Tíminn - 07.10.1979, Qupperneq 18
18
Sunnudagur 7. október 1979
Rotten slær öll met
Ekki er öll vitleysan eins i henni veröld — þaö hefur
John Lydon# ööru nafni Johnny Rotten sannað svo aö
ekki verður um villst á undanförnum árum. Þó aö
uppátæki Jóns Rotna og félaga hans í hljómsveitinni
Public Image Ltd. hafi oft á tíöum veriö í hæsta máta
dularfull# er þó hætt við því aö þeir slái öll fyrri met
með plötunni „Metal Box" sem væntanleg er á mark-
azð 12. þessa mahaðar.
Þessi nýja plata er nefnilega
engin venjuleg plata, heldur
þrjár óvenjulegar, og þaö sem
meira er um vert, platan veröur
aðeins gefin út i 50 þúsund ein-
tökum og verðiö veröur frekar
háttá breskan mælikvarða, eða
tæp 8 sterlingspund platan sem
mun samsvara tæpum 6500 is-
lenskum krónum. Eins og áður
segir er hér um að ræða þrjár
óvenjulegar plötur, en óvenju-
legheitin eru fólgin i þvi að allar
plöturnar eru 12 tommu 45 snún-
inga plötur, og hápunkturinn er
svo umbúðirnar, eða umslagiö,
þvi að það er gert úr málmi —
litur reyndar út alveg eins og
málmboxin sem voruutan um
kvikmyndafilmurnar i gamla
daga. Samkvæmt upplýsingum
Virgin hljómplötuútgáfunnar er
talið að spilatimi þessara
þriggja platna verði um klukku-
Johnny Rotten (tu
stundu lengri, en einnar venju-
legrar 33 snúningaplötu og þvi
eru forráðamenn Virgin þegar
farnir að gæla við þá hugmynd
að gefa plötuna út aftur og þá
sem „double album” og i venju-
legu umslagi, En hvað sem þvi
viai „nu„
liður er ljóst að „Málmboxið”,
þ.e.a.s. hið upprunaiega, verður
allt að þvi safngripur og þvi
ættu menn að hafa hraðar
hendur hafi þeir áhuga á að
tryggja sér eintak. —ESE
Umsjón:
Eiríkur S. Eiríksson
„Málmkassinn”
Nýjasta plata Johnny
0 Paul McCartney og hljómsveit hans Wings
Bátafólkið varð af
100 milljörðum
— Engar horfur taldar á að Bitlarnir
komi saman á ný
Engar horfur eru nú
taldar á þvi að bresku
Bítlarnir John Lennon#
Paul McCartney# George
Harrison og Ringo Starr,
komi saman til hljóm-
leikahalds á næstunni#
eftir að áform um góð-
geröahl jóm leika til
styrktar vítetnamska
bátafólkinu fóru út um
þúfur í síðustu viku.
Fyrstu fregnir hermdu þó að
allir Bitlarnir, utan John Lenn-
on, hefðu mikinn áhuga á að
koma saman til styrktar þessu
málefni, en þær fregnir voru
siðan bornar til baka af sjálfum
aðalritara Sameinuðu þjóð-
anna, Kurt Waldheim, sem tjáði
fi;ttamönnum að svo virtist sem
Paul McCartney og Ringo Starr
hefðu engan áhuga á að styrkja
þetta málefni.
Var þetta að sjálfsögðu mikið
áfall fyrir forráðamenn Flótta-
mannahjálpar SÞ, en sam-
kvæmt útreikningum þeirra
hefði hagnaður af hljómleikum
Bitlanna i Genf getað orðið um
130 milljónir sterlingsund, eða
sem samsvarar rúmum eitt
hundrað milljörðum islenskra
króna.
Ný plata frá
Pink Floyd
Breska hljómsveitin Pink
Floyd, sem haft hefur hægt
um sig að undanförnu, mun
innan tiðar senda frá sér nýja
stúdióplötu og er jafnvel gert
ráö fyrir að útgáfudagurinn
geti orðið einhvern tímann i
næsta mánuði.
Hin nýja plata verður
tvöföld „double album” og
hefur henni verið valið heitið
„The Wall”. Hún var hljóð-
rituð i Cannes i Frakklandi, en
þessa dagana er unnið að
fullvinnslu hennar i Los
Angeles i Bandarikjunum.
Ekki er að efa að Pink Floyd
aðdáendur munu fagna hinni
nýju plötu, ekki sist fyrir þær
sakir að nú eru liöin rúm þrjú
ár siðan siöasta stúdióplata
hljómsveitarinnar kom út.
Nýir menn í
Doobie Brothers
Miklar mannabreytingar hafa átt sér stað aö
undanförnu innan bandarísku hljómsveitarinnar
Doobie Brothers# en sem kunnugt er hættu Jeff
„Skunk" Baxter og John Hartman í hljómsveitinni
fyrr á þessu ári.
Það má segja að þessi
ákvörðun Baxter og Hartman
hafi komið nokkuð á óvart, þvi
að trymbillinn Hartman er einn
af stofnendum hljómsveitar-
innar og Baxter er einn af bestu
gitarleikurum Vesturstandar-
innar. Ákvörðun þeirra varð þó
ekki haggað og nú styttir
Hartman sér stundir viö að
hreinrækta arabiska gæðinga á
búgarði sinum, en Baxter hefur
alfarið snúið sér að stúdió-
mennskunni og eitt hans fyrsta
verkefni á þvi svifti var er hann
lék með i einu lagi á plötu
Jakobs Magnússonar, „Special
Treatment”.
1 stað þeirra Baxter og
Hartman voru ráðnir þrir hljóð-
færaleikarar i hljómsveitina, en
þeir eru, Cornelius Bumpus
(saxófónar, flauta og hljóm-
borð), Chet Mac Cracken
(ásláttur) og John Mc Fee
(gitar). Fyrir eru i Doobie
Brothers þeir Patrick Simmons,
Michael McDonald, Tiran
Porter og Keith Knudson.
Hljómsveitin á meðfylgjandi mynd heitir The Orchids og verður
ekki sagt annað en að hún sé sannkallað augnayndi. Það skal tekið
fram að karlmaðurinn á myndinni telst ekki til hljómsveitarmeð-
lima, heldur mun hann gegna starfi framkvæmdastjóra. Ef tón-
listarhæfileikar stúlknanna eru svo i samræmi við útlitið, er engin
hætta á öðru en að heimsfrægðin sé innan seilingar.