Tíminn - 08.02.1980, Blaðsíða 2

Tíminn - 08.02.1980, Blaðsíða 2
!!1< 2 Föstudagur 8. febrúar 1980. Tengíliður milli áíengis- sjúklinga og aðstandenda — ný staða við lög* regluembættið sem gefur góða raun FRI— Undanfarna mánuBi hef- ur Guöfinnur Sigurösson unniö hjá lögregluembættinu i Reykja- vik sem nokkurs konar tengiliður milli áfengissjúklinga og aö- standenda þeirra i þeim málum sem lögreglan hefur þurft að hafa afskipti af. Starfiö var fyrst hugs- að i tilraunaskyni i fjóra mánuði en um áramótin var ákveðið að framlengja starfstima Guðfinns um óákveöinn tima. — Ég tel aö þetta hafi gefið góða raun, sagði Bjarki Eliasson yfirlögregluþjónn i samtali við Timann. Guðfinnur hefur unnið sem tengiliður i sambandi við það sem unnið hefur verið á vegum embættisins, það er ráðastafanir á hæli og s júkrahús auk aðstoðar við fjölskyldur i þeirra vanda- málum. — Það má segja að komin sé full reynsla á þetta og það er þægilegra að hafa mann i þessu, maður var á hlaupum i svona málum áður og haföi ekki nógu góðan tima til að sinna þeim. Það er ekki bdið aö ákveða framhald- ið á þessu sviði en við höfum full- an hug á að þessu starfi Guðfinns veröi haldið áfram. — Við höfum ávallt haft gott samstarf við alla þá aðila sem tengjast þessum málum, lækna, áfengisvarnasamtök og félags- málastofnanir en þetta starf verður ekki unnið nema með góðu samstarfi okkar við þessa aðila. Við teljum, sagði Bjarki, að þetta hafi sannað gildi sitt i gegnum ár- in og við vonum að svo eigi eftir að vera áfram. Gengið fró ljósunum i Listaskálanum fyrir opnunina. Innfeiida myndin: Hannibal Valdimarsson form. stjórnar Listasafnsins, Þorsteinn Jónsson forstöðumaður safnsins og Árni Guðjónsson form. stjórnar Listaskálans. Tfmamynd G.E. Listasafn alþýöu í eigin húsnæði FRI — 1 gær var opnaður Lista- skáli alþýðu að Grensásvegi 16 en að byggingu hans hafa staðið rúmlega fjörutiu félög. Listaskáli alþýöu hf. var stofnað 16 des. 1976 af 25 verkalýðsfélögum, ASÍ og Listasafni alþýðu. Skálinn er ekki opinn almenningi fyrst um sinn þarsem eftirá að ganga frá ýmsu i kringum hann en opnunin var á dagskrá i gær þar sem þá átti Ragnar Jónsson forstjóri 76 ára afmæli en hann gaf 120 listaverk 1961 sem stofn i alþýðulistasafn. Hlutafé var upphaflega kr. 40 milljónir, sem var kaupverð fok- heldrar hæðarinnar að Grensás- vegi 16 (um 370 ferm.), en það verður aukið á næstunni. Veru- legar lánafyrirgreiðslur hefur safnið fengið fyrir tilstuðlan Seðlabanka Islands og hjá Al- þýðubankanum. Nýting salarins verður fyrst og fremst fyrir Listasafn alþýðu, en auk þess er gert ráð fyrir að aðrar listgreinar fái þar inni. Einnig er gert ráð brátt fyrir, að verkalýðshreyfingin geti haldið fundi sina og ráðstefnur i þessu húsnasði sem og haft þar aðrafræðslu- og menningarstarf- semi. Sýningar munu hefjast i Lista- skálanum eins fljótt og ástæður leyfa og mun fyrsta sýningin verða á verkum Gisla Jónssonar alþýðulistmálara en i Listaskál- anum er hægt að sýna allt að 120 verk i einu. Auk þess er i framtiðinni fyrir- hugað að koma á fót kaffiteriu i Listaskálanum. Kirkjuskipið I byggingu. Smiöinni hefur miðað verulega hægar en á- formað var vegna skiptingar safnaðarins. AM — „Þaö varö okkur mikið á- fall þegar stór hluti Langholts- prestakalls var tekinn i Assókn, og þvi má segja aö kirkjan sé of stór fyrir þennan söfnuð sem eftir er” sagöi Vilhjálmur Bjarnason, formaður byggingarnefndar Langholts- kirkju, þegar við spuröum hann hvernig kirkjubyggingunni mið- aöi. Vilhjálmur sagði aö þegar ráðist var i bygginguna hefði verið gert ráð fyrir 10 þúsund manna söfnuði og tveimur prest- um, en nú telur söfnuöurinn að- eins um 5000 manns og gjaldend- ur rúmlega 3000 og prestur að- eins einn. Þegar þessi skerðing á sókninni átti sér stað heföi einnig fjöldi mætra velunnara kirkjunnar færst úr sókninni. Miklum hluta kirkjunnar er ó- lokiö, en verið er að byggja þak kirkjuskipsins, sem byggt er I einingum. Þegar þakinu er lokið, sagði Vilhjálmur að óformað væri aö hægja á framkvæmdum, til þess að létta á skuldum og Landssamtökin LIF OG LAND halda LISTAÞING að Kjarvals- stööum helgina 16.-17. febrúar nk. Verður blandað saman annars vegar stuttum erindum (10 minútur) um helstu greinar þungum vaxtabyrðum sem þeim fylgja. Safnaöarheimilið, sem löngu er lokið, er notað til guðs- þjónustuhalds og mun verða svo þar til sjálf kirkjan er fullbúin. lista frá ýmsum sjónarhornum og hins vegar skemmtiatriöum ýmissa kunnra listamanna. Allir sem áhuga hafa á listum þar á meðal listafólk, stjórn- málamenn og kennarar eru Eins og kunnugt er hefur sr. Arelius Nielsson nú látiö af starfi sóknarprests og er sr. Sigurður Haukur Guðjónsson þar þjónandi prestur nú. hvattir til þess aö koma og taka þátt i störfum þingsins og njóta skemmtilegrar helgar i hópi margra fremstu listamanna landsins. Fjölmargir innlendir lista- menn munu skemmta á þinginu þar á meðal Manuela Wiesler og Helga Ingólfsdóttir, Þursaflokk- urinn, Nýlistamenn, leikararnir Þórunn Sigurðardóttir ogArnar Jónsson. Guðmundur G. Hagalfn. Guömundur 6. Hagalin heimsækir BSRB JH — Guðmundur G. Hagalin rit- höfundur verður gestur opin- berra starfsmanna að Grettis- götu 89 á þriðjudagskvöldið, á- samt leikurunum Sigriði Hagalin og Baldvini Halldórssyni á bók- menntakynningu, sem hefst klukkan hálf-niu. Þar segir Baldvinfrá kynnum sinum af skáldinu, Sigriður les sögu föður sins, Móðir barn- anna, og Guðmundur spjallar um rithöfundarstörf sin og svarar fyrirspurnum. Þessi bókmenntakynning er liður i starfi fræðslunefndar BSRB. Halldór Laxness hefur áður komið i slika heimsókn, og gert er ráð fyrir, aö fleiri komi síðar. Þess er vænzt, að félagar i BSRB fjölmenni og bent skal á, að þeim er heimilt að taka með sér gesti. Loðna tíl frystingar á 83 kr. kg. A fundi Verðlagsráðs sjávarútvegsins i gær varð samkomulag um eftirfarandi lágmarksverð á loðnu á vetrar- loðnuvertið 1980: Fersk loðna til frystingar, hvertkg. kr. 83.00 Fersk loðna til beitu og fryst- ingar sem beita og fersk loöna til skepnufóðurs,hvert kg. kr. 35.00 Afhendingaskilmálar eru ó- breyttir. Akureyri: Fótbrotinn eftir umferðarslys FRI — Um hádegisbilið i gær varð umferðarslys á Hamars- braut á móts við Asveg. Fullorð- inn maður varð þar fyrir bil og mun hann vera fótbrotinn en að öðru leyti er liðan hans góð. Hált var á þeim stað er slysið var. Endurskimtnerki á allarbíHuirðw Listaþing

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.