þjálfun þroskaheftra, fjöl- fatlaðra barna. Gjörbylting i umönnun þroska- heftra og einkum blindra barna og misskiljum, en meö æfingunni tekst okkur þetta æ oftar. Viö veröum aö þora aö gera vitleysur ef viö eigum aö læra eitthvaö. ofan i fati, stappa fótunum o.fl. Sýni barniö verulegan áhuga á einhverju er hægt aö skapa fjöl- breytni i því til aö þaö veröi stöö- öllum þeim ónýttu höndum, sem þroskaheftir sitja meö i skauti sér athafnalausir. Þýtt og endursagt S J í tæpan hálftima reyndi Lillf Nielsen að vekja áhuga Lenu á ein- hverjum hlutanna, sem hún geymdi i vaskafati. Lena vildi ekki! Hún sneri upp á sig, ýtti hlutunum frá sér og hratt Lilli frá sér. En Lilli þráaöist viö og kom meö nýja og nýja hluti. Kúlur sem hún rúliaöi eftir handlegg barnsins, piastflaska, sem hún rispaöi meö nöglinni, timaglas, sem Lena fékk aö heyra i, mjúkir burstar, harðir burstar. Ekkert dugöi. Nokkrum sinnum tók Lena fatið og henti öilu saman I gólfiö.... En loksins þegar Liili lagöi glerkúlu i lófa Lenu, setti hún hana upp i sig, beit i hana og smakkaði og lét hana renna eftir tönnunum. Siðan skoöaöi hún fleiri kúlur úr gleri og tré, pingpongkúlur en Lillf talaöi viö hana I sifellu, sagöi frá og hvatti hana. Þaö er börnum mikiivægt aö vita aö þeim hafi tekist eitthvaö, segir LilII. „Ekkert virkar eins iamandi á þroskann og vonbrigöin yfir mistökum þau eru miklu verri en þroskahömlun”. Lilli „Þjálfun er orö, sem ekki ætti að vera til”, segir Lilli. Þaö er áriöandi að skapa barninu um- hverfi, sem gerir þvi kleift að þroskast — i félagsskap fullorð- inna, en einnig eitt saman. Lilli Nielsen var upphaflega fóstra, en fór að vinna með blind- um börnum, og aðgerðir sinar > hefur hún fyrst og fremst hugsað meö tilliti til þeirra, en þó er fariö að beita þeim við blind og þroska- heft börn og fjölfötluð börn, sem sum hver eru sjáandi. — Það sem vakti áhuga minn var að ég tók eftir að blind, . þroskaheft börn voru stimpluð ' alvarlega sköðuð. Það var ékki sanngjarnt. Það hlaut að vera eitthvað sem olli þvi aðþau hefðu aldrei haft tækifæri til að þroska þá hæfileika, sem þau hafa þrátt fyrir fötlun sina. Ég leitaði skýr- ^ inga i bókum en fann engar. Horfum á eðlileg börn — Þá fór ég að athuga þróun „eðlilegs” barns. Ég tók vel eftir öllum þeim smáu skrefum, sem eðlilegt barn tekur á þroska- brautinni, og þegar ég vann með 1 blindumogþroskaheftum börnum reyndi ég að komast að þvi hve langt þau hefðu náð á þroska- brautinni. Jafnvel þótt barn sé 5-6 ára gamalt er það e.t.v. á sama þroskastigi og eðlilegt hálfs árs gamalt barn. Þegar ég taldi mig I hafa fundið þroskastigið fór ég að leika leiki, sem eölileg börn leika á tilsvarandi aldri — fingurleiki, fótleiki, setja hluti i munninn o.sv.frv. — Við verðum að fara i gegnum öll þessi örsmáu þroskastig — það gengur ekki að sleppa nokkru ► þeirra úr — og það á viö einnig um þroskaheft og blind börn. Þú verður að missa hluti ótal sinnum áður en þú lærir að gripa og halda föstu, þú dettur mörgum sinnum áður en þú lærir aö taka á móti og sitja eða standa upprétt(ur).... . _ Þaö ætti að vera regla, að allir sem vinna með þroskaheft- um/blindum börnum vinni einn dag i mánuði með eðlilegum börnum, svo aö öruggt sé að þeir þekki eðlilegan þroskaferil barns! Fötlunin margfaldast Það tekur sinn tima fyrir heil- brigð börn að fara i gegnum öll þroskastigin. Fyrir þroskaheft börn tekur þetta enn lengri tima eigi þau auk þess við aðra fötlun að striða, t.d. blindu, séu spastisk i eða heyrnarskert margfaldast hindranirnar á hinni eðlilegu þroskabraut. Hér er hægt að beita aðferðum Lilliar Nielsen aö þvi, sem hún kallar „aðgerðir, sem bæta eiga upp fötlun”, eða „aukin örvun”. . Blint barn sér ekki og upp- götvar hluti i kringum sig sem vekja forvitni þess og það siðan reynir að ná i. Blint barn upp- götvar aöeins það sem þaö rekst á fyrir tilviljun. Blint barn skilur ekki hvaðan hljóð úr hringlu 1 kemur ef það fær ekki jafnframt I að þreifa á hringlunni. Ef heil- brigt barn hefur tiu hluti i kring- um sig verður blint barn aö hafa a.m.k. fimmtiu hluti til þess að svo takist til að það rekist á fimm þeirra. Þess vegna ber Lilli með sér marga poka og vaskaföt af l hlutum þegar hún vinnur. Áhugi barnsins ræður — Ég uppgötvaði einnig þegar ég lék við og vann með börnunum að þáð var ekki ég sem átti að ákveða hvaða hlutir væru i skemmtilegir og vektu áhuga. Það áttu börnin sjálf að gera. Starf mitt var að sjá um að hlut- irnir væru þarna, að gefa þeim kost á að kynnast þeim og e.t.v. finna eitthvað sem vekti áhuga þeirra. Þaö er ekki góð hugmynd að reyna að þjálfa upp alls konar athafnir, sem börnin hafa ekki þroska til að framkvæma eða vilja til að framkvæma. Þau kynnu að geta lært þessa eða hina athöfn- ina, en þau framkvæma hana aldrei að eigin frumkvæði. Lilli hefur ekki áhuga á þvi sem börnin geta ekki — það er það sem þau geta, sem vekur áhuga hennar. Það er áriðandi fyrir fötluð börn að reynt sé að auka þá reynslu, sem þau verða fyrir gegnum þau skilningarvit sem eru virk, heyrn, tilfinningu, bragðskyn o.sv.frv. Lilli gerir þetta á margvislegan hátt. 1 stað þess að láta börnin liggja á mjúkum dýnum lætur hún þau liggja á tréplötu, sem hvilir á fimm cm breiðum lista, þannig að bergmálar undir. Ef rispað er með nagla i tréplötuna berst hljóðið og margfaldast og þau finna lika titring i likamanum.... Hver hreyfing barnsins heyrist lika á tréplötunni svo ekki sé talað um allan gauraganginn, sem verður þegar heilli plastskál með hlutum er hent á plötuna. Það er mikilvægt að blind börn kasti hlutum. A þann hátt geta þau stöðugt stækkað athafnasvið sitt — uppgötvað umhverfi sitt. Onnur aðferð til að auka örvun getur verið að gefa hlutunum bragð — hella vanillusykri eða sýkkulaðidufti á glerkúlur. Þá verða þær kannski meira spenn- andi en áður og það að bragðið er ólikt er heldur til bóta. Athafnir að eigin frum- kvæði skipta máli Aðalatriðið er að auka reynslu barnanna, gefa þeim tækifæri til að þroskast áfram, að skapa heppilegt umhverfi, sem bætir eins og kostur er upp fötlun þeirra. Þetta felur ekki I sér að stöðugt þurfi að sinna barninu. Þvert á móti. Eigið frumkvæði gleymist oft. Börnin verða að fá aö kynnast þvi að þau sjálf finni 'upp á einhverju — ekki að þaö sé alltaf einhver annar, sem geri eitthvað með þeim. Að hljóð sé árangur einhvers sem þau sjálf hafa gert, að finna spennandi hluti með þvi að þreifa meö hönd- unum i kringum sig.... Meðan Lilli leikur við börnin talar hún stöðugt, segir hvað hún ætli að gera, hvaða hluti hún sé með, segir uppörvunarorð, syngur, fer með barnavisur o.sv.frv. — Jafnvel heilbrigð börn skilja margt áður en þau sjálf geta farið að tala. Við verðum að trúa þvi að barnið skilji, og stöðugt halda áfram að tala við það. Jafnvel þótt þau skilji ekki orðin þá heyra þau á tóninum hvað við eigum við. Blind börn eru einkum næm fyrir tónfalli og þau eru alveg háð röddum okkar til að vita hvernig við bregðumst við. Þau sjá ekki hvort við erum uppörvandi eða reiö á svip. — Við verðum að læra að skilja það sem þau „segja” með hljóð- um, svipbrigðum o.sv.frv. Oskur eru ekki alltaf til að sýna mótþróa eða hryggð — kannski kunna þau ekki önnur hljóð. Hvert barn er einstaklingur sem hefur sina eiginleika, vana og hegðunar- mynstur. Við verðum að læra hvað þau merkja og túlka þau og reynslu þeirra. i byrjun fer margt fram hjá okkur og við mistúlkum ónýttar hendur þroska- heftra Margt af þvi sem Lilli heldur fram eru sjálfsagðir hlutir. Að við verðum að skriða áður en við get- um gengið og að ekki megi sleppa úr nokkru þroskastigi þótt likam- legur þroski sé 14 eða 15 ára barns. Og aö blind eða þroskaheft börn verði að fá uppbót fyrir fötl- un sina til þess að þau eigi þess kost að ganga i gegnum öll þroskastig. — Vissulega hljómar þetta sem sjálfsagt, telur Lilli, en jafnframt verður maður alla tiö að vinna á mismunandi hátt með ólfkum börnum. Laga „aðferöirnar” barninu og reyna að finna up nýju þegar gömul „ráð” di ekki. Barni, sem vill ekki n hendurnar, má kannski hjá með þvi að fá það til að n fæturna, vaða, sparka i kú Ugi iyrir nyrri reynsiu. bmátt og smátt fer barnið e.t.v. aönota hendurnar lika — stórkostlegur áfangi I baráttunni til aö fækka

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.