Tíminn - 27.01.1980, Page 2
2
Sunnudagur 27. janúar 1980
„Krafturinn” hefur margfaldast
1
■;
i
i
i
Fjöldi fólks hafði samband við Tímann vegna viðtalsins við Sigurrós Jóhannsdóttur
huglækni, sem birtist um síðustu helgi
t síðasta sunnudagsblaði Tím-
ans birtist m.a. viðtal við Sigur-
rós Jóhannsdóttur huglækni og
eftir viðbrögöum fólks að
dæma, virðist sem svo að það
hafi vakið verðskuldaða athygli.
Þegar á sunnudag varfólk farið
að hringja heim til starfsmanna
bla ðsins í von um að fá uppgefið
heimilisfang Sigurrósar og á
mánudag má segja að sim-
hringingum vegna þessa viðtals
hafi ekki linntallan daginn. Alls
telst okkur til að um 40 manns
hafi verið búnir að hafa sam-
band við blaðið á miðvikudag og
var erindi allra þeirra sem
hringdu hið sama, þ.e.a.s. að fá
uppgefið heimilisfang Sigurrós-
ar.
Er blaðamenn Timans heim-
sóttu Sigurrós á heimili hennar
að Hverfisgötu 83 á miðvikudag
höfðu á milli 15 og 20 manns leit-
aðtil hennarvegna viðtalsinsog
sagði hún að það væri eins og að
„krafturinn” hefði margfaldast
síðustu daga. Við spurðum
Sigurrós að þvi hvort henni
hefði tekist að leysa úr vanda
þeirrasem til hennar hefðu leit-
að og svaraði hún því játandi.
Það skal tekið skýrt fram að
hér verður ekki lagður dómur á
lækningamátt Sigurrósar Jó-
hannsdóttur, enda annarra að
meta það en viðbrögð fólks við
umræddu viðtali sýnir það svo
að ekki verður um villst að þörf-
infyrir,,þjónustu”af þessu tagi
er svo sannarlega brýn.
Þörfin fyrir huglækna?
„Kirkjan hefur
alg j örlega
brugðist”
— segir Ævar R. Kvaran forseti
Sálarrannsóknafélags Islands
„Þörfin er alveg glfurleg og
ég hef upplýsingar um það að
mörg hundruð manns eru á
biðlistum hjá hugiæknum viðs
vegar um landið”, sagði Ævar
R. Kvaran forseti Sálarrann-
sóknarfélags tslands I viötali
viö Timann er hann var spurð-
ur álits á viöbrögöum fólks við
viötalinu viðSigurrós Jóhanns-
dóttur, huglækni sem greint er
frá hér að ofan.
,,Við hjá Sálarrannsóknar-
félaginu höfum tvo huglækna á
okkar vegum sem vinna að
þessum málum alla daga og ég
get nefnt þér sem dæmi aö önn-
ur þeirra sem reyndar er
eiginkona mln, fer vikulega til
Keflavikur til þess að sinna
þéssum málum og þar eru
langir biölistar þó að þar sé á-
gætur huglæknir fyrir. Ég get
nefnt þér annað dæmi, en það
Einar á Einarsstöðum sem
ilega er þekktastur þeirra
'lækna sem starfa hérlendis
ag. Það eru mörg hundruð
manns sem eru á biðlista hjá
honum, en hann er lika sér-
stakur að þvi leyti að hann
læknar úr fjarlægð.”
Hvernig taka almennir lækn-
ar þessari starfsemi?
„Islenskir læknar eru mjög
frjálslyndir og þó að þeir
viðurkenni þessa hluti ekki
opinberlega, þá hafa þeir sýnt
andlegum íæknum mikið um-
burðarlyndi. Éger llka þeirrar
skoðunar að hér sé ekki um
neina s amkeppni að r æða og viö
tökum helst ekki við fólki nema
það hafi áður leitað til læknis —
án árangurs.
t þessu sambandi má einnig
nefna að ég hef lengi verið
þeirrar skoðunar aö geð-
veikrahæli víða um heim séu
full af fólki sem ekki er geð-
veikt, heldur eigi það viö sál-
ræna erfiðleika að striða, sem
læknisfræöin reiknar ekki
með.”
Af hvaða ástæðum Ieitar fólk
til geðlækna?
„Það er af öllum hugsanleg-
um ástæðum, en ekki sist vegna
aukinnar streitu — hraðans I
þjóðfélaginu og þeim áhyggjum
sem honum fylgja. Hér á
Islandi þarf venjulegur maður
helst að vinna tvöfalda vinnu til
að geta lifað þokkalegu llfi og
oft endar þetta með þvi að fólk
fellur saman. Þá má nefna
hjónaskilnaðarmál, erfiöleika
út af börnum og alls kyns aðrar
áhyggjur sem steðja að fólki. t
raun og veru þá er það hlut-
verk kirkjunnar að sinna þess-
um málum, en hún hefur bara
algjörlega brugðist. Einstaka
kirkjunnar menn hafa að vlsu
gert mikiö i þessum málum, en
þeir eru þvi miður algjör
undantekning. Að þessu leyti
má segja að kaþólska kirkjan
sé betri, þvl að kaþólskir menn
hafa þó skriftirnar — og enda
hefur það sýnt sig að þörfin
fyrir sálfræðinga I löndum
kaþóls kr a er ekker t s vipuð þvi
sem gerist hér hjá okkur.”
Ævar R. Kvaran forseti Sálarrannsóknarfélags tslands sést hér
fyrir miðri mynd.
Eru margir hérlendis sem
hafa sálræna hæfileika?
„Já þeir eru margir, en þeir
hæfileikar erueins og tvieggjaö
sverð og geta leitt til mikilla
þjáninga ef þeir eru ekki þjálf-
aðir rétt”.