Tíminn - 05.10.1979, Blaðsíða 15

Tíminn - 05.10.1979, Blaðsíða 15
Föstudagur 5. október 1979 IÞROTTIR IWMIM 15 ANNAR „KANI” TIL KR-INGA • Kom til landsins í morgun og mun leika með KR- í Evrópukeppni bikarhafa • Tekur hann sæti „spóans” í KR-liðinu i vetur' :7 i í morgun kom til landsins bandarískur körfuknattleiksmaður, sem mun leika með KR-ingum i Evrópu- keppni bikarhafa, en sem kunnugt er dróst KR gegn frönsku bikar- meisturunum. Ekki er vitað hvað kappinn heitir, en Tim- inn hefur það eftir mjög áreiðanlegum heimild- um, að sá sem kom i morgun eigi að taka sæti Websters, blökku- mannsins stóra, sem leikið hefur með KR það sem af er Reykjavikur- mótinu. KR-ingar hafa ekki verið ánægðir með hann, alla vega ekki það sem af er. „Það er rétt, að við er- um allt annað en ánægð- ir með frammistöðu hans það sem af er mót- inu”, sagði Kristinn Stefánsson liðsstjóri KR-liðsins i samtali við Timann i gær.’” Við bjuggumst við mun betri ieikmanni”, sagði Krist- inn. ,Eg hef ekki náð mér full- komlega á strik í fyrstu leikj- unum’ • segir Viggó Sigurösson sem leikur handknattleik með spænska liðinu Barcelona Spánska meistarakeppnin i handknattleik er nú hafin, en einsog flestir eflaustvita leikur Viggó Sigurösson — sem lék áöur meö Vikingi — meö Barce- lona. „Þaö eru nú búnar tvær um- feröir hér á Spáni og okkur hef- ur gengið alveg bærilega. Viö sigruðum Jean frá Malaga i fyrsta leiknum meö 31 marki gegn22, ogskoraöiégþrjú mörk i þeim leik. Þvi næst lékum við gegn Gramholles i Barcelona og náöum einnig aö sigra þar meö 24 mörkum gegn 19. Viö erum þvi efstir eftir tvær umferöir meðfjögursig ásamt Calpisa og spönsku meisturunum Atletico Madrid”,sagði Viggó erTiminn haföi samband við hann I gær- kvöldi. Viggó sagöist ekki vera full- komlega ánægöur meö frammi- stöðu sína þaö sem af væri. Hann hefði ekki náð sér á strik i leikjunum tveimur sem búnir væru. Hann hefði skorað þrjú mörkiþeim báöum ..Égvonast til þess aö þetta fari aö koma hjá mér, ég trúi ekki ööru. Viö eigum aö leika gegn.Calpisa um helgina og er þaö afar þýöingar- mikill leikur fyrir okkur”, sagöi Viggó Sigurösson. _SK \ I I I I I I I I I I I I I I Þaö er greinilegt, aö eitthvaö mikiö er aö gerast hjá KR-ingum i körfuboltanum um þessar mundir. Þessi Bandarikjamaður, sem kom til landsins i morgun, mun æfa meö liöinu næstu þrjár vikur, eöa þar til aö Evrópukeppninni kemur. Mun þaö hafa veriö ákveöiö áöur en að Webster kom til landsins, en sem kunnugt er má hvert lið leika meö tvo er- lenda leikmenn I keppninni. Þaö hafa margir látiö I ljósi óánægju sina með Webster og þá ekki síst KR-ingar sjálfir. „Þaö er ljóst, eftir aö hafa séö hann leika fjóra leiki I Reykjavikur- mótinu, aö hann er enginn sóknarleikmaður en hins vegar nokkuö góöur varnarleikmaöur. Þá höfum viö veriö ánægöir meö hann sem þjálfara,” sagöi Krist- inn. Hann vildi ekki kannast viö þaö aö fara ætti aö senda Webster heim, en Timinn telur sig hafa mjög góðar heimildir fyrir þvi, sem ekki er ástæöa til aö van- treysta. Sá leikmaöur sem kom I morg- un er 198 cm á hæö, blökkumaöur og er stórskytta i meira lagi. Hann leikur sem kantmaöur. Er hann talinn vera enn meiri skytta en Danny Shous, sem leikur hér mað Armanni og er þá mikiö sagt. Þeir, þ.e. sá sem kom 1 morgun og Webster, munu leika saman með KR i Evrópukeppn- inni, en eftir þá keppni mun koma i ljós hvort hann tekur sæti Websters I KR-liðinu. —SK Webster viröist vera eitthvaö utangátta á þessari mynd. Háværar raddir eru uppi um aö Bandarikjamaöur sá er kom til iandsins í morg- un muni taka sæti hans i KR-liöinu, eftir aö þeir félagar hafa lokiö Evrópuleikjum KR sem veröa um mánaðamótin. Þá munu þeir leika saman, en eftir þá leiki skýrast máiin, og annar hvor heldur áfram aö leika meö Vesturbæjarliöinu. Timamynd Róbert. Dómaraannáll Segja má að knattspyrnuver- tiöinni sé nú lokiö — hér heima að minnsta kosti. Yfirleitt aö lokinni knatt- spyrnuvertíöinni er fjallaö um leiki sumarsins, frammistööu einstakra liða o.s.frv. Hér er aftur á móti ætlunin aö fjalla litillega um frammistööu þeirra manna sem fyrir mestri gagnrýni verða, nefnilega dómaranna, sem dæmt hafa leiki 1. deildar i sumar. Það veröur aö vityurkennast strax i upphafi, að frammistaöa þeirra var bæöi góö ogslæm, eins og gengur og gerist. Þaö vill nefnilega oft gleymast aö dómararnir geta átt slæma leiki, geta veriö illa fyrir kallaöir rétt eins og leikmenn. En þvi verður hins vegar ekki á móti mælt, aö yfirleitt, og þegar á heildina er litiö, hefur dómgæslan oft veriö verri en einmitt i sumar. Þrir ungir dómarar bættust i sumar i hóp þeirra sem dæma i 1. deild. Það voru þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Ingi Jónsson og Hjörvar Jensson. í stuttu máli sagt stóöu þeir sig allir meö hinni mestu prýöi. Hinir dómararnir — og þá sér i lagi þeir sem eru tekn- ir að eldast i „bransanum” — urðu oft fyrir mikilli gagnrýni i sumar. Þeir voru sagöir hafa minni yfirferö en hinir, og sumir hafi hreinlega dæmt heilu leikina úr miðjuhring vallarins. Hvort sem þetta er rétt eöa ekki veröur ekki hjá þvi komist, að láta þá skoðun i ljósi, að enn meiri endur- nýjunar virðist þörf I dómara- liöinu. Of thafa þær raddir heyrst, að þeir sem fara meö stjórn þess- ara mála beri of litið traust til þeirra yngri. En frammistaöa þeirra (Ýiggja sem áöur er getið og hófu aö dæma i 1. deildinni i sumar, sýnir svo ekki veröur um villst aö ekki viröist vera nein ástæða til aö örvænta I sambandi viö yngingu dómarastéttarinnar. Ekki var nú meiningin aö fara aö ræöa um aldur dómaranna, þaö er frammistaöan sem mestu máli skiptir. Og óneitanlega var hún betri en margir áttu von á. Þaö er gleöiefni, ekki aöeins fyrir keppendur og áhorfendur, heldur og ekki sist fyrir dómarana sjálfa. Vonandi veröa ekki lagðar árar i bát i þessum málum, heldur reynt aö stefna enn fram á viö til þess að auka viröingu þess- arar stéttar innan Iþróttarinnar, sem hefur vægast sagt verið á svolitið lágu plani hin siðustu ár. —SK Landsliðið valið gegn Póllandi tsland mun leika siöasta leik sinn I 4. riðli Evrópukeppni landsliða gegn Póllandi I Kraká I Póllandi miövikudaginn 10. okt. n.k. Þettaer 113-landsleikur Islands. Liðiö mun halda utan sunnu- daginn 7. okt. og koma heim aft- ur fimmtudaginn 11. okt. Eftirtaldir leikmenn mynda 16 manna hópinn (Landsleika- fjöldi i sviga aftanvið): Þorsteinn Bjarnason, LaLouviere (5) Ársæll Sveinsson, ÍBV (0) Arni Sveinsson, 1A Asgeir Sigurvinsson, Standard Liege Atli Eövaldsson, Valur Dýri Guömundsson, Vaiur Jóhannes Eðvaldsson, Celtic Kari Þórðarson, La Louviere Marteinn Geirsson, Fram Ólafur Sigurvinsson Searing Pétur Pétursson, Feyenoord Sigurlás Þorleifsson, (24) Vlkingur (2) Teitur Þórðarson, (24) öster (31) örn óskarsson, (16) IBV (7) Trausti Haraldsson (3) Fram (3) Sigurður Halldórsson, (31) tA (0) (9) Eins og sést á þessari upp- talningu er hér um aö ræöa hóp (44) leikmanna meö mikla reynslu aöbaki, auk nokkurra sem eiga (30) landsleikjamet Matthiassar Hallgrimssonar frá Akranesi (8) sem er 45 leikir. Þá eru mögu- leikar á þvi aö þeir Asgeir Sigurvinsson og Arni Sveinsson hljóti gullúr frá KSl, en þaö hljóta þeir leikmenn sem leika sinn 25 landsleik. Ellert B. Schram formaöur KSI veröur aöalfararstjóri i þessariferö, enaukhans veröa I feröinni þeir Helgi Danielsson formaöur landsliösnefndar, Bergþór Jónsson úr landsliðs- nefnd og Jóhann ólafsson Ur stjórnKSl, Youri Ilitchev lands- liösþjálfariHalldór Matthíasson sjúkraþjálfari og Kjartan Trausti Sigurðsson fram- kvæmdarstjóri KSI.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.