Tíminn - 31.08.1979, Síða 9

Tíminn - 31.08.1979, Síða 9
Föstudagur 31. ágúst 1979. 9 Af bókum Sagan af Breska íhaldsflokknum Saga breska thalds- flokksins Robert Blake: The Conservative Party from Peel to Churchill. Fontana Books 1979 (4. útg.) 305 bis. Um og eftir miðja 17. öld tóku stjórnmálaflokkar aö myndast á Bretlandseyjum. Eins og vænta mátti voru þessir flokkar harla ó- likir þeim sem nú starfa, nán- ast samtök einstakra þingmanna um einstök mál og vildu flokks- böndin þá oft bresta af litlu til- efni. Þegar leiö á 18. öld fengu samtök þessi á sig fastari mynd ogskiptust þingmenn þá aöallega i tvo flokka: Whigga og Toria. thaldsflokkurinn hefur löngum veriö talinn afsprengi Toria og enn þann dag i dag eru Ihalds- menn kallaöir Tories i daglegu tali. Upphaf íhaldsflokksins Robert Blake telur íhaldsflokk- inn ekki beinan arftaka Torianna. 1 upphafi bókarinnar reynir hann aö timasetja upphaf flokksins. Það verður þó varla gert af ná- kvæmni, enda erfitt aö segja til um, hvenær menn hættu að veröa Toriar og geröust konservativir. Niöurstaöa höfundar er sú, aö Ihaldsflokkurinn hafi i fyrsta lagi orðiö til I þeim sviptingum er uröu vegna endurbóta á kosn- ingalögum um 1830. Um svipað leyti varö Robert Peel leiðtogi flokksins ogleiöir Blakemörgrök aö þvi, aö sá flokkur, sem hann stýröi, hafi i veigamiklum atriö- um veriö gjörólfkur þeim flokki, sem laut forystu Williams Pitt yngra á Napóleonstimanum. Enn eimdi þó eftir af áhrifum gömlu Tórianna og þótt Peel hafi breytt flokknum mikiö og þótt ýmsar stofnanir Ihaldsflokksins eigi rætur að rekja til áranna um 1830 telur Blake, aö hinn eiginlegi Ihaldsflokkur hafi fyrst fengiö fast mót um miðjan fimmta ára- tug 19.aldar. Þá uröu miklar deil- ur i þinginu um verndartolla á korni. Peel tapaði þeirri orrustu og nýir menn komust til valda i flokknum. Þá uröu landeigendur mest ráöandi um sinn, en siöar uröu fésýshimenn og iönrekendur styrkaste stoö hans. Glæsileg saga Siöustu 35 ár 19. aldar voru Ihaldsmenn samfleytt viö völd á Bretlandi. Fýrra hluta þess tima- bils var Disraeli leiðtogi flokksins en siöan Salisbury lávaröur og var hann forsætisráöherra fram yfir aldamót, er Balfour tók viö. En Balfour hélst ekki lengi á völdunum. Hann beið mikiö af- hroð i kosningunum 1906 og tóku Frjálslyndir þáviö stjórnartaum- unum. Ihaldsmenn komust svo aftur til valda áriö 1922 og héldu þeim, nær óslitiö, uns Verka- mannaflokkurinn sigraöi i þing- kosningunum áriö 1945. Siöarihluti 19. aldar var mesta stórveldistimabiliö I sögu Breta. Ihaldsflokkurinn hefur löngum notiö ljómans frá þeirri tiö. Robert Blake skýrir rækilega á- stæöur hinnar löngu stjórnarsetu, ræðir áhrif hennar á flokkinn og greinir þau áhrif, sem flokks- menn höföu á mótun og uppbygg- ingubreskaheimsveldisins. Hann skýrir einnig þær breytingar, sem uröu á flokknum á þessu skeiöi, hvernig hagsmunir landeigenda viku smám saman fyrir hags- munum og áhrifum kaupsýslu- manna og atvinnurekenda, auk þess sem efri miöstéttarmenn tóku aö styöja flokkinn i rikari mæli en áöur. Að mörgu leyti hefur flokkurinn þó litiö breytst og ýmsar gamlar heföir hafa fylgt honum frá upp- hafi vega. Um 1830 greindust Bretar ekki sist i stjórnmála- flokka eftir trúarskoöunum. Ihaldsflokkurinn hefur frá fyrstu tið stutt ensku biskupakirkjuna og gætt hagsmuna hennar i hvi- vetna. Og atkvæði flokksins hafa að mestu komiö frá anglfkönum. Meðlimir annarra kirkjudeilda hafa jafnan fremur kosiö aöra flokka. Flestir forystumenn íhaldsflokksins hafa veriö úr hópi anglíkana. Þó er þetta auövitaö ekki einhlitt og sem dæmi má nefna var Bonar Law kaþólskur, en hann var forsætisráöherra flokksins eftir 1920. Oftast hafa hagsmunir flokksins og biskupa- kirkjunnar þó verið svo sam- slungnir, aö gjarnan hefur veriö haft á oröi i Bretlandi, aö biskupakirkjan væri ekki annaö en íhaldsflokkurinn á bæn! En auövitað skiptir fleira máli um fylgi viö stjórnmálaflokka en trúarskoöanir. Fylgi breskra stjórnmálaflokka hefur löngum þótt skiptast nokkuð ákveöiö eftir landshlutum. Á Englandi sjálfu hefur Ihaldsflokkurinn löngum haft undirtökin, en aörir, Frjáls- lyndir og Verkamannaflokkurinn hafa jafnan haft meira fylgi i Skotlandi og Wales. Sama var um Irland að segja fram aö skipting- unni. Eftir hana hafa Ihaldsmenn jafnan haft langmest fylgi á N-lr- landi. Stríð og fylgistap Eitt er þaö atriöi, sem viröist nær öruggt til fylgistaps i bresk- um stjórnmálum, en þaö er aö teljastbera ábyrgö á striöi. Skipt- ir þá engu hver úrslit striösins veröa. Allt frá dögum Krims- striðsinshefursáflokkur, sem fór meö völd næstu árin áöur en styrjöld hófst, beöið afhroö i næstu kosningum aö striöi loknu. Eina undantekningin var eftir fyrri heimsstyrjöldina. íhalds- menn biðu þannig mikinn ósigur 1906, i fyrstu kosningunum eftir Búastriöiö, og aftur 1945 þegar fyrst var kosiö eftir siöari heims- styrjöldina. Um þann ósigur segir Robert Blake, að hann heföi þó sennilega oröiö enn meiri heföi vinsælda Churchills ekki notið viö. A Churchill hefur Blake þó heldur litiö álit. Hann viöurkenn- ir, að hann hafi veriö frábær styrjaldarleiðtogi en þá gat hann stjórnaö sem næstsem einvaldur. A friöartimum þótti honum allt dauflegra og naut sin hvergi sem skyldi. Afbragðs bók Bók Roberts Blake er afbragös góö. Hann skrifar mjög vel, hefur fágæta innsýn i stjórnmálaúfiö og er skemmtilega kiminn. 1 bókinni eru töflur um ýmislega skiptingu áfylgi flokkannaá ýmsum timum og einnig er birt skrá yfir rikis- stjórnir Bretlands frá 1830-1955. Höfundur bókarinnar, Robert Blake, var aölaður fyrir fræöi- störf áriö 1947. Hann hefur starf- að viö kennslu i stjórnmálafræö- um i Oxford um lángt skeiö, auk þesssem hann hefur fengist mik- ið viö rannsóknir og ritstörf. A meöal annarra rita hans má nefna ævisögu Disraelis, sem út kom áriö 1966. Jón Þ. Þór. W. Churchill, mikill styrjaldarleiðtogi en þótti flest dauflegt er friður rikti. Vélsmiðjan Þór hf. ísafirði Símar 3711 og 3041 Símnefni: Vélar * Sandblástur * Zinkhúðun Sérgrein: * Mótorvélaviðgerðir * Rennismíði * Eldsmíði * Ketilsmíði * Plötusmíði * Málmsteypa * Rafsuða *Logsuða * Bílaviðgerðir l Útboð Fjarhitun Vestmannaeyja óskar eftir til- i boðum i lagningu 8. áfanga hitaveitu- dreifikerfis. Útboðsgögn eru afhent á bæjarskrif- stofunum Vestmannaeyjum og Verkfræði- skrifstofunni Fjarhitun hf., Reykjavik gegn 30. þús. kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð i Ráðhúsinu Vest- mannaeyjum þriðjudaginn 4. sept. kl. 16. Stjórn veitustofnana I Vestmannaeyjabæjar. Handavinnukennarar Að skólanum Hvolsvelli vantar handa- vinnukennara pilta. Umsóknir sendist hreppsskrifstofu Hvols- hrepps. Rafvirkja vantar Óskum að ráða rafvirkja til starfa. Rafafl, SVF Barmahlið 4, Simi 28022.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.