Tíminn - 12.10.1979, Blaðsíða 5
Föstudagur 12. október 1979
5
Ritgerðasamkeppni
á vegumEFTA
um starf þess, árangur eða
framtíðarverkefni
GP — Friverslunarsam-
tök Evrópu/ EFTA/ hafa í
hyggju aö efna til verö-
launasamkeppni til aö
minnast tuttugu ára af-
mælis gildistöku Stokk-
hólmssamþykktarinnar
um stofnun samtakanna.
Afmælisdagurinn er 3.
maí 1980.
1 frétt frá rlkisstjórninni segir
aB þátttakendur séu beönir aö
leggja fram frumsamda ritgerö
(sem næst 20 vélritaöar siöur
meö 25 linum á síöu) um efni
sem snertir verkefni EFTA og
árangur sem samtökin hafa náö
á 20 ára ferli sinum, eöa þá
framtiöarverkefni þeirra I þágu
efnahagslegrar einingar
Evrópu. Þá segir aö sam-
keppnisritgeröirnar megi vera
á hverju eftirtalinna mála sem
vera skal: Ensku, frönsku,
þýsku, finnsku, islensku,
Itölsku, norsku, portúgölsku eöa
sænsku. Ritgeröirnar á aö senda
nafnlausar en auökenna þær
meö málshætti eöa talshætti,
hann þarf aö skrifa á lokaö um-
slag utan um nafn og heimilis-
fang. Ritgeröirnar á siöan aö
senda i ábyrgöarpósti til EFTA
Secretariar 9—11 rue de
Varembé, 1211 Geneva 20, fyrir
febrúarlok 1980.
Verölaunaupphæöin nemur
20.000 svissneskum frönkum og
mega fyrstu verölaunin ekki
vera lægri en 5000 frankar.
Galdrakariinn
á Akureyri
Fyrsta frumsýning Leikfélags
Akureyrar á þessu leikári veröur
n.k. laugardag 13. október kl. 17.
Þaö er hiö kunna barnaieikrit
GALDRAKARLINN i OZ sem
John Harryson setti f leikritsbún-
ing eftir sögu L. Frank Baum.
Söngiögin úr verkinu kannast
margir viö og eru þau eftir Har-
old Arien.
Galdrakarlinn i OZ var sýndur i
Þjóöleikhúsinu fyrir þréttán ár-
um viö miklar vinsældir. Einnig
muna margir eflaust eftir kvik-
myndinni meö Judy Garland i
hlutverki Dóróteu, en hún hlaut
heimsfrægö fyrir leik sinn og söng
i þvi, og vinsælast varö lagiö
„Somewhere over the rainbow”.
Þess má geta aö geröur hefur
veriö nýr söngleikur úr þessu vin-
sæla verki og hefur hann gengiö á
Broadway I mörg ár og nú siöast
kvikmyndaöur meö Diana Ross i
aöalhlutverki.
Gefst nú foreldrum og jafnvel
afa og ömmu tækifæri til aö rjtfja
upp fyrri kynni sin meö Galdra-
karlinum og fara meö börnin i
feröalag meö Dóróteu og vinum
hennar á leiöinni til Oz, sem er
fyrir ofan regnbogann.
í sýningu Leikfélags Akureyrar
fer Sólveig Halldórsdóttir meö
hlutverk Dóróteu, vinina þrjá
leika Þráinn Karlsson (Fugla-
hræöan), Viöar Eggertsson
(Pjáturkarlinn) og Theodór
Júliusson (Ljóniö). Svanhildur
Jóhannesdóttir leikur góöu norn-
ina, en Sigurveig Jónsdóttir
vondu nornina. Meö hlutverk
Galdrakarlsins fer Bjarni Stein-
grimsson, en Mariu leikur Sunna
Borg. Þau Bjarni og Sunna eru
nýráöin á fastan samning hjá
L.A. Flestir leikaranna fara meö
fleiri en eitt hlutverk hver og
stjórna einnig leikbrúöum sem
notaöar eru i sýningunni.
Leikstjóri er einn af yngri
leikurum hússins, Gestur E.
Jónasson, og er þetta fyrsta skipti
sem hann leikstýrir hjá L.A.
Leikmynd gerir Ragnar Lár og er
þetta frumraun hans sem leik-
tjaldateiknara. Lýsingu annast
Ingvar Björnsson, en hann er ný-
ráöinn ljósameistari viö Leikhús-
iö á Akureyri. Þýöinguna geröi
Hulda Valtýsdóttir og söngtexta
þýddi Kristján frá Djúpalæk.
Karl Jónatansson, Ingimar Ey-
dal og Hannes Arason annast
hljóöfæraleik, en hljómsveitin
skipar stóran sess i sýningunni,
þar sem söngvar eru fjölmargir.
L.A. æfir nú af kappi næsta
verkefni sem er nýtt islenskt leik-
rit FYRSTA ONGSTRÆTI TIL
HÆGRI eftir örn Bjarnason,
leikstjóri er Þórunn Siguröardótt-
ir. Leikmynd gerir Sigurjón Jó-
hannsson. Frumsýning er fyrir-
huguö I byrjun nóvember.
„Musica
ftuatro”
með tónleika
í skólum
i vetur
Jassflokkurinn „Musica
Quatro” var stofnaöur á sl. vetri.
Flokkinn skipa: Gunnar Orm-
slev, Reynir Sigurösson, Helgi E.
Kristjánsson og Alfreö Alfreös-
son.
MQ heimsótti Færeyjar á sl.
vori og lék I Þórshöfn á vegum
Hafnarjassfélags, viö góöar und-
irtektir. M.Q. hefur einnig hljóö-
ritaö fyrir útvarp og leikiö á tón-
leikum I Norræna húsinu.
M.Q. mun halda samstarfi
afram i vetur og leika á tónlistar-
kvöldum I skólum og einnig fyrir
aöra aöila sem kynnu aö hafa
áhuga.
Héraðshrútasýníng
í Amessfýstu
GG-Gnúpverjahreppi/KEJ —
Laugardaginn 6. október var
haldin I Arnessýslu héraös-
hrútasýning. Sýndir voru 47
hrútar úr 12 hreppum en þar af
voru 32 undan hrútum á
sæöingarstöövum.
Fyrstu heiöursverölaun á
sýningunni fékk Blær, fjögurra
vetra, eigandi Jón Ingvarsson
Skipum. Hlaut Blær 87 stig,
reyndist 112 kg. önnur heiöurs-
verölaun hlaut Kópur Guö-
mundar Kristmundssonar
Skiptholti, 86,5 stig. Þriöju
Randver Guömundar Þóröar-
sonar, 84,5 stig.
A myndinni hér aö ofan sjáum
viö heiöursverölaunahrútinn
Blæ.
CHEVROLET
TRUCKS
Ch. Malibu Classic '79 7.400
Ch. Citation •80 6.800
Dodge Dart Custom ’74 2.800
Bedford vörubifr. 7 t. •68 4.500
Opel Caravan •73 2.100
Volvo 144 DL sjálfsk. '72 2.700
Saab 96 L •77 4.400
Mercury Monarch •75 4.100
AMCHornet sjálfsk. ’75 2.700
Plymouth Duster sjálfsk. ’76 4.200
Volvo 244 DL ’77 5.500
Ch.Malibu 2d. '78 7.200
Ch. Nova Conc. 2d ’77 5.800
Fiat 132 1600GLS '78 4.800
Fiat 128 ’71 500
Mazda 626sport '79 5.600
Austin Mini '75 1.050
Simca 1100 NF2 sendif. ’79 3.500
Ch. Blazer Cheyenne '74 4.900
GMCRally Van •76 6.000
Saab 96 ’74 2.400
Vauxhail Viva DL '75 2.000
M. Benz 250 '71 2.900
Oldsmobile Delta Royal
dies. '78 8.500
Ford Fairmont Decor '78 4.800
Opel Record 4d. L ’76 3.400
Subaru 4 WD '78 4.500
Scout 11 beinsk.vökvast. '74 3.900
Ch. Nova sjálfsk. ’77 4.700
Ch. Nova sjálfsk. ’76 4.200
Scout II sj.sk. (Skuldab.) '76 6.600
Ford Fairmont ’78 5.000
Ch.Impala station ’73 2.800
Mersedes Benz disil ’72 3.800
Opel Record 1700 •71 1.500
Ch. Nova sjálfsk. •74 2.950
Ch. Chevelle •72 1.800
M Bcnz 220 diescl •70 2.500
Opel Record ’71 980
OPIO LAUGARDAGA
Kl. 10.00-17.00
Samband
Véladeild ÁRMÚLA 3 SÍMI 30900
AUKIN ÞJÓNUSTA
Hjá okkur er staddur Ing. Otto Reichhardt
ráðgjafi frá verksmiðjunum og mun hann gefa
Wartburg eigendum góð ráð i meðferð bilsins.
Komdu með bilinn að Varahlutahúsinu við
Rauðagerði og þú fœrð þér að kostnaðarlausu
skoðun, góð ráð og umsögn um bilinn.
TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ
___l._AI „ /QnrranafT . Qlmar 3956(1 ■ 37710