Tíminn - 31.08.1979, Qupperneq 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Aðalfundur Stéttarsambands bænda hefst í dag:
Samdráttur í búvörufram-
laiftclll nil 1* • rnjólkin 5% minni en I fyrra,
IIU 1/VbCwl en neyslan 3% nxeiri
HEI — AOalfundur Stéttarsam-
bands bænda veröur settur í
hótellnui Stykkishólmi á morg-
un, laugardaginn 1. september.
A fundinum verður kosin ný
stjórn Stéttarsambandsins, en
það er gert annað hvert ár.
Óvenjulega miklar breytingar
hafa orðið á fulltrúum frá sið-
asta aðalfundi. Taiið að a.m.k.
þriðjungur þeirra sem sitja
fundinn, séu nýir menn sem
ekki hafa setið aðalfund áður.
Stærstu mál fundarins verða
að sögn Gunnars Guðbjartsson-
ar, formanns Stéttarsambands-
ins, verðlagsmálin, sölumálin
og skipulagsmál. Bæði skipulag
samtakanna og eins fram-
leiðslustjórn i landbúnaðinum,
samkvæmt umræöum sem urðu
sl. vetur vegna lagasetningar
um það efni. A fundinum veröa
væntanlega teknar ákvarðanir
um hvað verður notað af þeim
stjórnunarheimildum sem Al-
þingi heimilaði Framleiösluráði
landbúnaðarins, og hvenær þær
eiga að koma til framkvæmda,
sagði Gunnar.
Samkvæmt heimildum
Timans er giskað á, að fundur-
inn leggi til, að ekki verði að svo
stöddu gerðar aðgerðir til að
draga úr mjólkurframleiðsu
meira en oröið er. Mjólkur-
framleiðslan er nú 5% minni en
á sama tima i fyrra, en sölu-
aukning á sölusvæði Mjólkur-
samsölunnar er um 3% miðað
viðnýmjólk, sem þýðir að vandi
vegna umframframleiðslu
hefur minnkað um 8%.
1 fyrra mátti mjólkurfram-
leiðsla á Suðurlandi ekki minni
vera yfir vetrartimann til að
anna eftirspurninni. Er þvi séð
fram á talsverða mjólkurflutn-
inga af Norðurlandi I vetur, en
það þýðir aftur lægra Utborgun-
arverð fyrir bændur á Suður-
landi, þvi þeir verða að greiða
flutningskostnaðinn á mjólkinni
að norðan, og þvi eölilegt aö
þeim litistekkiá að minnka sina
framleiðslu frekar að sinni.
Hins vegar er brýnt að jafna
hana milli árstiöa.
Vexdr
hækka
i. sept.
Bankastjórn Seðlabank-
ans hefur ákveðið í sam-
ráði við rikisstjórn og
bankaráð að verðbótaþátt-
ur vaxta skuli hækka l.
sept. um 5 prósentustig og
verða þá heildarvextir 3ja
mánaða vaxtaaukainnlána i
32.5%. Verðbótaþáttur
annarra út- og innlána
fylgist að við þetta nema
sérstakar ástæður séu til
hlutfallslegrar aðlögunar
auk þess sem einstök
vaxtaákvæði eru sléttuð í
heilar og hálfar prósent-
ur. útlánsvextir hækka lit-
ið eitt minna en innláns-
vextir.
Um mánaðamótinhækka vextir
af almennu sparifé Ur 22% I 27%.
Forvextir af vixfllánum hækka Ur
35.5% f 40% og vanskilavextir
hækka Ur 4% á mánuöi i 4,5%.
Nánar er sagt frá vaxtabreyt-
ingunni á bls. 3.
Utanrlkisráðherrar Norðurlanda komu saman til fundar aö Hótel Sögu kl. 9.30 I gærmorgun og stóö fundur þeirra til hádegis, þegar hlé
var gert. Fundinum var svo haldið áfram kl. 15. ! dag er að vænta nánari fregna af störfum hans.
Verkbann á Grafíska
m Dagblaðaprentsmiðjumar stöðvast
HEI - A fundi islenska prentiðn-
aðarins i gær, var samþykkt að
beina þeirri ósk tð stjórnar
Vinnuveitendasambands tslands,
að vegna yfirstandandi kjara-
deilu og boðaðs vakta- og yfir-
vinnuverkfalls Grafiska sveina-
félagsins, boði Vinnuveitenda-
sambandið án tafar verkbann
gagnvart GSF i því skyni, að
knýja á um skjóta lausn máisins
og í samræmi við þá kjarasamn-
inga, sem gerðir hafa verið á
þessu ári og gilda til næstu ára-
móta.
Myndi þá ailur prentiðnaður
stöðvast frá næstu helgi. Jafn-
framt fór Félag prentiðnaðarins
fram á heimild til þess, að ákveða
samúðarverkbann gagnvart öðr-
um starfsmönnum prentfyrir-
tækja, dagblaða og þeirra sem
vinna stöðvast hjá vegna verk-
fallsaðgerðanna.
naraldur Sveinsson, formaður
FtP tók fram að þar væri aðeins
óskað heimildar, engin ákvörðun
’ hefði veriö um það tekin, hvort
henni yröi beitt. Hann staðfesti að
sú hugmynd heföi verið rædd á
samningafundi með Grafiska, I
fyrrakvöld, að visa málinu i
gerðardóm, og Timinn haföi frétt
að Grafiskir hefði ekki neitað
hugmyndinni að svo stöddu.
Grafiskir feneu sambvkkta heim-
ild til verkfails i allsherjarat-
kvæðagreiðslu sem talið var i, i
fyrrakvöld, en samkvæmt heim-
ildum Tfmans mun verkfalls-
heimildhafa veriö samþykkt með
naumum meirihluta, en tölur
hafa ekki verið birtar.
Komi vaktavinnuverkfallið til
framkvæmda, munu að öllum lik-
indum báöar dagblaöaprent-
smiðjurnar stöðvast, að sögn
Haraldar. Annar samningafund-
ur verður meö deiluaðilum i dag
og sagði Haraldur að auðvitað
yrði unnið alla helgina viö að
finna lausn á þessari deilu, áður
en til verkfalls komi.
Kratar gróflega ósammála um vaxtastefnu
HEI — Þingfiokki Alþýðuflokks-
ins gengur heldur illa að móta sér
ákveðna stefnu i ýmsum málum
sem margkunnugt er og virðist
stefnan i verðtryggingarmálum
ekki vera þar undanskilin.
í leiðara Alþýðublaðsins á mið-
vikudaginn sparar Vilmundur
Gylfason ekki stóru orðin fremur
en endranær, þegar hann ræðst á
ráðherrana Steingrim Her-
mannsson og Svavar Gestsson,
fyrir að „heykjastá framkvæmd
raunvaxtastefnunnar” eins og
hann orðar það. Ennfremur segir
Vilmundur „Það er furðulegstað-
reynd að jafnvel ráðherrar í
rikisstjórn ræða það I blöðum,
hvortfaraberiað landslögum eða
ekki”.
t Morgunblaðinu i gær, er siðan
viðtal við formann Alþýðuflokks-
ins Sighvat Björgvinsson, um
sama efni. Þar segir Sighvatur:
„Við alþýðuflokksmenn vildum
að ekkiyrði horfið frá Olafslögun-
um varðandi stefnuna i vaxta-
málum, en hins vegar getum við
fellt okkur við þá niðurstöðu sem
varð, að hafa sjálfa vaxtahækk-
unina minni en leggja meira af
verðtryggingu við höfuðstólinn”.
Siðar sagði Sighvatur, „það er
ekki hægt að ná verðbólgunni nið-
ur með þvi aö herða eina skrúf-
una i drep, vaxtaskrúfuna, þegar
það vantar rærnar á allar aðrar
skrúfur i efnahagsmálunum”.
Svo mörg voru þau orð, og
gaman væri að vita hvenær þeir
Alþýðuflokksmenn gætu komið
sér niður á sameiginlega stefnu i
einhverju máli.
Hvqð segja félagar í
HIP um verkfalls-
boðun GraJnsJca
sveinafélagsins? Bis 8
-
Iscargo og Vængir
í eina sæng
Baksíða
Aðalmál Fjórðungsþings
Norðurlands
Jðnþróun og
framhaldsmenntun
Baksíða