Tíminn - 07.10.1979, Blaðsíða 8
8
Sunnudagur 7. október 1979
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Franikvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Ritstjórnarfulltrúi:
Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar SiOumúla 15 simi
86300. — Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 200.00. Askriftargjald kr.
'4000 á mánuöi. Blaöaprent.
J
Erlent yfirlit
Deilur í Verkamanna-
flokknum veikja hann
Tony Benn styrkir stöðu sina
Orkusparnaður eykur
umferðarmenníngu
í þessum mánuði verður viða um lönd haldið uppi
áróðri fyrir orkusparnaði. Islenzka orkusparnaðar-
nefndin hefur ákveðið að beita sér fyrir slikum
áróðri, sem fyrst og fremst verði byggður á traust-
um upplýsingum um, hvernig hægt sé að koma á
slikum sparnaði á auðveldan hátt. 1 mörgum tilfell-
um myndi slikur sparnaður ekki aðeins spara út-
gjöld, heldur verða til mikils menningarauka.
Það er álit nefndarinnar, að eitt brýnasta verk-
efni á sviði orkusparnaðar, séu auknar almennings-
samgöngur. Hún leggur þvi til, að rikið felli niður
aðflutningsgjöld af nýjum strætisvögnum og efni til
þeirra. Þá telur hún nauðsynlegt, að fundnar verði
leiðir til að leysa úr þeim vandikvæðum, sem verða
á mestu álagstimunum kvölds og morgna.Þetta mál
telur hún að megi leysa með aukinni samvinnu við
eigendur langferðabila og leigubila.
Nefndin færir rök að þvi, að fari sérhver bileig-
andi á Reykjavikursvæðinu einu sinni i viku til og
frá vinnu með strætisvagni eða i bil með nágranna
eða vinnufélaga, yrði þjóðhagslegur sparnaður um
1 milljarður króna á ári.
Að tilhlutan nefndarinnar hefur verið myndaður
samstarfshópur um orkusparnað, hvað bila varðar,
og eiga fulltrúa i henni oliufélögin, Umferðarráð,
SVR, Bilgreinasambandið og FÍB. Þessir aðilar
ásamt nefndinni beita sér fyrir þeirri upplýsinga-
starfsemi, sem fyrirhuguð er i mánuðinum. Varð-
andi akstur er m.a. bent á:
Að ójafn ökuhraði, ótimabærar inngjafir, spyrnur
og ofsi i akstri geti aukið benzinnotkun um 15-20%.
Illa stillt vél og óreglulegt viðhald 2-20%
Aukning á hraða úr 70 km i 90 km 20-25%.
Hraður akstur i lágum gir 20-40%.
Sé miðað við, að sérhver bileigandi minnki
benzinnotkun um 10%, myndu heildarútgjöld til
benzinkaupa lækka um 4 milljarða kr. á ári. Vakin
er athygli á þvi, að stuttar ferðir með bil séu sérlega
dýrar, auk þess sem hollt sé að ganga stundum og
kosti litið meira en skóslit.
MARGT bendir til, aö miklar
deilur séu framundan i brezka
Verkamannaflokknum aö loknu
flokksþingi hans, sem hófst f
Brighton á mánudaginn var.
Deilur milli vinstri arms flokks-
ins annars vegar og miöju-
manna og hægri arms flokksins
hins vegar risu þar hátt og
minntu talsvert á deilur þeirra
Gaitskells og Bevans á sinum
tíma, en þær stóöu flokknum
fyrir þrifum um talsvert skeiö.
Nú geta þessar deilur haft enn
alvarlegri afleiöingar, þvi aö
vinstri sinnar báru öllu hærri
hlut að þessu sinni, öfugt viö þaö
sem áöur var.
Þaðsetti vitanlega sinn svip á
þingiö, aö flokkurinn beið ósigur
i þingkosningunum siöastl. vor
og varö aö láta stjórnartaum-
ana af hendi. Hvor deiluaðilinn
um sig kenndi hinum um
hvernig hefði fariö.
Af hálfu miðjumanna og
hægri sinna varþvi haldiö fram,
að verkfallsóeirðirnar á siöast-
liðnum vetri hefðu átt megin-
þátt i óförum flokksins i kosn-
ingunum. Þetta var m.a. stutt
með tilvitnunum i skoðana-
kannanir og fleira.
Vinstri sinnar héldu þvi hins
vegar fram, að verkfallsóeirð-
irnar heföu verið afleiðing af
þvi, að rikisstjórn Callaghans
hefði sett markið alltof lágt,
þegar hún vildi ekki leyfa meira
en 5% kauphækkanir á timabil-
inu ágúst 1978-júli 1979. Þaö
heföi verið útilokaö fyrir mörg
verkalýössambönd að fallast á
þetta og verkalýöshreyfingin
sem heild heföi lýst sig andviga
þessu. Stjórnin heföi samt setið
við sinn keip. Þaö heföi leitt til
verkfallsöldu, sem hún réði ekki
viö.
Af hálfu verkalýðshreyfingar-
innar, sem á meirihluta fulltrúa
á þingi Verkamannaflokksins,
var tekiö undir þessa gagnrýni
og átti þaö sinn þátt i aö veikja
aöstööu miöjumanna og hægri
sinna.
AÐUR en þingiö hófst haföi
vinstri armurinn, undir forustu
Anthonys Wedgwood Benn
(Tony Benn), sett sér þaö sem
takmark aö knýja fram þrjár
breytingar á starfsháttum
flokksins. Þessar breytingar
voru:
Tony Benn
1 fyrsta lagi yrðu þingmenn
flokksins aö afla sér stuönings
flokksfélaga i viökomandi kjör-
dæmi áöur en ákveöiö væri, að
þeir yröu i framboöi að nýju. 1
flestum tilfellum hingað tií hafa
þeir ekki þurft þess. Vinstri
menn telja sig hafa mikil itök i
flokksfélögunum og gæti slik
breyting hjálpaö þeim til aö
koma i veg fyrir framboö hægri-
sinnaöra þingmanna.
1 ööru lagi yröi formaöur
flokksins, sem jafnframt er for-
sætisráöherraefni hans, kjörinn
af flokksfélögunum og verka-
lýössamtökunum, en ekki af
þingflokknum eins og nú er.
t þriöja lagi yröi kosninga-
stefnuskrá flokksins samin og
sa?nþykkt af flokksþingi eöa
flokksstjórn i staö þess, aö for-
maöur flokksins ræöur mestu
um hana núog getur fellt niður
þau atriöi, sem hann er ekki
samþykkur.
ÞAÐ féll i hlut Callaghans, for-
manns flokksins og fyrrverandi
forsætisráöherra, að beita sér
gegn þessum tillögum vinstri
armsins. Það kom i ljós, að
Callaghan naut nú ekki sama
fylgis og áður.
Atkvæðagreiöslur um þessar
þrjárbreytingarfóruþannig, að
samþykkt var, að flokksfélögin
réöu mestu um val frambjóð-
enda og kosningastefnuskráin
yröi sett af flokksþingi og
flokksstjórn. Hins vegar var
fellt að breyta kjörinu á for-
manni flokksins og verður hann
þvi valinn af þingflokknum á-
fram. Óvist er þó, að sú skipan
haldist til lengdar. þvi að af
hálfu vinstri manna verður
haldið áfram baráttunni fyrir
þvi að breyta þessu.
Jafnhliða þessu vorusvo gerðar
margar róttækar ályktanir,
m.a. um stóraukna þjóðnýtingu,
ef flokkurinn kæmist til valda.
Þingið hefur þvi tvimælalaust
styrkt mjög stöðu vinstri arms-
ins innan flokksins og jafnvel i
raun gert Benn að aðalleiðtoga
hans i augum almennings. Af
hálfu íhaldsflokksins, sem
ræður yfir mestum blaðakosti
landsins, verður Benn nú vafa- |
laust auglýstur sem ráðamesti
maður flokksins og reynt að
gera hann að grýlu vegna hinna
róttæku skoðana hans.
Fyrir Callaghan er niðurstað-
an á flokksþinginu tvimælalaust
persónulegur ósigur. Þótt hann
sé ákveðinn i þvi að berjast á-
fram fyrir sjónarmiðum sinum
innan flokksins, mun þetta
vafalitiö verða til þess, aö hann
dregur sig i hlé fyrr en ella og
teflir fram yngra manni i þeirri
von, að hann geti tryggt honum
forustuna i næstu kosningum,
sem sennilega verða ekki fyrr
en 1984. Þá veröur Callaghan
kominn yfir sjötugt og mun
þykja oröinn of gamall til for-
ustu.
Sitthvaö bendir til, að þessar
deilur innan Verkamanna-
flokksins geti oröiö vatn á myllu
rikisstjórnar Thatchers. Þær
geta einnig orðið til aö auka
fylgi Frjálslynda flokksins.
Þ.Þ.
Þá er hvatt til aukinnar samnýtingar á einkabil-
um og bent á, að menn, sem búa i Reykjavik, en
vinna i Keflavik, hafi um árabil haft með sér sam-
vinnu af þessu tagi.
Það mun nokkurn veginn sameiginlegt öllum
þessum ábendinum, að þær stuðla ekki aðeins að
orkusparnaði, sem er bæði nauðsynlegur viðkom-
andi einstaklingum og þjóðinni i heild, heldur
myndu þær einnig stuðla að stóraukinni umferðar-
menningu. Akstur ökutækja yrði allur menningar-
legri og öryggi i umferðinni myndi aukast. Þá
myndi draga úr þeim umhverfisskemmdum, sem
fylgja mikilli og hraðri umferð benzin- og oliutækja.
Hér gæti þvi margt áunnizt i senn.
Margir kvarta nú undan háu verðlagi á benzini og
oliu, en litlar horfur eru á, að þessar vörur lækki,
heldur má miklu fremur búast við hinu gagnstæða.
Enn sést það þó ekki á umferðinni, að mönnum þyki
þetta verðlag hátt. Þetta á vonandi eftir að breyt-
ast, þegar þjóðin lærir að semja sig að hófsamari og
menningarlegri umferðarvenjum.
Þ.Þ.
Tony Benn (t.v.) hlýöur á Callaghan á flokksþinginu.