Tíminn - 03.01.1980, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.01.1980, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 3. janúar 1980 ILbihllLÍl 3 l Brotist inn í í Sandgerði pósthúsið þjófurinn sló póstmeistarann niður og hafði á brott með sér 400.000 kr. FRI—Um hálf niuleytið i gærmorgun réðist maður inn i pósthúsið i Sandgerði og hafði á brott með sér um 400.000 kr. Póstmeistarinn Unnur Þorsteinsdóttir var nýlega mætt til starfa er maðurinn réð- ist á hana með blótsyrð- um, sló hana i gólfið og lét greipar sópa um pen- ingakassa hússins. Starfsstúlka Pósts og sima i Sandgerði kom siðan stuttu seinna að Unni þar sem hún lá á skrifstofugólfinu, slösuð eftir árás þjófsins. Starfsstúlkan gerði lög- reglunni aðvart og var Unnur flutt á sjúkra- húsið i Keflavik. Þaðan fékk Unnur siðan að fara er meiðsli hennar höfðu verið skoðuð og um þau búið. Hún mun ekki hafa slasast alvarlega, fékk vægan heilahristing, en er miður sin eftir at- burðinn. Rannsóknarlögreglan i Keflavik og rann- sóknarlögregla rikisins vinna saman að lausn málsins og hefur rann- sókn málsins verið i full- um gangi siðan i gær- morgun og er þjófsins ákaft leitað. Eins og margir muna þá var framið svipað rán á sama stað fyrir tæpu ári siðan og er þetta þvi i annað sinn sem Unnur lendir i höndum ræningja. Rannsókn málsins er á frumstigi og kvað rannsóknarlögreglan að ekkert væri hægt að segja um það áður en blaðið fór i prentun. Matthea Jónsdóttir hlýtur gullverðlaun í Lyon Matthea Jónsdóttir hefur nú hlotiö hæstu verölaun eöa gull- verölaun i fyrstu alþjóöa bíennal- sýningu i Lyon i Frakklandi, fyrir sex akvarellur, sem hún sendi til sýningarinnar. Þessum heiöri fylgir þaö m.a. aö upplýsingar veröa sendar til fjölmargra aöila um listamanninn, æviágrip og upplýsingar um starfsferil birtar á árbók, sem send veröur til dreifingar m.a. hjá Menningar- stofnun S.Þ., sambandi listgagn- rýnenda og alþjóöasambandi listamanna. Sýning þessi mun tengjast sam- vinnu miUi akademiskra félaga 1 ýmsum löndum og ganga þeir stööugt fram á viö sem náö hljóta fyrir augum gagnrýnenda og dómnefnda á sýningum sem þessu starfi tengjast og hefur þetta mikiö gildi fyrir listafólkiö, sem fær aukin tækifæri á sýning- um og í persónulegum sambönd- um og enn koma til viöurkenn- ingar opinberra aöila. Hefur Mattheu t.d. veriö veitt oröa „Mérite” af offisier gráöu frá yfirvöldum i Belglu(gull) og oröan „Art,-Sciences-Lettres,” af sömu gráöu i Paris. Einnig heiöursskjöl og oröa frá Dómeniska lýöveldinuog Mexikó. Allt I framhaldi af viöurkenning- um eftir sýningar i Lyon. Þangaö barst Mattheu boö um aö sýna, eftir tvær viðurkenningar, sem hún hlaut aö tilhlutan Evrópu- ráösins. , Á þennan hátt geta fengist viöurkenningar viöar, ef áfram- hald verður á sýningarþátttöku og góöum móttökum, en Matthea hefurekki áttmiklum skilningi aö mætahérlendisogsegir um þetta m.a.: Ekki hefi ég þó getað notfært mér nema fá tækifæri, þar sem þettahefur i fór meö sér töluverö- an kostnaö, svo sem sendingar- kostnað, tryggingargjöld, kostn- aö viö myndatökur af verkum og hluta af sýningarkostnaði. Um styrki I þessu sambandi er ekki aö ræöa hér og aöstæöur allar mjög erfiöar. Þaö kom sér td. m jög illa aöfá ekki listamannalaun á þessu ári, þvi sú þóknun gekk i þennan kostnaö. Opinber söfn hafa aldrei keypt af mér verk hér, né aðrar opinberar stofnanir eöa bæjar- félög og á allan hátt er svo óhag- stætt aö vera hér aö maöur getur ekki sagt frá þvi annars staöar. Svo eru menn lika mishrifnir af framabrölti einstaklinga og telja aö þeir eigi ekki að fara út fyrir þann hring, sem aöildarfélag þeirra stendur i, en aö visu var aöferö min komin á dagskrá áöur en ég gekk i listamanna- félag hér á landi. Ekki hefi ég heldur lagt mikla áherslu á aö Matthea Jónsdóttir kynna verkmin hér heima og þvi siöur aðrir. Þaö biöur sins tima og gerir ekkert til aö sumu leyti, þvi aö hér er ég. I staöinn hafa verk min gengiö undir nokkur mæliker erlendis og þannig hefur mér opnast leiö til árangurs, sem éghefiekki getaö slegiö hendinni á móti. Svo einfalt er þaö. Og ég býst viö aö þaö sé rétt, sem sagt er, aö þettaséhin heföbundna leiö til aö listaverk veröi almennt viöurkennd. Og þráttfyrir allt eru verk min hluti af landinu”. Myndin sýnir skrifstofu Unnar Þorsteinsdóttur. Fyrir miöju er peningaskápur Pósts og sima en fremst á myndinni er peningakassi sá er þjófurinn haföi úr um 400.000 kr. Timamynd Tryggvi. Hjálmar ólafsson, formaöur Norræna féiagsins, ásamt þremur úr málaársnefndinni — Aöal- steini, Hirti og Haraldi. —Timamynd: GE. Norrænt málaár Ar það, sem nú er aö hefjast, veröur svonefnt norrænt mála- ár. Hafa málaársnefndir veriö kosnar á Norðurlöndum öllum, og er hlutverk þeirra aö glæöa gagnkvæman skilning og áhuga Norðurlandabúa á tungumálum frændþjóðanna. Hérlendis hafa Aöalsteinn Daviðsson, Guörún Egilson, Haraldur ólafsson, Hjörtur Pálsson og Stefán Karlsson veriö kosin I málaársnefnd. Þau hafa þegar lagt fram hug- myndir sinar um útgáfustarf- semi og kynningu til eflingar samnorrænni fréttamiðlun, bóksölu og fleira. Þess er að vænta, aö starf það, sem unniö veröur á þessu sviði á málaárinu, geti oröiö kveikja að varanlegum áhuga og aukinni kunnáttu Noröur- landaþjóða á tungum hverrar annarrar. Hekla og P. Stefáns- son sameinast Frá 1. janúar 1980 voru fyrirtækin P. Stefánsson h/f og Hekla h/f sameinuö og frá þeim tima tekur Hekla h/f viö öllum rekstri er hingaö tii hefur fariö fram á vegum P. Stefánsson h/f. Þessi tvö fyrirtæki hafa veriö i eigu sömu aöila um árabil og lengst af var ekki um aö ræöa sjálfstæöan rekstur á vegum P. Stefánsson h/f. Arið 1973 var hins vegar taliö hagkvæmt aö P. Stefánsson h/f hæfi sjálfstæðan rekstur og hefur fyrirtækiö rekiö bifreiðainnflutning, varahluta- sölu og viögeröarþjónustu siöan. Breyttar aöstæöur á bifreiöa- markaönum, veröbólga og stöö- ugt aukinn kostnaöur viö rekstur fyrirtækja og annarrar atvinnu- starfsemi valda þvi, aö nú er nauösynlegt aö sameina rekstur þessara tveggja fyrirtækja á ný. Vegna þessara breytinga veröur ekki hjá þvi komist aö segja upp 12-14 starfsmönnum P. Stefáns- son h/f og 2 starfsmönnum Heklu h/f. Stjórnendur Heklu h/f munu gera þaö sem i þeirra valdi stend- ur til þess aö tryggja þeim starfs- mönnum fyrirtækjanna, sem sagt hefur verið upp störfum meö samningsbundnum fyrirvara at- vinnu. Hér er um hæft starfsfólk aðræöa, sem rækt hefur störf sin af samviskusemi og ræktarsemi viö fyrirtækin. Viö sameininguna leggst niöur öll starfsemi, er hingaö til hefur fariö fram i húskynnum P. Stefánsson h/f aö Hverfisgötu 103 og flyst hún smám saman i starfsstöö Heklu h/f aö Lauga- vegi 170-172.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.