Tíminn - 07.10.1979, Blaðsíða 11

Tíminn - 07.10.1979, Blaðsíða 11
Sunnudagur 7. október 1979 11 Knack — æðið Það þarf víst engum blöðum um það að f letta, að sú hljómsveit sem hvað mest hefur komið á óvart í sumar—er bandaríska rokkhljómsveitin The Knack. Hljómsveit þessi var alls óþekkt fyrir nokkrum mán- uðum síðan, en eftir útkomu plötunnar The Knack i júnf mánuði síðast liðnum, hefur dæmið snúist við og í dag er The Knack ein þekktasta hljómsveit verald- ar. Stóri vinningurinn Hljómsveitin The Knack var stofnuó i mái i fyrra af þeim Doug Fieger (gitar og söngur), Berton Averre (gitar), Bruce Gary (trommur)og Prescott Nil- es (bassi) og fyrst i staö starfaöi hún aöeins I nágrenni Holly- wood. Meölimir The Knack þóttu snemma taka bresku Bitl- ana sér til fyrirmyndar og e.t.v. er hljóöfæraskipanin gleggsta dæmiö um þaö. The Knack klæddust einnig allir svipuöum fatnaöi, eins konar einkennis- búningi, ekki ósvipuöum þeim sem Bitlarnir notuöu á sokka- bandsárum sinum og þvi fékk orörómurinn um þaö aö The Knack tækju Bitlana sér til fyrirmyndar, byr undir báöa vængi. Fyrsta stór tækifæri The Knack kom I nóvember I fyrra er Bruce Springsteen tók sig til og „jammaöi’ eina kvöldstund meö hljómsveitinni i Troubador-klúbbnum i Holly- wood, en i þeim klúbbi hafa margar af þekktustu hljóm- sveitum heimsins komiö fram, og m.a. ekki ófrægari hljóm- sveitir en Hinn Islenski Þursa- flokkur. Eftir þetta „jamm” lét eigandi klúbbsins þau fleygu orö falla: aö engum heföi tekist'aö skapa aöra eins stemmningu i klúbbnum, sföan Elton John geröi innrásina i Bandarikin ár- iö 1970. — Þetta uröu fleyg orö og hróður The Knack jókst til muna. Mike Chapman I febrúarmánuöi siöastliönum haföi hróöur The Knack borist viða og skribentar poppblaösins Rolling Stone tóku þaö djúpt i árinni aö þeir kölluðu The Knack athyglisveröustu rokk- hljómsveit Los Angeles. Skömmu siöar buöu forráöa- menn Capitol hljómplötuútgáf- unnar The Knack samning, en i honum fólst m.a„ aö hljóm- sveitin mátti ráða þvi hvern hún fengi til þess aö taka upp væntanlega hljómplötu, en ákvæöi sem þessi eru mjög sjaldgæf, þegar nýjar og óþekktar hljómsveitir eiga I hlut. The Knack létu ekki segja sér tvisvar hvaö þeir ættu aö gera, og tóku þvi þessu kosta- boöi Capitol opnum örmum. Sem upptökustjóri varö fyrir valinu, Mike Chapman, sem m.a. hefur stjórnað upptökum á plötum Smokey, Racey, Nick Gilder, Suzi Quatro, Exile og Blondie og I mars s.l. voru Chapman og The Knack komnir i stúdióið og þá fyrst voru hend- ur virkilega látnar standa fram úr ermum. Ekki leikur nokkur vafi á þvi aö meö þvi aö velja Chapman, þá gerðu The Knack hárrétt og þetta samstarf hefur fært þeim og Capitol, milljónir á milljónir ofan. Vasapeningar og stjörnufræði Platan „Get the Knack” var hljóörituö á aöeins 11 dögum og samkvæmt upplýsingum Mike Chapman var kostnaöurinn viö gerö hennar hlætilega lágur, eöa aöeins 18 þúsund dollarar, sem er ekki mikiö, ef tekiö er tillit til þess aö meöal kostnaöur viö plötugerö I Bandarikjunum er nú talinn vera um 100 þúsund dollarar. Þá er þaö einnig sprenghlægilegt, aö á sama tima og The Knack taka þessa plötu upp fyrir „vasapeninga” þá sátu hljómsveitir eins og Fleetwood Mac og Eagles i stúdióum, en taliö er kostnaöur- inn viö plötur þeirra fari ekki undir hálfri milljón bandarlkja- dala, og er þá miðaö viö hvora um sig. Sjálfur segist Chapman ekki efast um aö þessar plötur veröi góöar, en hann varar al- varlega viö þvi aö hljómsveitir sem þessar hleypi upp úr öllu valdi veröi á stúdiótimum, kostnaöi viö hljómplötugerö og þ.a.l. hljómplötuveröi til neyt- enda, og ef þessi þróun veröi ekki stöövuö, þá veröi kostnaö- urinn oröinn stjarnfræöilega hár innan fárra ára. Kenning Chapmans er einfaldlega sú, aö ef lögin séu til þegar I stúdióiö sé komiö, þá sé engin ástæöa til þess aö slóra þar. Ef upptöku- stjórar kunni sitt fag og hljóm- sveitin viti hvaö hún vilji þá komi afgangurinn af sjálfu sér. Þetta sé aöeins spurning um verkstjórn og vilja til þess að takast á viö viöfangsefniö hverju sinni. Þess má geta hér, aö Mike Chapman er þekktur fyrir ákveöin vinnubrögö og sem dæmi um þau má nefna, aö eftir aö hann haföi lokiö verk- efni sinu meö The Knack, þá stjórnaöi hann upptökum á nýj- ustu plötu Suzi Quatro fyrir RSÖ Records og kostnaöurinn viö þá plötu varö aöeins 12 þúsund dollarar. Metsöluplata En hvaö fengu svo The Knack, Mike Chapman og Capitol fyrir þessa 18 þúsund dollara? Svariö viö þeirri spurningu er einfalt, þvi aö þeir fengu eftirfarandi : Plötu sem seldist i hálfri millj. eintaka fyrstu 13 dagana, sem jafngildir gullsölu og fimm vik- um siöar haföi platan selst i milljón eintökum. Fyrir þann árangur fékk platan platinium viöurkenningu RIAA, sem eru samtök hljómplötuframleiö- enda i Bandarikjunum, en skömmu eftir aö þetta átli sér staö var viðmiðunin hækkuö upp 1 2 milljón eintök. „Get the Knack” seldist sem sagt i milljón eintökum á 7 vikum, sem er næst mesta sala, sem nokkur Capitol plata hefur náö fyrr og siöar. Aöeins The Blues Brothers hafa gert betur, meö plötunni „Briefcase full of blues”. Lagiö „My Sharona” af plötunni hefur undanfarnar vik- ur og mánuöi trónað á topnnum á bandariska vinsældalistanum og er þetta I fyrsta skipti i rúm þrjú ár sem Capitol á bæöi sölu- hæstu plötuna I Bandarikjunum og söluhæsta lagiö, en þaö haföi ekki gerst siöan Wings gáfu út plötuna „Wings at the speed of Sound” og lagiö „Silly love songs” komst á toppinn. Þetta er I stuttu máli þaö sem þessir aöilar fengu fyrir snúö sinn, en þaö sem mestu varöar er þaö , aö meö þessu var fengiö fordæmi fyrir þvi aö þaö þarf ekki aö eyöa offjár til þess aö gera vinsæla plötu —ESE

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.