Tíminn - 30.09.1979, Blaðsíða 21

Tíminn - 30.09.1979, Blaðsíða 21
Sunnjudagur 30. september 1979 21 Neil Young - Rust never sleeps Reprise / Fáikinn ★ ★ ★ ★ Sagt er aö Neil Young takist jafnan best upp viö hljómplötu- gerö, njóti hann aöstoöar hljóm- sveitarinnar Crazy Horse. Mik- iö má vera ef ekki leynist sann- leikskorn f þessu, a.m.k. bendir nýjasta hljómplata hans, „Rust never sleeps”, til þess aö svo sé. ,Rust never sleeps” er reynd- ar um margt mjög merkileg plata, auk þess að vera fyrsta platan i langan tima þar sem Crazy Horse aöstoöa Young. A fyrri hliö plötunnar er Young einn sins liös og nýtur aöeins aö- stoöar gitarsins, en á seinni hliöinni hafa Crazy Horse sleg- ist I hópinn — og aö vonum mun- ar um minna. A fyrri plötuhliöinni eru 5 lög og hefst platan á laginu ,,My My, Hey Hey (Out of the blue , þar sem Young syngur um hina forgengilegu frægö, sem falliö hefur rokkstjörnunum i skaut. Eöa eins og Young segir: „The king is gone but he’s not for- gotten../this is the story of Johnny Rotten/It’s better to burn out than it is to rust/ The king is gone but he’s not for- gotten”. — Siöasta lag plötunn- ar er siöan spegilmynd af þessu lagi, en þaö heitir „Hey Hey, My My (Into the black)”. Þar syng- ur Young: The king is gone but he’s not forgotten/This is the story of Johnny Rotten/ It’s better to burn out ’cause rust never sleeps/ Tþe king is gone but he’s not forgotten.- Segja má aö þessar ljóölinur feli I sér megininntak plötunn- ár, en athygli vekur einnig aö I tveim lögum á fyrri plötuhliö syngur Young um óréttlæti hvita mannsins gagnvart indi- ánum. Ég tel ekki ástæöu til þess aö fjölyröa frekar um þessa plötu, en hún er greinilega spor I rétta átt — velþegin plata frá Neil Young eftir allar útsöluplöturn- ar aö undanförnu. -ESE Steel Pulse - Tribute to the martyrs /Fálkinn ★ ★ Eigi alls fyrir löngu var hér fjallað um hljómplötuna ,.Handsworth Revohition” meö bresku reggae hljómsveitinni Steel Pulse. Eins og þá kom fram, er hljómsveit þessi skipuö sjö hörundsdökkum hljóöfæra- leikurum frá smáborginni Handsworth i útjaöri Birming- ham, sem allir eiga sér þaö sameiginlegt aö vera af jama- Isku bergi brotnir — synir jama- Iskra innflytjenda. Nú er komin út ný plata meö Steel Pulse og ber hún heitiö „Tribute to the Martyrs”, eöa — óöur til pislarvottanna — eins og heiti hennar gæti útlagst á is- lenska tungu. Þessi hljómplata er um margt svipuö „Hands- worth Revolution” og óliklegt er aö hún veröi til þess aö koma hljómsveitinni I fremstu röö meöal spámannanna, eins og þeir Bob Marley, Peter Tosh, Burning Spear o.fl. hafa veriö nefindir. Ekki vantar þó trúar- rugliö og Jah— kjaftæöiö á þessa plötu, ensjálfstæö hugsun og frumlegheit eru aö sama skapi i lágmarki. Sannast sagna á ég bágt meö aö trúa þvi aö jafnvel pislarvottur Rastafari trúarbragöanna nr. 1, Haile Selassie heitinn keisari geti haft velþóknun á þessari plötu og ef svo er ekki þá heföu Steel Pulse betur heima setiö. — Þaö er reyndar alveg dæmigert fyrir plötuna — og þá sem aö henni standa aö i eina laginu, sem virkilega þarf aö standa fyrir sinu, „Jah Pickney (Rock against racism)”, þá renna Steel Pulse algjörlega á rassinn og best gæti ég trúaö þvi aö liösmönnum National Front (Bresku nasistasamtakannna) væri skemmt þessa dagana. —ESE Peter Tosh - Mystic Man Rolling Stones Rec. / Fálkinn ★ ★ ★ + Einn fremsti reggae lista- maöur heimsin^ I dag er tvimælalaust ’ Jamaica-búinn Peter Tosh, en hann sendi nýlegs frá sér plötuna „Mystic man”. Þessi plata er siLi önnur I rööinni sem hann sendir frá sér undir merkjum Rolling Stones Records, en sú fyrri var hin geysivinsæla „Don’t look back”, en eins og kunnugt er aöstoöuöu bæöi Mick Jagger og Keith Richards Tosh I titil- laginu á eftirminnilegan hátt. Nýja platan „Mystic Man” er um margt betri, en sú fyrri, enda öll heilsteyptari og jaf nari. Bestu lög plötunnar eru titil- lagiö „Mystic Man”, og lögin „Buk-in-hamn Palace” og „The day the dollar die”, en I þvi siöastnefnda syngur Tosh um fáll dollarans og minnkandi veidi: Bandarikjanna. Sem fyrr nýtur Tosh aöstoöar pottþéttra hljóöfæraleikara og ber þar fyrst aö nefna hljóm- sveit hans, Word, Sound and Power, en hana skipa þeir Robbie Shakespeare, Sly Dunbar, Mickey „Mao” Chung, Robbie Lyn og Keith Sterling. Fjöldi annarra hljóöfæraleikara kemur viö sögu á plötunni auk söngvara, en Peter Tosh sá sjálfur um upptökustjórn og flest allar útsetningar á plöt- unni. —ESE. Led Zeppelin - In trough the out door Swan Song Rec. / Steinar ★ ★ ★ ★ Nýjasta plata Led Zeppelin og jafnframt fyrsta plata þeirra I um þrju ár er nýkomin út og nefnist hún „In through the out door”. A plötunni eru 7 lög, 4 eftir Jimmy Page, Robert Plant og John Paul Jones i samein- ingu, 2 eftir Jones og Plant og 1 eftir Page og Plant. Athygli vekur viö þessa upp- talningu, aö hlutur John Paul Jones, bassaleikara hljóm- sveitarinna hefur vaxiö mjög á þeim árum sem liöin eru frá þvi aö siöustu plötur hljómsveitar- innar komu út og er hann nú tvi- mælalaust „sterki maöurinn” I hljómsveitinni. Sem fyrr er Led Zeppelin pottþétt hljómsveit og þrátt fyrir aö hljómsveitin þótti ekki sýna neitt sérstakt á Knebworth hljómleikahátiöinni, þá er greinilegt aö hljómsveitin veröur ekki lengi aö öðlast sinh fyrri styrk. Þaö er kunnara en frá þurfi aö segja, aö Led Zeppelin er skipuö völdum hljóöfæraleikurum og söngvarinn Robert Plant hefur greinilega engu gleymt á þeim árum sem liöin eru siöan & Zeppelin komu siöast fram. „In through the out door” er mjög j svipuöum stil og Led Zepþ'eiin tóku upp meö plötunni „Presence” fyrir nokkrum árum, en sú plata er ein sú umdeildasta sem LZ hafa sent frá sér. Persónulega er ég hrifinn af hinum nýja stil og þ.a.l. þessari nýju plötu, en hætt er viö þvi aö hún falli ekki I kramiö hjá þeim, sem afneituöu „Presence” á sinum tima. Bestu lög plötunnar eru „In the evening”, „Fool in the rain” og „I’m gonna crawl”, en önnur eru siöri. Þá er ég ekki hrifinn af laginu „Hot Dog”, sem er I eins konar „country and western” stil, en þetta lag mun eiga aö vera tilraun til þess aö ná til áheyrenda út fyrir raöir Zeppelin aödáenda. Útkoman veröur þó greinilega ekki nógu góö og þvi heföu Zeppelin betur gert meö þvi aö sleppa þessu lagi. Alan Parsons - Eve Arista / Fálkinn Nýlega sendi breski tónlistar- maöurinn og upptökustjórinn Alan Parsons frá sér sina fjóröu plötu, ”Eve”, og sem fyrr er þaö vandvirknin og fullkomtinin sem situr I fyrirrúmi. Trúlega er Alan Parsons ekki mjög þekktur hérlendis en hann gat sér fyrst gott orö sem aöstoðarupptökustjóri á ”Abbey Road” hinni frægu plötu bresku Bitlanna. Næsta stórverkefrii Parsons var upptökustjórn á hinu klassiska meistaraverki Pink Floyd „Dark side of the moon”, en meö framlagi sinu þar tryggöi Alan Parsons sér sess sem einn frumlegasti upp- tökustjóri i Bretlandi. Rétt er aö benda á ,að fyrir upptökustjórn- ina á ”Dark side of the moon” hlaut Parsons Grammy verö- launin, æöstu verölaun tón- listarheimsins, og sambærileg viö ”Oscar” kvikmyndanna. En hugur Parsons stefndi hærra. Þaö var honum ekki nóg aö stjórna upptökum á verkum annarra listamanna, heldur varöhannog aöfá aö semja tón- listina. Meöal þeirra sem Alan Pars- ons vann fyrir á þessum tima voru Paul McCartney og Hollies og slöar átti hann sinn þátt 1 þvi aö vekja athygli á tónlist manna eins og John Miles og hljóm- sveita eins og Pilot og Cockney Rebel, og einnig er samstarf hans og A1 Stewart frægt um all- ar jaröir. Fyrsta plata Alan Parsons sem tónlistarmanns var plata byggö á verkum Edgars Allan Poe, meistara hrollvekjandi bókmennta, og fyrir þá plötu hlaut Parsons Grammy verö- launin ööru sinni. Upp úr þessu tókst samstarf meö Parsons og tónlistarmanninum Eric Woolf- son og hefur þaö samstarf hald- ist siöan. Þeir Parsons og Woolfson ákváöu áriö 1977 aö gefa út þrjár plötur, eins konar sam- hangandi verk-og er ”Eve” siö- asta platan af þessum þremur. Fyrsta platan ”1 Robot”, kom út 1977 og hlaut hún geysigóöar viötökur, eins og salan ber meö sér, en I dag mun hafa selst rúmlega ein milljón eintök. Onnur platan, "Pyramid”, kom út i fyrra og þótti upptöku stjórnin þar nálgast fullkomn- un. Þriöja og síöasta platan i þessum þrihyrningi er, eins og áöur segir, ”Eve” og eins og á hinum plötunum er þaö kraft- mikiö rokk og fullkomnar upp- tökur sem sitja i fyrirrúmi. Þó aö ”Eve” sé e.t.v. ekki sam- bærileg aö gæöum og fyrri plöt- urnar tvær, er alveg óhætt aö mæla meö henni, þvl aö þaö hans Alan Parsons. Þá er um- slagiö utan um plötuna sér kapituli og trúlega eitt þaö áhrifamesta sem undirritaöur hefur augum litiö. Höfundur þess er snillingurinn Hipgnosis - einn snillingurinn enn á þessari athyglisveröu plötu. -ESE (Duelle Stærstu póstverslun í Evrópu heim til þín ... HAUST VETUR, 1979/á I r*m J m Vinsamlegast klippið þennan hluta frá auglýsingunni og sendið okkur ásamt kr. 4.000.- ef þér viljið kaupa Quelle pöntunarlista haust/vetur ’79-’80. Greiðslu er best að inna af hendi með því að greiða inn á póstgiróreikning okkar nr. 15600 eða senda ávísun með afklippunni til: Que//e-umboðið. Pósthólf 39, 230 Njarðvík. Sími 92-3576. nafn sendanda heimilisfang Greiösla: □ Áv. meðfylgjandi . □ Gíró nr. 15600 □ Póstkrafa + kostn. . Vinsamlegast krossið við réttan reit. sveitarfélag póstnumer 0 Verslunarstjórastörf óskum að ráða verslunarstjóra I vara- hlutaverslun á Selfossi og i útibú okkar i Hveragerði. Upplýsingar i sima 99-1201. Kaupfélag Árnesinga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.