Tíminn - 23.01.1980, Blaðsíða 5

Tíminn - 23.01.1980, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 23. janúar 1980 5 MW Flugmenn risavéla í stríði við flugfélög Airbus A310. Þessum vélum, sem nú eru i smlðum, hyggjast kaup- endur hjá stórum féiögum láta fljúga með aðeins tveim flugmönn- AM — Þann ll.desember sl. var haldinn i Frankfurt i V-Þýska- landi fundur fulltrúa flug- manna, sem Europilot, samtök evrópskra flugmanna, gekkst fyrir, vegna áætlana flugfélaga um að fljúga stórum vélum með aðeins tveim flugmönnum i stað þriggja. Þetta hefur mælst illa fyrir meðal flugmanna af álags- og öryggisástæöum og hafa þeir þvi hafnað þessufyrirkomulagi. Leggja þeir áherslu á að þriöji maður sem er f lugvélstjóri eða flugmaður hafi áfram sams konar aðstöðu og venja hefur verið. Tveggja manna fyrir- komulagið sem nefnt er FFCC (Forward Facing Crew Cock- pit) hefur einnig verið fært út á þann veg, að koma þriðja manni fyrir aftan við flugmennina við aðstæður sem eru ófullkomnari en áður hefur gerst og neita flugmenn einnig þeirri mála- miðlun. Þeir Björn Guðmundsson, fyrrum formaður FIA og Ámundi H. Ólafsson, fyrrum stjórnarmaður i FIA söttu þenn- an fund ásamt tveimur fulltrú- um flugvirkja. Sögðu þeir okkur, að fundinn heföu sótt 5-600 menn frá f jölda landa og til dæmis komu fulltrúar frá Frakklandi og Hollandi i hóp með farþegavélum til fundar- ins, sem þeir tóku á leigu. Fundurinn hófst kl. 13.30 og stóð til kl. 18 og var fulltrúum fjölmiðla sérstaklega boðið, þar sem hér er um stórmál að ræöa sem snertir smiði nýrra far- þegavéla, einkum A310 og Boe- ing 757 og 767. Framleiðendur eru reiðubúnir að smiða vélarn- ar á hvorn veg sem flugfélögin kjósa, en forstjórar sumra flug- félagannasýnastráðnirí að láta sig ekki og fækka i áhöfninni. SAS mun þó hafa þrjá. Getur þetta mál orðið á döfinni lengi þann áratug sem nú fer í hönd. Þótt fundinn sæktu einkum evrópskir flugmenn kom á hann varaforseti félags bandariskra flugmanna, John LeRoy, sem var fulltrúi 33000 flugmanna og lýsti yfir stuðningi manna þar vestra, en bandarisk flugfélög hafa ákveðið að hafa þrjá um borð. Stjórnir flugmannafélaga hjá stórum félögum, eins og KLM, Lufthansa, Air France, Sabena o.fl hafa tilkynnt félögum sfn- um, að þeir muni ekki fljúga vélum sem verða smiðaöar með þessu fyrirkomulagi. Framtið islenskra flugmála er i nokkurri óvissu um þessar mundir og ekki aö vita hve hröð þróun i notkun stærstu véla verður hérlendis, en fslenskir flugmenn munu fylgjast náið meö framvindunni. Þetta hús eru tæpir 126 fermetrar að flatarmáli með bílskúr á hluta neðri hæðar. Húseiningar kynna byggingar sínar JH — Fyrirtækið Húseiningar á Siglufirði hefur sent blaðinu rit meðfjölda teikninga af ýmsum gerðum húsa,sem smiðaðar eru i verksmiðju þess og siðan reist viðs vegar um landið á fáum dögum. Verksmiðja Húseininga á þegar allmörg ár að baki, og smiðar auk einbýlishúsa sum- arbústaði, heilsugæslustöðvar, barnaheimili, dagheimili, bú- staði, sem ætlaðir eru öldruðu fólki og fleira. Greiðsluskilmálar eru að jafnaði þeir,að helmingur verðs greiðist fyrir afhendingu eining- anna, sem i húsin fara, en hinn seinni innan eins árs. Flatarmál einbýlishúsa i sýnisbók fyrirtækisins eru frá 105 fermetrum upp f 171, og sum tveggja hæða. Aðf lutningsgj öld hækkuðu um 77 milljónir króna við rannsókn tollgæslunnar á röngum skýrslum Árið 1979 lagði tollgæslan hald á ólöglegan innflutning til landsins (Keflavikurflugvöllur er ekki meðtalinn i þessu yfirliti), sem hér segir: 1.228 flöskur af áfengi (2.318 árið 1978), 38.800 vindlinga (262.230árið 1978), 12.475 flöskur/ dósir af áfengum bjór (12.505 árið 1978), 500 gr. af hassi (706 gr. árið 1978)og 1.256kg.af hráukjötmeti (1.961 kg. árið 1978). Tollgæslan lagði einnig hald á ýmsan annan varning, sem fluttur var ólöglega til landsins svo sem litsjónvarps- tæki, heimilistæki, hljómflutn- ingstæki, talstöðvar, bildekk o.fl. Á árinu 1979 leiddi rannsókn tollgæslunnar á röngum aöflutn- ingsskjölum innflytjenda til hækkunar aðflutningsgjalda um kr. 77.682.836 (kr. 64.450.274 árið 1978), þar af voru kr. 73.076.617 (223 mál) vegna rangar tollflokk- unar, kr. 1.078.600 (4 mál) vegna meira vörumagns í sendingu en tilgreint var i aðflutningsskjölum eða vegna vöntunar vörureikn- ings, kr. 934.429 (1 mál) vegna rangs E.B.E. skirteinis, kr. innflytjenda 1.627.917 (4 mál) vegna rangra upplýsinga i sambandi viö bú- slóðainnflutning og kr. 836.594 (1 mál) vegna rangra upplýsinga um eðlisverð. 1 19 málum af áður- greindum 223 málum vegna rangrar tollftokkunar var inn- flytjanda gert aö greiða 10% af endanlegum aðflutningsgjöldum í viöurlög skv. 20. gr. tollskrárlaga og nam sú innheimta á árinu kr. 1.697.010. Þessum viðurlögum er beitt ef röng tollflokkun innflytj- anda er ekki talin afsakanleg en þó ekki, ef hún er talin saknæm, þá fær málið sakadómsmeöferð. Tollgæslan sektaði og gerði upptækan ólöglegan innflutning i 151 máli á árinu 1979 (210 á árinu 1978) og nam sektarfjárhæð sam- tals kr. 5.618.500 (kr. 4.184.500 á árinu 1978). Tollgæslan hefur ein- ungis heimild til þess að beita sektum og upptöku eignar i minni háttar málum. Stærri málum veröur þviekki lokiö hjá tollgæsl- unni og eru þau mál send öörum yfirvöldum til meðferðar. Upp- tækar vörur voru á árinu 1979 seldar fyrir kr. 3.560.555,-. SÍS og KRON sækja um lóðir undir starfsemi sína: , ,Ánægður og stoltur ef tekst að leysa vanda þeirra” — sagði Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar Kás — „Það er eins og Birgir Is- leifur Gunnarsson skilji ekki að SIS og KRON voru höfð i lóða- svelti itið fyrrverandi meirihluta i borgarstjórn. En ég get sagt honum, að við sem sitjum við stjórnvölinn nú, verðum bæði á- nægð og stolt ef okkur tekst að leysa úr vanda þessara fyrir- tækja”, sagði Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar, á siðasta fundi borgarstjórnar, eftir að Birgir hafði verið að hnýta i um- sóknir frá SIS og KRON um lóðir undir starfsemi sina. Sambandið hefur sótt um lóð i nágrenni Holtagaröa, húsnæðis Innflutningsdeildar, við Elliða- vog, undir átta hæða skrifstofu- húsnæði fyrir höfuðstöðvar fyrir- tækisins, en þær eru nú dreifðar um nokkra staði i höfuðborginni. KRON og Byggingavöruversl- un Sambandsins hafa sóttum lóð- ir undir stórmarkað og bygginga- vöruversluni austur Borgarmýri. NORRÆNA HÚSIÐ Starf forstjóra Norræna hússins i Reykjavík Hér með er auglýst laust til umsóknar starf forstjóra Nor- ræna hússins i Reykjavík, og verður staðan veitt frá 1. febrú- ar 1981 til fjögurra ára. Forstjórinn á að skipuleggja og veita forstöðu daglegri starf- semi Norræna hússins, en hlutverk þess er að stuðla að menningartengslum milli íslands og annarra Norðurlanda með þvi að efla og glæða áhuga íslendinga á norrænum mál- efnum og einnig að beina islenskum menningarstraumum til norrænu bræðraþjóðanna. Rikisstarfsmenn eiga rétt á alltað fjögurra ára leyfi frá störf- um til að taka að sér stöður við norrænar stofnanir og geta talið sér starfstimann til jafns við starf unnið i heimalandinu. Laun og önnur kjör ákvarðast eftir nánara samkomulagi. Fritt húsnæði. Nánari upplýsingar um starfið veita Guðlaugur Þorvaldsson, Skaftahlið 20, s. 15983 og Erik Sönderholm, Norræna húsinu s. 17030. Umsóknir, stilaðar til stjórnar Norræna hússins, sendist: Nordiska ministerrádet, Kultursekretariatet, Snaregade 10, 1205 Köpenhavn K. Skulu þær hafa borist eigi siðar en 22. febr. 1980. Norræna húsið er ein meðal 40 samnorrænna fastastofnana og framkvæmda, sem fé er veitt til á hinni sameiginlegu nor- rænu menningarfjárhagsáætlun. Ráðherranefnd Norður- landa, þar sem menningar- og menntamálaráðherrar eiga sæti, fer með æðsta ákvörðunarvald i hinni norrænu sam- vinnu um menningarmál. Framkvæmdir annast menningar- málaskrifstofa ráðherranefndarinnar i Kaupmannahöfn. NORRÆNA HÚSIÐ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.