Tíminn - 07.10.1979, Síða 19
Sunnudagur 7. oktéber 1979
M'Ulíl!
19
Jakob Magrnisson i hópi Þursa, sem trúlega verða að teljast til ungra og hæfileikarikra tónlistarmanna.
Timamynd Tryggvi.
„Innrás víkinganna
er hafin”
— segir Jakob Magnússon í viðtali við
bandaríska blaðið Cash Box
i einu nýjasta tölublaði hins
þekkta bandariska tonlistarblaðs
Cash Box, dagsettu 8. september
er stutt viðtal við Jakob Magnús-
son.
I viðtalinu, sem er eins konar
kynning á Jakobi og hljómsveit
hans, segir Jakob að hann hafi
kynnst jazztónlist fyrir hreina til-
viljun. Það hafði veriö á tónlistar-
hátiö f Svíþjóð árið 1976 (en þar
kom Jakob fram á hátið, sem
haldin var í tengslun við Anti
Eurovision keppnina, ásamt
Gunnari Þórðarsyni, Halldóri
Pálssyni, Pálma Gunnarssyni
o.fl. — innskot Tímans) en þar
hafði verið ætlast til að hann léki
af fingrum fram ólikt þyngri tón-
list en hann var vanur.
Jakobsegir ennfremur að hann
telji að jazzinn sé eitt af því sem
geri Bandarikin heillandi i hans
augum og að hans dómi sé
jazzinn hugmyndarikari og stór-
fenglegri en nokkur önnur tón-
listarstefna. Siðan er farið
nokkrum orðum um feril Jakobs
frá þvi hannkom fram á hátiðinni
iSviþjóð og „Special Traetment”
plötu Jakobs er hrósað upp i
hástert.
Segja Cash Box-menn að erfitt sé
að imynda sér, að sá sem gerði
útsetningarnar og samdi tón-
listina á plötunni, sé aðeöins rúm-
lega tvitugur aö aldri, en það sé
staðreynd engu að siðu. Sjálfur
segir Jakob að hann hafi byggt
„Special Treatment” upp á
frekar einfaldan hátt, en hann
stefniað þvii'framtlöinni að bæta
viðfleiriog jafnframtsjaldgæfari
hljóðfærum. Um framtiöina segir
Jakob, að hann hafi hug á að
semja tónlist fyrir kvikmyndir og
stjórna upptökum á plötum
annara listamanna, en fyrst og
fremst hugsi hann um að koma
einhverjum af hinum hæfileika-
riku vinum sinum frá íslandi á
framfæri i Bandarikjunum.
Innrás vikinganna i Bandarikin
sé rétt að byrja, segir Jakob og
hlær.
Trommuleikarinn Gunnlaugur Briem. Timamynd Tryggvi.
Mezzoforte með
hljómleika í V.Í.
kynna væntanlega hljómplötu
Næst komandi þriöju-
dag mun hljómsveitin
Mezzoforte/ kynna
væntanlega hljómplötu
sína í salarkynnum
Verzlunarskóla islands
og hefst kynningin klukk-
an 20.30.
Að kynningunni standa
Listafélag Verslunar-
skóla íslands og Tón-
listardeild Menntaskól-
ans í Reykjavík og er
þarna því um áhugavert
samstarf að ræða. Verð
aðgöngumiða er aðeins
1000 krónur og má segja
að það gerist vart lægra.
Hljómsveitin Mezzo-
forte skipa þeir Friðrik
Karlsson, gítar, Eyþór
Gunnarsson, hljómborð,
Gunnlaugur Briem,
trommur, Jóhann Ás-
mundsson bassi og Stefán
Stefánson, lúðraþeytir,
en allir þessir menn eru
jafnframt meðlimir í
hijómsveitinni Ljósin í
bænum.
Hjarirnar eru eins litlar og mögulegt er, þess
vegna getur frystikistan staðið nær veggnum.
Einnig er hægt að lyfta hjörunum upp— auð-
veldara að opna og loka kistunni.
Þunnir veggir. Með þessu móti eykst geymslu-
rýmið i frystikistunni.
Electrolux heimilistæki fást á
þessum útsölustöðum:
Akranes: Þórður Hjálmsson,
Borgarnes: Kf. Borgfirðinga
Patreksfj.: Baldvin Kristjánsson,
tsafjörður: Straumur hf„
Bolungarvik: Jón Fr. Einarsson,
Blönduós: Kf. Húnvetninga,
Sauðárkrókur: Hegri sf„
Siglufjörður: Gestur Fanndal,
Ólafsfjörður: Raftækjavinnustofan sf.
Akureyri: K.E.A.,
Húsavik: Grimur & Arni,
Vopnafjörður: Kf. Vopnfirðinga,
Egilsstaðir: KH.B.
Seyöisfjöröur: Stálbúöin,
Eskifjöröur: Pöntunarf. Eskfirðinga,
Neskaupsstaður: Kr. Lundberg,
Höfn: K.A.S.K.,
Þykkvibær: Fr. Friðriksson,
Vestmannaeyjar: Kjarni sf„
Keflavik: Stapafell hf„
Vðrumarkaðurinn hf
Ármúla 1A. Sími 86117.
Körfur sem auövelda meöhöndlun matarins.
Gerð TC 800 225 Itr. 85 x 62 x 79.5
Gerð TC 1150 325 Itr. 85x62x 105.0
Gerð TC 1500 425 Itr. 85 x 62 x 132.5
Gerð TC 195 510 Itr. 85 x 62 x 160.0