Tíminn - 12.01.1980, Side 4
4
Laugardagurinn 12. janúar 1980
Neitaði
kvikmyndatilboði
af því að hún vildi
ekki leika hlutverk
gleðikonu
Kerry Harper er aðeins 20 ára, en henni hafa boðist mörg
tækifæri til frægðar og frama. Hún er svo falleg, að oft
segir fólk, sem ekkert þekkir hana, við hana: — Þú ættir
að vera kvikmyndaleikkona eða ljósmyndafyrirsæta, með
þetta andlit... En það er nokkuð seint verið á ferðinni með
þessar uppástungur, þvi að hún hefur verið fyrirsæta hjá
frægum tiskublöðum, eins og t.d. Vogue, en s.l. haust kom
út Vogue-blað með 10 heilsiðuauglýsingum með myndum
af henni. Keppst er um að fá hana til þess að sitja fyrir og
laun hennar s.l. ár voru um 80.000 dollarar, svo að stúlkan
er ekki alveg á nástrái. Hún sagðist ekki kunna að fara
með svona mikla peninga og það varð úr að stofnað var
hlutafélag um hana, Harper Productions, Inc. Victor
Skrebneski frægur ljósmyndari i Bandarikjunum, hefur
aðalega myndað hana, og segir hann að hún sé feimin og
hlédræg og hún sé sérlega falleg og góð fyrirsæta. Kerry
Harper er frá Fort Wayne i Indiana. Frægðarferill hennar
byrjaði með þvi að hún vann i ljósmyndakeppni um fall-
egar stúlkur og verðlaunin voru ferð til Chicago. Þar
komst hún i samband við Playboy Models inc. (deild úr
„stórveldi” Hefners) og svo fór frægðarskriðan af stað.
Henni var boðið stórfé fyrir að leika i kvikmynd, en hún
hafnaði þvi, þvi að henni likaði ekki hlutverkið, en hún átti
aö leika gleðikonu. Sagðist hún ekki búast við geta leikið
slikt hlutverk sannfærandi. Kerry er dóttur kennara i Fort
Wayne og trúlofuð ungum fasteignasala þar i borg, Jay
Malchi, og var ætlunin hjá þeim að gifta sig fyrir siðustu
jól, svo ef ekkert hefur komið i veginn, þá heitir hún núna
Kerry Malchi.
í spegli tímans
Barn borið til sklrnar
Fillinn Jumbo gekk hægt og
virðulega með yngsta meðlim
i sirkus-f jölskyldunni til
kirkju, þvi að nú átti að skira
barnið. Þetta gerðist geröist i
Bergen i Noregi, en þar var á
ferð sirkus-fólk, sem hefur átt
þennan fil i mörg ár. Það
hefur verið venja hjá fjöl-
skyldunni, að fillinn — sem er
afar geðgóður og rólegur —
hefur verið látinn kynnast
börnunum um leið og þau fæð-
ast og hann leikur við þau og
fer mjög mjúklega með litlu
börnin. Þessi kirkjuganga i
Bergen vakti mikla athygli og
var um leið auglýsing fyrir
fjölleikahúsið. Litla daman i
skirnarkjólnum tók þessu öllu
rólega og virtist bara kunna
þvi vel að vera borin til kirkju
af Jombo, — en svo er pabbi
hennar til taks við hliðina á
þeim.
'iWá
3197. Lárétt
1) Rakkann. 6) Mál. 7) Sverta.
9) Mann. 11) Nafar. 12) Eins.
13) Fugl. 15) Æða. 16) Tré.
18) Tónverk.
Lóörétt
1) Kaupstaður. 2) Gagn. 3) Titill.
4) Fag. 5) Fossar. 8) Strák.
10) Skeifing. 14) Heysáta.
15) Herma. 17) Stafrófsröð.
Ráðning á gátu No. 3196
Lárétt
1) Indland. 6) Óin. 7) Net.
9) Sjö. 11) Af. 12) Óf. 13) Nag.
15) Aru. 16) Óms. 18) Möndull.
Lóörétt
1) Innanum. 2) Dót. 3) LI. 4) Ans.
5) Djöfull. 8) Efa. 10) Jór.
14) Gón. 15) Asu. 17) MD.
■ * :
með morgunkaffinu
— Þú getur látið afskrá bilinn.
bridge
Norður, i spili dagsins, var ekki enn
orðinn þjálfaður i þeirri list að leggja nið-
ur góðan blind, þegar félagi segir á eigin
spýtur. En honum var þó ekki alls varnað,
þvi eitt spilið reyndist vel nothæft.
Noröur
S. 9
H. 73
T. 10876432
L.D94
Vestur
S. A107
H. 10852
T. A5
L.KG83
Austur
S. 83
H.964
T. KDG
L. A10762
Vestur
1 lauf
dobl
Suður
S. KDG6543
H. AKDG
T. 9
I. 5
Norður Austur Suður
pass 31auf 4spaðar
pass pass pass
Vestur spilaði út tigulás og þegar
austur setti kónginn, hélt vestur á-
fram með tigul, sem suður trompaði.
Til að spilið ætti einhverja mögu
leika, varð trompið að liggja 3-2,
en þó sú raunin væri á, var margt að
varast. Ef suður spilaði nú spaða, gæti
vestur drepið á ásinn, spilað austri inná
lauf og þegar austur spilar tigli verður
spaðatia vesturs slagur. Suður þurfti þvi
að komast inni borðið, áður en trompinu
var spilað og spila tiglinum sjálfur og
henda laufi heima. Eðlilegasta leiðin til
þess virtist vera sú, að taka tvisvar hjarta
og trompa þriðja hjartað. En þar var sá
Þrándur i Götu, að ef vestur ætti þrjú
hjörtu, gæti austur einfaldlega spilað
hjartanu, þegar hann væri inná tigul. Eins
gæti vestur, ef austur ætti 3 hjörtu, tromp-
að tigulslaginn og gefið austri siöan
hjartastungu. Til að spilið stæði varð
skiptingin að vera eins og sést hér að ofan
og suður tók þvi þrisvar hjarta og tromp-
aði fjórða hjartað. Austur átti ekki yfír
spaðaniunni, svo suður gat spilað tigli og
hent laufi heima. Nú gat austur ekki spil-
að neimi, sem var hættulegt suðri og hann
gat brotiö út spaðaásinn i rólegheitum.
skák
Tveir „áhugasérfræðingar” sátu að
tafli og þessi staða kom upp.
Svartur á leik og vinnur.
N.N.
DxRg2
Gefið.
Hvitur verður fljótlega mát.
Bg3skák!