Tíminn - 27.01.1980, Page 8
8
r
Sunnudagur 27. janúar 1980
W$Mmm
Ctgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur ólafsson. Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason.
Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Sföu-
múla 15. Simi 86300. — Kvöldslmar blaðamanna: 86562, 86495.
Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I iausasölu kr. 230.- Askriftargjaid kr.
4.500 á mánuöi.
Blaöaprent. ^
Vinnubrögð
Svavars Gestssonar
Meðal alþýðubandalagsmanna, sem fylgjandi
eru vinstri stjórn, rikir megn óánægja yfir vinnu-
brögðum Svavars Gestssonar i sambandi við
stjórnarmyndunartilraun hans. Vinnubrögð hans
þykja sýna svo augsjáanlega, að hann hafi ekki
unnið af fullum heilindum og þvi m.a. gefið Alþýðu-
flokknum kærkominn höggstað á Alþýðubandalag-
inu.
Svavar Gestsson hóf stjórnarmyndunartilraun
sina með þvi að leggja fyrir viðræðuflokkana eins
konar kosningastefnuskrá Alþýðubandalagsins.
Þar ægði saman annars vegar ýmsum nýtilegum
tillögum en hins vegar óraunhæfum og óathuguðum
hugmyndum, enda vart við öðru að búast, þar sem
plagg þetta var samið af tveimur mestu loftkastala-
smiðum Alþýðubandalagsins, Hjörleifi Guttorms-
syni og ólafi Ragnari Grimssyni.
Þótt plagg þetta væri úr garði gert eins og að
framan greinir, tóku framsóknarmenn það til
gaumgæfilegrar meðferðar og fengu m.a. Þjóð-
hagsstofnun i lið með sér, svo að ekki væri hægt að
kenna um, að verk þetta væri hlutdrægt unnið. At
hugun þessi sýndi, að margt var nýtlegt i þessu
plaggi Alþýðubandalagsins, en annað óraunhæft og
ranglega metið. T.d. var þar um hugmynd að ræða,
sem hefði riðið dreifbýlisversluninni að fullu, og er
t.d. ósennilegt, að Hjörleifur Guttormsson hefði
staðið að henni, ef hann hefði gefið sér tima til að
kanna málin áður en plaggi þeirra ólafs var varpað
fram.
Framsóknarmenn brugðust þannig við eftir þessa
athugun, að þeir samþykktu öll þau atriði, sem virt-
ust nýtileg, en buðu upp á frekari könnun á öðrum
atriðum eða hvað gæti komið i stað þeirra.
Viðbrögð Svavars Gestssonar urðu hin furðuleg-
ustu. í stað þess að þiggja þetta tilboð Framsóknar-
flokksins og ganga til fulls úr skugga um, hvort
flokkarnir gætu náð samkomulagi, lýsir hann yfir,
að plaggi Alþýðubandalagsins hafi verið endanlega
hafnað og viðræðum um vinstri stjórn sé þar með
hafnað að sinni af hálfu Alþýðubandalagsins.
Ritstjóri Alþýðublaðsins, Jón Baldvin
Hannibalsson, var fljótur að koma auga á, að
Svavar hafði hér lagt Alþýðubandalagið á högg-
stokk, sem var honum kærkominn. Þarna sjáið þið
það piltar, sagði Jón Baldvin, að Alþýðuflokkurinn
hafði rétt fyrir sér, þegar hann rauf vinstri stjórn-
ina á siðastliðnum vetri. Það er ekki hægt að ná
samkomulagi við Alþýðubandalagið um efnahags-
mál. Það vill ekki raunhæfar viðræður og notar loft-
kastalahugmyndir og tylliástæður til að koma i veg
fyrir vinstra samstarf.
Vissulega voru vinnubrögð Svavars Gestssonar
þannig, að þau styðja þessa staðhæfingu Jóns Bald-
vins.
Þess vegna er eðlilega rikjandi mikil gremja
meðal alþýðubandalagsmanna, sem vilja vinstri
stjórn, yfir þessum vinnubrögðum Svavars.
En Svavar hefur sinar afsakanir. Alþýðubanda-
lagið er margklofið. Meirihluti óbreyttra flokks-
manna vill vinstri stjórn, en áhrifamikill hópur for-
ustumanna vill samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn.
Enn aðrir vilja vera utan stjórnar. Framundan eru
kosningar I verkalýðsfélögunum á fulltrúum til Al-
þýðusambandsþings. Allt þetta veldur þvi, að hina
ungu leiðtoga Alþýðubandalagsins, sem eru að taka
við forustunni, skortir áræði og kjark til ábyrgrar á-
kvarðanatöku. Þvi urðu vinnubrögð Svavars Gests-
sonar eins ög hér hefur verið lýst. Þ.Þ.
Kosningabaráttan að hefjast í Ródesíu
Nkomo hylltur viö komuna til Salisbury.
ÞAÐ ER augljóst af nær öllu,
hver verður forsætisráðherra
sjálfstæðrar Ródesiu, eða Zim-
babwe, eins og landið verður
kallað í framtiðinni, ef Bretar
fengju að ráða. Það yrði enginn
annar en Joshua Nkomo. Senni-
lega er það einnig óskadraumur
flestra hvitra manna i Ródesíu,
þótt sumir þeirra hafi horn i
siðuhans vegna þess, að skæru-
liðar hans skutu niður tvær far-
þegaflugvélar og fórust með
þeim tugir óbreyttra borgara.
Með þessu voru skæruliðar að
hefna árása, sem her Ródesiu
hafði gert á búðir þeirra i
Zambiu.
Nkomo, sem er 62ára, á orðið
lengri feril að baki i sjálfstæðis-
baráttunni en aðrir leiðtogar
svartra manna i Ródesi'u. Það
er sameiginlegt álit and-
stæðinga hans og samherja, að
hann sé mikill og geðþekkur
persónuleiki. Hann getur verið
ákveðinn, eins og hann hefur
m.a. sýnt með útlegö sinni, en
einnigfústil viðræðna og samn-
inga, ef honum finnst mótstöðu-
maöurinn sýna sanngirni og
vilja mæta honum á miðri leið.
Jafnt brezkir embættismenn og
fréttaskýrendur telja, að hann
sé manna liklegastur til að sam-
eina blökkumenn og tryggja
stjórnarhætti, sem hvitir menn
geta sætt sig við.
Allir þrir aðalleiötogar
blökkumanna I Ródesiu, þ.e.
Nkomo, Muzorewa og Mugabe,
lýsa sig fylgjandi þvi, að hvitir
menn fái aðstöðu til aö búa
áfram i landinu, enda sé það
nauðsynlegt fyrir uppbyggingu
þess, þvi að þeir ráði yfir þekk-
ingu og kunnáttu, sem geti kom-
iö að miklu gagni.
KOSNINGAR til nýs þings I
Ródesiu eiga aö fara fram
27.-29. febrúar næstkomandi.
Þingiö verður skipað 100 mönn-
um. Hvítir menn kjósa 20 þing-
menn, en blökkumenn 80. Lik-
legt þykir, að 10 flokkar keppi
um þingsæti blökkumanna, en
aðeins þrir þeirra þykja væn-
legir til verulegs fylgis eða
flokkar áðurnefndra þremenn-
inga.
Þótt flokkar þeirra Nkomos
og Mugabes hafi staðiö saman
að undanförnu undir merkjum
Föðurlandsfylkingarinnar,
bjóöa þeir fram sér i lagi, enda
hefur samstarf þeirra aldrei
verið traust. Nkomo hefur skipt
um nafná flokki sinum, og kall-
ar hann oröið Fööurlands-
fylkinguna. Þykir hann hafa
snúið á Mugabe með þessari
nafnbreytingu.
Fylgi þessara þriggja flokka
mun fara nokkuö eftir lands-
hlutum og þeim þjóöflokkum,
Carrington lávaröur og Nkomo
sem byggja þá. Nkomo tilheyrir
þeim þjóðflokki, sem byggir
Matabeleland, og þykir senni-
legt, að hann fái alla þingmenn-
ina þaðan, 18 talsins.
Muzorewa og Mugabe eru
báðir frá Mashonalandi og til-
heyra stærsta þjóðflokknum
þar. Aðalbaráttan um þá 62
þingmenn, sem verða kosnir
þar, stendur á milli þeirra, en
hugsanlegt er, að Nkomo fái
einhverja þingmenn kjörna þar.
íkosningunum, sem fóru fram i
fyrra, fékk flokkur Muzorewa
flesta þingmennina þaðan. En
þá tók flokkur Mugabe ekki þátt
I kosningunum.
Það er ljóst, aö jafnt Bretar
og hvitir menn I Ródesiu hafa
verstan bifur á Mugabe. Þeir
telja hann marxista, sem geti
reynzt ósáttfús, þegar til kem-
ur. Skoðanalega likar hvitum
mönnum bezt við Muzorewa, en
þeir draga i efa, að hann reynist
röggsamur stjórnandi. Þess
vegna er Nkomo, sá leiötoginn,
sem þeir treysta bezt.
KOSNINGABARÁTTAN er i
þann veginn að hefjast. Skæru-
liðar áttu áður að vera komnir
til ákveðinna staða og dveljast
þar meðaná kosningabaráttunni
stendur. Skæruliðar, sem verið
hafa undir stjórn Nkomos, hafa
yfirleitt hlýtt þessu. Hins vegar
er taliö, að allmargir skærulið-
ar, sem hafa verið undir stjórn
Mugabes, fari enn huldu höfði.
Nkomo kom til Salisbury,
höfuðborgar Ródesiu, 13. þ.m.
eftir þriggja ára Utlegö. Honum
var fagnað af meiri mannfjölda
en þar hefur sézt lengi. Mugabe
hefur ráðgert að koma heim 27.
þ.m. Vafalaust veröur honum
einnig vel tekið.
Það mun reyna mikiö á
Soames lávarö næstu vikurnar,
en sú kvöð hvilir á honum sem
landstjóraað halda uppi röð og
reglu. Til nokkurra átaka hefur
komiö að undanförnu og ástæða
er til að óttast, að þau aukist,
þegar nær dregur kosningunum.
Flokkarnir bera fram klögumál
á vbd og hafa jafnvel við orð að
draga sig alveg i hlé, ef ástandið
batnar ekki. Meðal annars hefur
Muzorewa haft það á orði.
Fylgismenn Nkomos og Mu-
gabes segja hins vegar, að
flokkur Muzorewasnjóti ýmissa
hlunninda.
Margir fréttaskýrendur ótt-
ast, að borgarstyrjöld geti brot-
izt út, ef flokkur Muzorewa nær
meirihluta. Mugabe muni þá
haldaskæruhernaðinum áfram.
Sigur Mugabe getieinnig leitt til
mikilla átaka innanlands, og
, Suður-Afrika geti þá skorizt i
leikinn. Helzta vonin um starf-
hæfa stjórn, sem menn sætti sig
við, sé bundin við það að Nkomo
hreppi forustuna. Þ.Þ.
Erlent yfirlit
Bretar telja Nkomo
hæfastan til forustu