Tíminn - 23.01.1980, Síða 8
8
WiiiiHiU'r
Miðvikudagur 23. janúar 1980
Miðvikudagur 23. janúar 1980
9
Ef ég man það rétt, nefndi
einhver blaðamaður hina nýju
Ijóðabók Helga Sæmundssonar,
er Ut kom á seinasta ári, „leyni-
bók” og átti þá við, að þessi bók
hefði farið leynt í þeirri flug-
eldasýningu risaf orlaganna,
sem við nefnum jólabókaflóðið,
cða öðrum viðlika nöfnum.
Við lifum f markaðsþjóðfé-
lagi, hvað sem hver segir, og
minna fer þar fyrir hógværðinni
hjá þeim er harðast það dæma
— og vilja skylda rikiö og lög-
regluna til að gefa Ut bækur.
Mer kom þetta i hug, þegar
mér barst i hendur boðskort um
að koma og sjá yfirlitssýningu
Einars G. Baldvinssonar, list-
málara á Kjarvalsstööum, en
hann varö sextugur 9. desember
sfðastliðinn.
Hann er huldumaður fslenskr-
ar myndlistar.
Huldu-
maðuiinn
Einar G. (Guðmundur) Bald-
vinsson er Reykvikingur, sonur
hjónanna Baldvins Einarsson-
ar, söð'la- og aktygjasmiös og
Chnstine Caroline f. Heggem.
Baldvin Einarsson (1875-1961)
var merkur iðnaðarmaöur i
sinni tið, læröi söðlasmiði hér
heima og i Noregi, en fluttist
aftur hingað til lands árið 1905,
en hann mun fyrstur manna
hafa lært iðn þessa erlendis.
Baldvin sá Alasund brenna árið
1904.
Kona Baldvins Christine
Caroline (1883-1947) var stein-
smiðsdóttir frá Molde i Noregi,
þannig að Einar G. Baldvinsson
er kominn af hagleiksmönnum i
báðar ættir.
Einar hóf listnám liðlega tvi-
tugur að aldri f Handiða- og
myndlistarskólanum, en hafði
áður fengið tilsögn i teikningu
hjá privatmönnum. Hann var
við Handiðaskólann frá 1942-’45,
en hóf siðan myndlistarnám við
Kunstakademiet i Kaupmanna-
höfn árið 1945 og dvaldi þar til
ársins 1950. Siöan hefur hann
málað, kennt teikningu og
stundað algenga vinnu sér til
viðurværis, að þvi er segir í til-
tækum heimildum,sem eruekki
miklar að vöxtum, að ekki sé nú
meirasagt um svo ágætan lista-
mann.
Einkum hefur hann þó verið
huldumaöurinn i islenskri
myndlist, maöurinn utan viö
umræðuna og bardagann, og
það þvi aðeins verið á fárra vit-
orði aö þarna fer afburða mál-
ari.
Um yfirlitssýningu á
verkum Einars G.
Baldvinssonar
Einar G. Baldvinsson hefur
haldið nokkrar sýningar. Fyrsta
einkasýningin var áriö 1957, eða
sjö árum eftir að hann lýkur
námi, þá 1958 og 1960, og hann
hefur tekið þátt i samsýningum.
Myndlist
Einars G.
Baldvinssonar
Sýninginá Kjarvalsstöðum er
yfirlitssýning, og eru 90 verk á
sýningunni, flest oliumálverk,
en auk þess eru þrjár samstæð-
ur af oliukri'tarmyndum, en þær
telja um þaö bil 40 myndir.
Flest oEumálverkin eru i
einkaeign, fengin að láni Uti i
bæ.
Viðfangsefni Einars G. Bald-
vinssonar eru einkum frá
sjávarsiðunni. Þorpið, bryggj-
an, báturinn, maöurinn og haf-
iö.
Þetta eru myndir, sem anga
af þangi og söltum stormi. Skip
Einarseru þóyfirleitt f höfn eða
i uppsátri, og viðfangsefni sin
hefur hann fundið i hinum ýmsu
plássum, viðs vegar um landið.
Einnig eru þarna nokkrar
landslagsmyndir og myndir úr
fornsögunum.
Ef leita skal hliðstæðunnar,
þá finnast þarna svipuð efnis-
tök, eöa stilfærslur og við sjáum
oft í gömlum myndum Snorra
Arinbjarnar, Þorvaldar Skúla-
Jónas
Guðmundsson:
I MYNDLIST |
sonar, Jóns Þorleifssonar og
jafnvel Asgrims Jónssonar.
Ekki svo aö skilja að þarna sé
um stælingar að ræða, heldur er
hér átt við myndefnið, einföldun
þess og skipan á myndflötinn.
Styrkur Einars G. Baldvins-
sonar sem málara Ugguri senn i
teikningunni, niöurröðun efnis
og í litnum, sem oftast er sann-
færandi og safarikur.
Það er galli á þessari sýningu,
hversu litið er af eldri verkum,
þar eö þetta er yfirlitssýning.
HUn rekur þvi naumast þróun
mála út i hörgul. Flestar mynd-
irnar eru málaðar eftir 1970,
þótt örfáar séu frá eldri tið, eða
frá fimmta, sjötta og sjöunda
áratugnum.
1 myndunum er að finna per-
sónulegan stil, innlifun og
veðurfar.Eða næman skilning á
umhverfinu, ætti maður
kannski að segja. Stilfærslan er
örugg. Það er allt með, þótt
stiklað sé á stóru.
Persónuleg
úrvinnsla
Hér var aðeins vikið að fáein-
um málurum, sem valið hafa
sér viðfangsefnii svipuðum dúr,
a.m.k. hluta af starfævi sinni.
Það er þvi örðugt að skapa sér
olnbogarými innan þessa
hrings, sem margir nefna aka-
demiska, skandinaviska stil-
færslu og litameðferð,
Það var öröugt um sinn að
rita um sveitafólk fyrst eftir aö
Jón Thoroddsen ritaði sinar
bækur, Pilt og stúlku og Mann
og konu. Eins eftir að Halldór
Laxness ritaði um hann Bjart i
Sumarhúsum.
Þaö sama er uppi á teningn-
um þegar unnið er að myndlist
viðsjávarsiöuna að myndlistar-
verkum. Þar rikir viss listrænn
eignarréttur lika.
Einari G. Baldvinssyni tekst
eigi að siður aö gjöra þessu
myndefni svo persónuleg skil,
að fátt annaö er sameiginlegt
með honum og öörum f jörukörl-
um myndlistarinnar, en að eiga
sjávargötu skamma.
Hann á sinn sérstaka mynd-
heim, innan um þorpiðTbátana
og skipin og menn taka i nefið
hjá sjálfum sér fyrst og fremst,
en ekki öðrum.
Sum mótifin gjörþekkja allir,
Verðbúðabryggjurnar gömlu,
Fiskhöllina, dragnótabátana og
fjöllin og þvi getum við skil-
greint einföldunina á sérstakan
hátt. Þaö er þvi hægt að fylgjast
með vinnunni i huganum.
Um einstakar myndir verður
ekki fjallaö hér, en listvinir
hljóta áð fagna sýningu þessa
kyrrláta og hlédræga lista-
manns, að hann skuli nú stiga
fram meö stóra sýningu og gera
grein fyrir sinu merka lifsverki
og myndlistarstarfi.
1 heild eru þetta allt góðar
myndir, og inn á milli hreinir
dýrgripir.
Sýning Einars G. Baldvins-
sonar, stendur til 27. janúar,
sem er eiginlega alltof skamm-
ur timi að voru mati, einkum
þegar tillit er tekið til þeirrar
miklu vinnu og umstangs, sem
þvi er fylgjandi að safna mynd-
unum saman.
Jónas Guömundsson.
Auglýsið í Tímanum
með flutningabilum inn I landið,
en afgangurinn kemur á mark-
að i Napóli. Verö á pakka er 500
lirur, en það er hræódýrt miöaö
við réttilega tollaðar og skatt-
lagðar sigarettur. Samt sem áð-
ur hafa margir haft ágóöa af
fyrirtækinu i leiöinni, þvi að
verö hvers pakka, sem sóttur er
á haf út, er 140 lirur.
Að visu tapar rikið árlega sem
svarar rúmlega 200 milljörðum
króna i sköttum og tollum. Það
er þó ekki meginorsök þess, hve
rösklega er gengið gegn smygl-
urunum núna.
Lögreglan og tollgæslan hafa
sannanir. fyrir þvi, að sumir
smyglaranna hafa tekið upp
smygl á öörum varningi, sem
gefur mun meira I aðra hönd,
þ.e. eiturlyfjum. Að baki þvi
smygli stendur auðvitaö Mafi-
an.
Einhverju sinni var sagt: Sjá
Napóli og dey siðan. Kannski
merkingin sé að verða bókstaf-
leg, ef fólk fer að flykkkjast
þangað til að komast I eiturlyf.
Arangur herferöar lögreglunnar. A ströndinni viö Napóli hrúgast upp sigarettukassar,
sem geröir hafa veriö upptækir.
Þrem skrefum frá dyrum
tóbaksbúðarinnar hefur „hin
óhreina samkeppni” komið sér
fyrir. Við bráðabirgöaborð
stendur holdug kona og selur
sigarettur. Pakki með þekktu
merki svo sem Dunhill eða
Philip Morris kostar 500 lirur
(u.þ.b. 250 kr). Fyrir þá upphæð
er ekki einu sinni hægt aö fá inn-
lendan rudda I tóbaksbúðinni.
Kaupmaðurinn i tóbaksbúð-
inni stendur langtímum saman
i dyrunum, leikur jó-jó með
báðum höndum og setur öðru
hverju upptrekktar Mikka mýs
af stað, sem tritla eftir götunni.
Hann hefur ekki ráð á leik-
fangalest, þvi að það er langt
siðan hann hætti að geta selt
nokkuð. Viöskiptin með tóbak I
Napólí eru nefnilega I höndum
60.000 smyglara og að þvi haldiö
er u.þ.b. 300.000 aðstoðarmanna
þeirra og smásala, sem færa sig
úr einum staðnum á annan. I
borginni við Vesúvius hefur um
fjórðungur ibúanna sitt lifi-
brauð af þessum atvinnuvegi,
sem auðvitað er ólöglegur.
En þegar lögreglan og toll-
gæslan tóku sig til fyrir ári og
ætluðu að ganga milli bols og
höfuðs á smyglurunum I fyrsta
skipti, kom i ljós, að þar var
komið vespuhreiður. Smyglar-
arnir flykktust I mótmælagöng-
ur eftir götum borgarinnar.
Þeir visuðu til réttar slns i nafni
heföar og báru boröa, þar sem á
stóð: 1 smygli eru fleiri störf i
veði en hjá Fiat-verksmiðjun-
um, og: Sá, sem tekur frá okkur
réttinn til vinnu, rekur okkur út
i afbrot. Að smygl sé afbrot,
tekur enginn Napólibúi til
greina. — Við gerum ekkert af
okkur, segir einn I kvörtunar-
tón. — Við stelum ekki frá nein-
um.
Þegar smyglararnir boöuðu
sólarhringsverkfall og engar
ódýrar sigarettur var aö fá I
allri Napóli-borg, höfðu þeir al-
menning á sinu bandi. Borgar-
stjóranum, Maurizio Valenzi, en
hann er kommúnisti, kom her-
ferðin gegn smyglurunum ekki
vel, þar sem þegar voru 220.000
atvinnuleysingjar á skrá I borg-
inni. Smyglararnir aftur á móti
sjá sjálfum sér og starfsbræðr-
um i neyð farborða. tlr sameig-
inlegum sjóðum borga þeir fyrir
aldraða, sjúka og sektir þeirra,
sem lenda I klónum á lögregl-
unni.
Umfram allt er sektarsjóður-
inn mikilvægur siðan lögreglan
og tollgæslan hafa hafiö herferö
sina gegn hinni ævafornu og
virtu starfsgrein Napólibúa,
smyglinu. Nú sitja 187 inni, 1376
mál eru i rannsókn, um 500
vörubilar hafa verið teknir úr
umferö og lögreglan hefur
bundið við bryggju um helming
himinbláa hraðbátaflotans, sem
notaður er til að koma hinum
forboðna varningi I land. Samt
sem áöur er ekki annað aö sjá
en aö þessi stórbrotnu viöskipti
haldi sinu striki með sama hætti
og fyrr, samkvæmt reglum,
sem öllum eru kunnar. A
hverri nóttu endurtekur sig
sama sagan:
Einhvers staðar á alþjóðlegri
siglingaleiö á milli ítaliu og
Sardiniu er varningnum um-
skipað frá stóru flutningaskipi
á hrörlegt strandferðaskip, sem
siðan tekur stefnuna á Napóli-
flóann. 50 mílur vestur af Capri
eða Ischia, enn á alþjóðlegri
siglingaleið, biður hraðbátaflot-
inn þegar eftir þvi að taka á
móti sigarettukössunum. Slöan
þjóta bátarnir ljóslausir I átt til
strandar. Hraöinn er u.þ.b. 40
hnútar eöa 73 km á klst.
A þessum hraða hafa lög-
reglubátarnir ekki roö viö bát-
um smyglaranna. Ef þeim samt
einhverra hluta vegna tekst að
stöðva einhvern smyglbátinn,
kallar skipstjóri hans eftir hjálp
um fjarskiptatækin. Og þá dreg-
ur til einnar þeirra frægu sjó-
orrustu, sem lögreglan biöur
A sama tlma og herferö lögreglunnar sýnir einhvern árangur,
ganga viöskiptin meö smyglaöar slgarettur sinn vanagang inni I
borginni.
alltaf lægri hlut i: Heil báta-
deild skýst utan úr myrkrinu,
siglir i veg fyrir lögreglubátinn
eða siglir þvers og kruss i sigl-
ingaleiö hans og neyðir hann
þannig til að stansa.
A eyöilegum staö á ströndinni
við rætur Vesúviusar hafa
smyglararnir skjótar hendur og
flytja varninginn af bátunum á
vörubila með hulin númera-
spjöld. Oft flytja þeir smygliö I
smærri pakkningum i ibúðir i
fátækrahverfum borgarinnar,
þar sem ótaldar fjölskyldur lifa
gjarna á Kent eða Marlboro
kössum. Smyglararnir borga
nefnilega vel fyrir geymsluna,
4.500 kr. á kassa á dag.
Hluti varningsins er fluttur
Um langan tima hafa
hraðbátar þeirra flutt
sigarettur i kassatali i
land á hverri nóttu.
Núna hefur lögregian
hafið herferð gegn
smyglurunum i fyrsta
sinn. Ástæðan: Eitur-
lyf!
Hinir virðulegu
smyglarar í NapÖlí
Stofnað
Iðnþró-
unarfélag
Sauðarkr. 22.1. — Hinn 14. des-
ember sl. var haldinn stofnfund-
ur Iðnþróunarfélags Skaga-
fjaröar, sem er sameignarfélag
með heimili og varnarþing á
Sauðárkróki, en starfssvæði
þess er Skagaf jarðarhérað.
Stofnaðilar félagsins eru Skaga-
fjarðarsýsla, Sauðárkrókskaup-
staður, Kaupfélag Skagfirðinga
og Bunaðarsamband Skagfirð-
inga.
Markmið Iönþróunarfélags
Skagafjarðar er að efla iönað og
styðja framtak einstaklinga og
fyrirtækja i héraðinu öllu, og
binda menn miklar vonir við
stofnun þess.
Stjórn félagsins skipa Jón
Guðmundsson, Öslandi, formaö-
ur, Egill Bjarnason, Sauðár-
króki, varaformaður, Pálmi
Jónsson, Sauðárkróki, gjaldkeri
og Guðrún L. Askelsdóttir, Mæli-
felli, ritari.
Ný kennslubók í
málfræði
Ot er komin á vegum IÐUNN-
AR bókin tslensk málfræöi,
kennslubók handa framhalds-
skólum. Þetta er fyrri hluti
bókarinnar. Höfundur er Kristján
Arnason. Hann lauk fyrir fáum
árum doktorsprófi i málvisindum
i Bretlandi og kennir nú málfræði
við Háskóla íslands.
tslensk málfræöi skiptist I þr já
aðalkafla sem hver um sig grein-
ist i marga undirkafla. í fyrsta
kafla er fjallað almennt um mál-
fræði, eöli hennar og sögu. í
öðrum kafla er gerð grein fyrir
setningafræði og sagt frá stofn-
hlutum setninga, stofnhlutaregl-
um og ummyndunum og samsett-
um setningum. Þriöji kafli erstil-
fræði og er það nýlunda i mál-
fræðikennslubókum. — I seinni
hluta bókarinnar sem út kemur i
vor veröur beygingafræði mál-
saga og hljóöfæri.
t formála höfundar er komist
svo að orði: „Mikið vatn hefur
runnið til sjávar siðan bók Hall-
dórs Halldórssonar, tslensk mál-
fræöi handa æðri skólum, kom út.
Hvort tveggja er, að aöstæöur
hafa breyst I fræðiheimi mál-
fræðinnar og þá ekki slður I
menntakerfinu islenska hvað
varðar ytra skipulag og hug-
myndir um móðurmálskennslu.
Ný kennslubók i málfræði er þvi
löngu tfmabær. Þetta kver er
fyrst og fremst tilraun og ég von
að menn séu reiðubúnir aö taka
henni með velvilja, en þó strangri
gagnrýni}-þannig aö reynsla af
notkun kversins geti leitt til ein-
Dr. Kristján Arnason
hverra framfara I fræðslu um
málfræði og móðurmál á fram-
haldsskólastigi”.
tslensk málfræöi er 133 bls.
Prentrún sf prentaði.
ALTERNATORAR
%
t FORD BRONCO
MAVERICK
CHEVROLET NOVA
BLAZER
DODGE DART
PLYMOUTH
WAGONEER
CHEROKEE
LAND ROVER
FORD CORTINA
SUNBEAM
FIAT — DATSUN
TOYOTA — LADA
VOLGA — MOSKVITCH
VOLVO — VW
SKODA — BENZ — SCANIA o.fl.
Verð frá
26.800/-
Einnig:
Startarar/ Cut-out,
anker, bendixar,
segulrofar o.fl. í
margar tegundir
bifreiða.
Bílaraf h.f.
Borgartúni 19.
Sími: 24700