Tíminn - 27.01.1980, Qupperneq 27

Tíminn - 27.01.1980, Qupperneq 27
Sunnudagur 27. janúar 1980 27 Heit frétt gerð að þriller i ■>. Stjörnubió: Kjarnaleiðsla til Kina/ The China Syndrome Leikstjóri James Bridges Aðalhlutverk Jack Lemmon, Jane Fonda og Michael Douglas Margir muna e.t.v. eftir Harrisburg-slysinu, þegar bilun 'varð I Harrisburg kjarnorku- Iverinu i Three mile island i Bandarikjunum. Þessi mynd fjallar um svipaðan atburð og hún kom einmitt á markaðinn á svipuðum tima og vakti mikla athygli. ) Sjónvarpsfréttakonan Wells I(Fonda) er að kynna sér starf- semi Ventana-kjarnorkuversins I Kaliforniu er óvæntur atburður gerist i verinu er setur ótta að starfsmönnunum. Kvikmynda- tökumaðurinn Adams (Dou- glas) festir atburðinn á filmu án þess að eftir þvi sé tekið. Er þau koma aftur i sjónvarp- stöðina þá neitar yfirmaður þeirra að birta myndina og ber þvi við að það gæti kostað stöðina mikið málaþras og skaðabótakröfur. Adams sættir sig ekki við þetta og fer með filmuna til sérfræðings til að fá úr þvi skoriö hvað hafi gerst i kjarnorkuverinu. Verkstjóri I kjarnorkuverinu kemst á snoðir um að ekki hafi allt verið með felldu við byggingu kjarnorku- versins á sama tima. Eigendum kjarnorkuversins er umhugað að framleiðsla verði hafin sem fyrst og koma á málamyndarannsókn á at- burðinum. Verkstjórinn gerir sérgrein fyrir þvi að kjarnorku- verið er stórhættulegt og hann yfirtekur stjórnstöð þess. Hann vill siðan veita Wells viðtal um álit sitt á öryggi kjarnorkuvers- ins. Gley mdur hæfileika- maður ... Myndin dregur nafn sitt af þvi að sú kenning er til að ef kjarni i svona orkuveri ofhitnar þá gæti hann brætt sig i gegnum jörðina og komiö upp hinum megin, þ.e.a.s. i Kina. Umfjöllunarefni myndarinn- ar er mjög þarft nú á timum aukinnar kjarnorkunotkunar. Harrisburg-slysið benti okkur á hættu þá er getur stafað af kjarnorkuverum og þá gætni er verður að viðhafa áður en kjarnorkuver eru talin örugg. Að þessu slepptu er myndin vel leikinn þriller og gamla kempan Lemmon fékk verðlaun á Cannes 1979 fyrir leik sinn i þessari mynd. Jane Fonda átti erfitt upp- dráttar á fyrri hluta áttunda áratugarins á kvikmynda- sviðinu vegna pólitiskra skoðana sinna. Þetta hefur þó í skoðunarferð um kjarnorkuverið breytst á siðustu árum, sem betur fer og hún hefur sýnt það að hún á heima i fremstu röð leikara. Túlkun hennar á sjón- varpsfréttakonunni er sannfær- andi og hún virkar áhrifamikil i þessu hlutverki. Douglas er ekki verri leikari en faðir hans Kirk Douglas og leikur hans er hnökralaus. Þrátt fyrir það einvala lið sem stendur að þessari mynd þá virkar hún ekki nógu grfpandi að minu áliti og að umfjöllunar- efninu slepptu þá stendur eftir velgerður þriller hvorki betri né verri en aðrir slikir. Það er þvi vel þess virði að eyða kvöld- stund i Stjörnubió á næstunni. Friðrik Indriðason I Ein af forvitnilegri frumsýn- ingum siðasta árs var án vafa sýning myndar Bob Fosses, All That Jazz, sem frumsýnd var i New York I desember. All That Jazz er fyrsta mynd Fosse í 5 ár eða allt frá gerð Lenny árið 1974. t tilefni þess og einnig vegna þess að Bob Fosse er gleymdur hæfileikamaður, er rétt að verja Kvikmyndahorn- inu I að segja frá Bob Fosse og hinni nýju mynd hans. Það er rétt að geta þess aö stuðst er við grein um hann i American Film (desember ’79j Bob Fosse er fæddur 1927 i Chicago. Faðir hans var skemmtikraftur og hafði hann mikil áhrif á val Fosses á ævi- starfi. Hann fékk snemma áhuga á dans og á unglingsárum sinum gerði hann allt til að likj- ast Fred Astaire. Eftir að Fosse kom úr sjóhernum 1946 fékk hann vinnu við hina ýmsu dans og söngleiki ogeftir misheppnað hjónaband giftist hann dansar- anum Joan McCracken. Hún var mörgum árum eldri en Fosse, en henni tókst þó að breyta lifi hans. Hún benti hon- um á að hætta að reyna að verða Bob Fosse og myndir hans: dansari og snúa sér að ,,stú- dera” dans, hreyfingu, leik, ræðu og tónlist. Árið 1954 byrj- aði Fosse að stjórna og útfæra dans i' kvikmyndum og á Broad- way, en um svipað leyti lést kona hans. Fyrsta kvikmyndin sem Fosse leikstýrði og ,,koreograf- aði” (vöntun á islensku orði yfir stjórn og útfærslu á dans) var Sweet Charity (’68) sem sýnd var i sjónvarpinu siðastliðið haust. Myndin olli Fosse von- brigðum. Hann taldi sig eiga eftir að fullgera hana, en Uni- versal fyrirtækið hlustaði ekki á hann og setti myndina á mark- að. Þótt myndin sé ekki mjög góð, þá má sjá greinilega hæfi- leika Fosse til útfærslu dansatr- iða. Siðan 1968 hefur Fosseleik- stýrt og „koreografað” öll sfn verk, hvort sem er á tjaldinu eða á sviði. Fosse segir sjálfur: „Mistök- in með Sweet Charity fórusann- arlega i taugarnar á mér, vegna þess að ég er hrifinn af leikstjórn. Ég elska kvik- myndavelina, hreyfingar henn- ar og s jónarhorn. Ég hef útfært dansa i svo mörg ár, að myndir og myndsmiðar eru mér mikil- vægar. Ég afþakkaði leikrit á Broadway, vegna þess að mig langaði til að leikstýra annarri mynd, til þess að sanna að ég gæti gert það.” Fossefékk mynd við sitt hæfi, en það var Cabaret 1972. Með Cabaret gerði Fosse nýja teg- und söngvamyndar. Söngva- myndir, sem voru vinsælar á 4. og 5. áratugnum, voru komnar úr tisku. Carbaret er meira en söngvamynd. Húner eins konar menntamannasöngvamynd, þar sem undirtónninn er fall Weim- ar-lýðveldisins, uppgangur Nasista, kynvilla: framagirni, ánægja og sorg fólksins sem kemur við sögu. Velgengni Cabaret leiddi til þess aö Fosse gat gert mun merkilegraog list- rænna verk en áður, Lenny. Fosse segir að hann hafi vilj- aðgera kvikmynd um Lenny og sýna með henni að Lenny hafi ekki verið sjúkur grinisti fullur af mótsögnum, heldur að hann hafi verið snillingur langt á und- an sinni samtið. Það er óhætt að segja,að Fosse hafi tekist þetta ætlunarverk sitt ogermértil efs að jafn sterk mynd og Lenny er hafi verið framleidd i Banda- rikjunum á þessum áratug. (Framhld verðurnæsta sunnu- dag og þá verður fjallað nánar um Fosse sjálfan og nýjustu mynd hans), örn Þórisson KVIKMYNDAIHORNIÐ 1 Skipstjórar - Útgerðarmenn! Útvegum með stuttum fyrirvara: Rafala, Rafmótora/ Straumbreyta og Loftblásara frá: 24 — 32 — 110 og 220 volt. Mjög gott verð Leitið upplýsinga. Viðgerðar- og varahlutaþjónusta. Wansmotor MOTOR ALTERNATORS BRUSHLESS DC-GENERATORS DC-MOTORS Wansmotor Vélar & Tæki hf. 1RYGGVAGATA 10 BOX 397 RFVK.IAVfK SlMAR: 21286-21460 Er margreynt við íslenskar aðstæður og er um borð í tugum íslenskra fiskiskipa.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.