Tíminn - 12.08.1979, Blaðsíða 17

Tíminn - 12.08.1979, Blaðsíða 17
Sunnudagur 12. ágúst 1979. 21 America - Silent Letters Capitol/Fálkinn ★ ★ Margir munu kannast viö bandari'Sku hljómsveitina American, en nú eru liöin um 7 ár síöan þeir félagar Dewey Bunnel, Gerry Beckley og Dan Peek, sem skipuöu America i upphafi, slógu i gegn meö laginu Horse vith no name”. A næstu árum fylgdu mörg vinsæl lög í kjölfariö hjá þeim félögum ogþóttimörgum sem svo aö þarna væri komin hljómsveit sem fyllt gæti skarö þaö sem Crosby, Stills, Nash and Young skildu eftir sig. Bestu lög Amer- ica á þessum tima voru Ventura Highway” (sem reyndar var ótrúlega likt Horse with no name”’ ,,Sister golden hair”, Muskrat love” og Hat trick”, af samnefndri plötu. Fyrir skömmu kom út ný plata meö America„Silent Letters” og ber þar helst til tiöinda aö nefna að Dan Peek er hættur og þeir Beckley og Bunnel skipa þvi einir diiettinn America. „ Silent Letters”, sem hljóðrituð var i mars- og april- mánuöi s.l. hefur aö geyma 10 lög, sem vel flest eru eftir þá Beckley og Bunnel. Ekki veröur hægt að segja aö mikið búi að baki þess- um lögum og ef á heildina er litið þá er þessi plata meö þeim slapp- ari sem America hefur sent frá sér. Sem sagt, lögin eru frekar út- þynnt og engu er likara en að þeir félagar lifi i fortiðinni. Það verður þó að teljast kostur við þessa plötu, að allur hljóöfæra- leikur er mjög góður og söngur oft á tiðum einnig, en textarnir eru að venju hið mesta endemis bull — þannig að þeir félagar hefðu betur heima setið en sent þessa piötu frá sér. No Dice-2 faced EMI/Fálkinn ★ ★ ★ Ein þeirra hijómsveita sem sprottiö hafa upp eins og gorkúlur aö undanförnu er breska rokk- hijómsveitin No Dice, en hún er skipuð þeim Gary Strange (bassi), Roger P. Ferris (söng- ur), David Martin (gitar) og Cris Wyles (trommur). No Dice sendi nýlega frá sér sina fyrstu plötu og inniheldur hún að mestu leyti tónsmiðar Gary Strange, sem mun vera for- sprakki hljómsveitarinnar. Nefn- ist plata þessi plata „2 faced” og rýmar það heiti við nafn hljóm- sveitarinnar — en Dice mun vera eins konar leikur hjá þeim i Bret- landinu. Tónlist No Dice er rokk af þyngri gerðinni, ekki ósvipað þvi sem gerist hjá irsku hljómsveit- inni Thin Lizzy, en reyndar er No Dice nokkrum gæða klössum neð- ar en sú hljómsveit. Það verður heldur ekki sagt að No Dice veki neina umtalsverða hrifningu hjá manni — til þess er hljómsveitin of lík þúsundum annarra sem runnið hafa sitt skeiö á undan- förnum áratug. John Townley - Townley EMI/Fálkinn ★ ★ -f- Trúlega mun breski tónlistar- maðurinn John Townley vera fremur litt þekktur hériendis, enda ekki nema nokkrir mánuöir siöan honum skaut upp á sjónar- sviöiö f Bretlandi. Það var hið þekkta plötufyrir- tæki EMI I Bretlandi sem tók Townley upp á arma sina eftir að forráðamenn þess heyrðu tónlist hans og skömmu eftir að samn- ingar höfðu verið undirritaðir gaf Townley út sins fyrstu plötu fyrir EMI. Heitir plata þessi einfald- lega Townley”,en á plötunni er 10 lög öll eftir John Townley. Það verður vist að teljast tölu- vert hugrekki af Townley aö senda þessa plötu frá sér, á tim- um þunk” og úew wave”, en öll lögin á plötunni eru 1 léttum Soft rock” stil og hljóma flest þannig að maður hefur þaö á tilfinning- unni að þetta hafi allt saman ver- ið gert þúsund sinnum áöur. Ekkert laganna á plötunni telst þannig aö minum dómi til meiri háttar listaverka — heldur eru þetta gamlar góðar lummur, sem skilja litið eftir sig og falla þvi fljótlega i gleymsku. Það verður þvi að teljast furðulegt að EMI skuli fjárfesta i framleiðslu sem þessari, þvi að útilokað er aö þetta sé það sem koma skal. Bruford - One of a kind Polydor/Fálkinn ★ ★ ★ Einn athhyglisveröasti trommuleikari siöari ára er án efa breski trommuleikarinn Bili Bruford. Hefur hann oftar en einu sinni veriö útnefndur meö bestu trommuieikurum heims i vin- sældakosningum og skipaö þar á bekk með köppum eins og Ginger Baker, Carl Palmer, Cozy Powell og John Bonham. Þær eru heldur ekki slorlegar hljómsveitirnar sem Bruford hef- ur leikið með i gegnum árin og nægir þar að nefna King Crimson, Yes og UK, en þá siðast nefndu stofnaði hann fyrir um einu og hálfu ári. Ekki varð þó vera hans i hljómsveitinni löng, þvi að ný- lega stofnaði hann hljómsveitina Bruford, ásamt Allan Holdswort gitarleikara UK og eru i hljóm- sveitinni auk þeirra, þeir Jeff Berlin (bassi) og Dave Stewart (hljómborö). Fyrsta plata hljómsveitarinnar kom út fyrir skömmu og nefnist hún One of a kind” og má segja að þar kveði viö nýjan tón hjá Bruford. Megin uppistaða plötunnar er nefnilega háþróað- ur rafmagns-jazz, án söngs og skipar trommuleikur Brufords að sjálfsögðu þar veglegan sess. Um margt er tónlistin á plötunni ekki ósvipuð þeirri sem var á sólóplötu Brufords sem út kom i fyrra, og þvi e.t.v. rangt að segja að á plöt- unni kveði viö algjörlega nýjan tón. Um tónlistina er annars það að segja að hún er fremur þægileg á- heyrnar án þess aö verða nokkurn tima gripandi — ESE Mazda verksmiöjurnar í Hiroshima eru taldar meö tæknilega full- komnustu bílaverksmiöjum í heimi, enda bera Mazda bílar þaö meö sér í hönnun og öllum frágangi. Geriö samanburö. Bílaborg hf. hefur enn einu sinni gert ótrúlega hagstæða samninga fyrir árið 1980. Árgerð 1980 byrjar að koma í september. Vinsamlegast staðfestið pantanir á I MAZDA 323, MAZDA 626, MAZDA 929 I, I MAZDA RX7 OG MAZDA PICUP BÍLABORG HF. SMIDSHÖFDA 23 símar: 81264 og 81299

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.